Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Qupperneq 34
Þessa himnesku spaghettísósu galdraði Cle-
menza svo eftirminnilega fram í The Godfather.
Ánægjan með matinn í myndinni leynir sér ekki
og munnurinn fyllist óneitanlega af vökva í
hvert skipti sem maður horfir á atriðið.
Fyrir sex
2 msk ólífuolía
450 gr ítölsk pulsa, niðurskorin og
afhýdd
1 msk saxaður hvítlaukur
1 ¼ bolli saxaður laukur
1 bolli þurrt rauðvín
1 dós niðursoðnir tómatar, heilir
1 dós tómat paste
1 msk þurrkuð basillauf
örlítið salt
örlítið sykur, ef vill
Í stóran pott er ólífuolía hituð við miðlungs
hita. Pulsunni bætt út í og elduð vel eða þar til
hún er alveg brún á litinn. Bætið lauk og hvít-
lauk saman við og hrærið þar til laukurinn er
orðinn vel sveittur. Hrærið rauðvíninu þá út í.
Bætið við tómötunum og tómat-paste út í
pottinn og hrærið. Hreinsið það sem eftir var
í dósunum úr með vatni og hellið í blönduna,
þannig er allt úr dósunum nýtt og einnig er
gott að bæta
smá vatni við. Setjið
síðan basillaufin út í og kryddið eftir smekk.
Lækkið hitann í lægstu stillingu og hrærið af
og til. Látið malla í um 2 og hálfan klukkutíma
en bætið vatni út í ef blandan fer að þykkna
mikið.
Berið fram með spaghettí og ferskum par-
mesanosti.
Spaghettisósa
à la Godfather
THE GODFATHER 1972
Rómantík, pólitík og súkkulaðiseiðandi losti
er einkennandi fyrir kvikmyndina Chocolat
sem gerist árið 1959. Litla súkkulaðibúðin
hennar Vianne og allt sælkeradekrið fær
mann til að hrista hendur fram úr ermum og
skella sér í bökunargallann.
16 msk mjúkt smjör
½ bolli hvítur sykur
½ tsk salt
60 gr. brætt dökkt súkkulaði
6 msk lífrænt kakó
2 msk uppáhellt espressó, við stofuhita
2 tsk vanilluduft
2 ½ bollar hafrar
1 bolli kókosmjöl
Blandið smjöri, sykri og salti saman í
hrærivél á miðlungshraða í um 1-2 mínútur
eða þar
til
blandan
verður ljós
og létt. Bætið
brædda súkkulaðinu
saman við, kakóinu, kaffinu
og vanilluduftinu þar til vel
blandað saman. Setjið hafrana í mat-
vinnsluvél (eða blender) þar til gróflega sax-
aðir. Bætið höfrunum við út í súkku-
laðiblönduna og blandið vel saman. Kælið í
um klukkutíma. Skiptið blöndunni í 36 bita
með því að nota tvær matskeiðar. Setjið kók-
osmjölið á stóran disk. Rúllið blöndunni í litl-
ar kúlur og veltið kúlunum upp úr kók-
osmjölinu. Kælið aftur í um tvær
klukkustundir áður en borið er fram.
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Matur og drykkir
ELDAÐ Í BÍÓMYNDUNUM
Fjórar ljúffengar af hvíta tjaldinu
MATUR Í KVIKMYNDUM GETUR VERIÐ AFSKAPLEGA GIRNILEGUR. OFT FLÝGUR SÚ HUGSUN Í GEGNUM HUGANN Í MIÐRI MYND
AÐ ÞAÐ VÆRI NÚ ÁGÆTT AÐ HAFA UPPSKRIFT AÐ HERLEGHEITUNUM SEM SITJA GJARNAN Í MANNI LÖNGU EFTIR ÁHORF.
HÉR KOMA NOKKRAR GÓÐAR UPPSKRIFTIR ÚR SKEMMTILEGUM KVIKMYNDUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Atriðið þegar Django og félagi hans Dr. King
Schultz snæða í höll Calvin’s Candie gleymist
seint. Þar er borin á borð glæsileg hvít kaka.
Hvít kaka er mjög vinsæl í suðurríkjunum í
Bandaríkjunum, einmitt þar sem kvikmyndin á
að gerast.
KÖKUBOTN
1 bolli hvítur sykur
½ bolli smjör
2 egg
2 tsk vanilluduft
1 ½ bolli hveiti
1 ¾ tsk lyftiduft
½ bolli mjólk (sumir bæta við ¼
bolla mjólk svo botninn verði
mýkri)
Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið hringlaga
kökuform vel að innan eða klippið til bök-
unarpappír ofan í formið. Hrærið saman
smjör og sykur. Færið eggin út í, eitt í einu og
hrærið á meðan. Hellið vanilluduftinu út í.
Hrærið saman hveiti og lyftidufti í skál og
blandið við smjörblönduna. Hellið síðan
mjólkinni út í og hrærið deigið vel þar til silki-
mjúkt.
Hellið síðan blöndunni í formið. Bakið í 30-
40 mínútur í ofninum og fylgist vel með á síð-
ustu mínútum með því að stinga prjón/gaffli í
kökuna. Athugið að kakan getur orðið þurr,
svo mikilvægt er að fylgjast með.
Uppskriftin passar fyrir einn botn.
KÖKUKREM
1 bolli mjúkt smjör
3-4 bollar flórsykur, sigtaður
2 tsk van-
illudropar
salt á hnífsoddi
2-3 msk rjómi
Hrærið smjörið þar til ljóst á litinn eða í um
þrjár mínútur. Bætið flórsykrinum við, ½ bolla
í einu. Eftir hvern bolla stillið þá hrærivélina í
botn á milli í um 10 sekúndur. Bætið við van-
illudropum og sykri og látið blandast vel sam-
an. Hellið síðan rjómanum út í og hrærið þar
til blandan hefur náð þéttleika. Til að gera
kremið þykkara bætið flórsykri út í. Kremið
er bæði notað ofan á kökuna og á milli botna.
Franskar súkkulaði-
kókoskúlur úr Chocolat
CHOCOLAT 2000
Hvíta kakan úr
Django
DJANGO UNCHAINED 2012
Eitt af eftirminnilegustu atriðum í kvikmynd-
inni um Julie og Julia er þegar Julie og eig-
inmaður hennar elda saman ítalska brusc-
hettu. Þetta er svona smáréttur sem líklega
allir borða, enda algjörlega him-
neskur.
1 hleifur af ítölsku brauði
1 hvítlauksgeiri
500 gr. þroskaðir tómatar
2 msk fersk basillauf
2 msk ólífuolía
¼ tsk salt
pipar
Hitið ofninn í 175°C og á
meðan hann hitnar skerið
brauðið í meðalþykkar sneiðar
eða rúmlega 1 cm á þykkt. Tak-
ið endana frá, hægt að nota þá
sem brauðteninga út í salat síð-
ar. Raðið brauðsneiðunum á
ofnplötu og ristið í ofninum í um
15 mínútur eða þar til þær eru
stökkar. Snúið við og endurtakið.
Færið sneiðarnar síðan yfir í annað fat til
að kólna.
Þegar
brauðið
hefur
kólnað
skerið þá í
hvítlauksgeir-
ann og nuddið hon-
um á aðra hlið hverrar
sneiðar. Skerið tóm-
atana í litla teninga og
basillaufin í ræmur og
hrærið saman við salt
og pipar.
Skammtið síðan á
hverja sneið og gott er að
setja jafnvel smá parmesan-
ost yfir. En alls ekki nauðsynlegt.
JULIE & JULIA 2007
Tómat- og basil-
bruschetta eftir
Júlíurnar tvær