Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Side 40
Tíska
Balmain fyrir HM
AFP
*Franska tískuhúsið Balmain tilkynnti samstarf við sænskukeðjuna H&M . Yfirhönnuður Balmain, Olivier Rousteing,mun hanna kven- og herrafatalínu ásamt skóm og auka-hlutum undir heitinu Balmain X H&M. H&M hefur veriðduglegt við að fá þekkt tískuhús í að hanna fatalínur en síð-ast var það hönnuðurinn Alexander Wang sem hannaðilínu fyrir keðjuna sem sló heldur betur í gegn síðasta haust.
Lína Balmain og H&M er væntanleg í verslanir keðjunnar
og á Hm.com þann 5. nóvember næstkomandi.
E
f þú fengir að eiga fataskáp einhvers, hver myndi það vera og af
hverju? Það væri örugglega mjög skemmtilegt að eiga fataskápinn
hjá hinni bandarísku Iris Apfel. Hún klæðir sig óvænt en á mjög lit-
ríkan og fágaðan máta. Hún er 94 ára og er enn „fabulous“.
Áttu þér uppáhaldsflík? Já, alveg nokkrar, en það sem kemur fyrst í huga
minn eru leðurbuxur sem ég keypti í Danmörku þegar ég bjó þar fyrir 7 ár-
um og þær eru ennþá flottar og hafa því enst vel, sem er merki um gæði og
flotta hönnun sem ég pæli mikið í við fatakaup.
Hver var fyrsta hönnunarflíkin sem þú keyptir
þér? Svartir Acne-leðurskór.
Áttu þér uppáhaldsfatahönnuð? Já, það er belg-
íski fatahönnuðurinn Dries Van Noten. Hann er etn-
ískur í sinni hönnun og er með mikið jafnvægi á kven-
legu og karllægu. Hann gerir fallegar yfirhafnir og
karlmannlega skó.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú
tókst þátt í? Já, ætli það hafi ekki verið buffalo-
skórnir sem ég átti þegar ég var 12 ára, sem reynd-
ar eru aftur komnir í tísku í nýjum búningi. Það er
það sem er svo skemmtilegt að tískan gengur í
hringi og kemur alltaf aftur inn í nýjum
búningi.
Hvað kaupir þú þér alltaf þó þú eig-
ir nóg af því? Eiginlega er það ekki
neitt sem mér finnst ég kaupa of mikið
af því að ég reyni að hafa jafnvægi á því
sem ég kaupi. Fyrir mér er mikilvægt
að vita hvaðan varan kemur og hvaða
efni er í henni. En ég viðurkenni þó að
ég er veik fyrir fallegum skóm og yf-
irhöfnum.
Áttu eitthverja dýrmæta flík sem þú
tímir ekki að nota? Nei, engin flík er
þannig dýrmæt fyrir mér, ef hún er
dýrmæt í mínum augum þá nota ég
hana mikið.
Hvað heillar þig við tísku? Það er
hversu hröð hún er, sem gefur
fatahönnuðum tækifæri til þess að
hafa einhver skilaboð/„statement“ í
fatalínum sínum sem tengjast því
sem er að gerast í samfélaginu.
Eins og t.d. belgíski hönnuður-
inn Walter Van Beirendock
gerði í fatalínu sinni fyrir Fall
2014, þá löbbuðu módelin niður sýningarpallana í flík-
um sem stóð á „stop racism“.
Einnig heilla mig þeir einstaklingar sem eru hug-
rakkir og fara sínar eigin leiðir í klæðaburði og fylgja
ekki tískustraumum heldur hjartanu og sínum per-
sónulega stíl. Þess vegna fer ég oft á fatamarkaði
þegar ég er erlendis og hérna heima í Kolaportið eða
Góða hirðinn til þess að finna eitthvað sem er ekki
endilega í tísku en er fallegt og hefur sögu að segja.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar
kemur að fatakaupum? Ekki kaupa eins og „hinir“
eða það sem er endilega í tísku heldur það sem fylgir
þínum persónulega stíl og þér finnst þægilegt að vera
í. Ekki vera hrædd/hræddur við að klæðast litum því
litir eru það sem gleður augað.
Hvert er uppáhalds-„trendið“ þitt fyrir sumarið? Ég var að koma frá
Boston úr fríi þar sem sumarfílingurinn var í hámarki, þar keypti ég laussn-
iðinn denim-samfesting og hvíta sandala sem er alveg málið í sumar. Ég
elska líka að klæðast buxum og er því mjög hrifin af þessu lausa útvíða bux-
nasniði sem er mikið að koma.
TÍSKAN GENGUR Í HRINGI
Halldóra Sif Guðlaugs-
dóttir í ofinni slá sem
hún hannaði sjálf.
Morgunblaðið/Eggert
Hræðist ekki að
klæðast litum
HALLDÓRA SIF GUÐLAUGSDÓTTIR ER AÐ ÚTSKRIFAST ÚR
FATAHÖNNUNARDEILD LISTAHÁSKÓLANS Í VOR. HALL-
DÓRA HEFUR BRENNANDI ÁHUGA Á ÖLLU SEM VIÐ-
KEMUR TÍSKU OG FINNST HENNI MIKILVÆGT AÐ VITA UPP-
RUNA VÖRUNNAR OG HVAÐA EFNI ER Í HENNI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Úr sumarlínu Dries
Van Noten 2015.
Í vetrarlínu Walter
Van Beirendock 2014
gengu módelin niður
sýningarpallana í flík-
um sem stóð á „stop
racism“.
Fataskápur Iris Apfel
er eflaust með þeim
áhugaverðustu.
Halldóra keypti
sér nýlega laus-
sniðinn denim-
samfesting sem er
aðalmálið í sumar.