Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Síða 51
andi siglingu. „Fyrirtækið hét upphaflega
Buri, en ég hafði lengi verið með það í
skúffunni. Síðan ég hætti hjá Norræna kvik-
myndasjóðnum höfum við framleitt tvö verk-
efni.“
Fyrir utan Hrúta hefur Netop Films
framleitt Óla prik, heimildarmynd um Ólaf
Indriða Stefánsson handboltaleikmann. „Ég
er mjög stoltur af Óla priki og finnst það
vel unnin heimildarmynd. Síðan var Hrútar
að sjálfsögðu mikill hvalreki fyrir svona lítið
fyrirtæki. Þetta byrjar mjög vel.“
Aðspurður hvað sé á döfinni hjá Netop
Films segir Grímar best að hugsa um eitt í
einu. Mikil kynningarvinna og eftirmál séu í
vændum í kringum Hrúta.
Einn stærsti iðnaður landsins
„Íslenskur kvikmyndaiðnaður, og skapandi
greinar á Íslandi almennt, er einn stærsti
iðnaðurinn á landinu,“ segir Grímar, að-
spurður um framtíð íslensks kvikmyndaiðn-
aðar, og bætir við að um 20 prósent ferða-
manna sem koma til landsins nefni það sem
ástæðu að hafa séð landið í kvikmyndum
eða sjónvarpi.
„Þetta er rosalega stór bransi. Hrútar er
engan veginn einsdæmi. Við eigum fullt af
góðum myndum og margt hæfileikaríkt fólk,
hvort sem um ræðir leikara, leikstjóra, leik-
myndahönnuði, tónlistarmenn eða hvað sem
er. Ég spái því að skapandi greinar séu á
uppleið á Íslandi, enda mikilvægur iðnaður
og miklir hæfileikar á ferð. Við megum vera
stolt af því.“
Grímar Jónsson skipti út góðri vinnu
og fjárhagslegu öryggi til að elta
drauminn um kvikmyndaframleiðslu.
Ljósmynd/Halldór Kolbeins
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Hrútar fjallar um bræðurna Kidda og
Gumma, sem báðir eru sauðfjárbændur
og búa hlið við hlið í afskekktum dal á
Norðurlandi. Þrátt fyrir að deila landi
hafa þeir ekki talast við í fjóra áratugi,
uns skæð riðuveiki kemur upp í dalnum.
„Meginþemað í myndinni er þögnin milli
bræðranna,“ segir Grímar Jónsson, „og
þegar riðuveikin kemur neyðast þeir til
að tala loksins saman. Það er líka ákveðin
ástarsaga í myndinni, þeir þurfa nefnilega
að snúa saman bökum til að bjarga því
sem þeim er kærast, sem eru kindurnar
þeirra.“
Mikil örvænting grípur um sig í dalnum.
Bræðurnir standa frammi fyrir því að
missa það sem þeim er kærast og grípa til
sinna ráða.
Myndin hefur hlotið gríðarlega jákvæð-
ar viðtökur á Cannes-kvikmyndahátíðinni.
Hún er ein af tuttugu myndum sem keppa
um verðlaunin „Prix Un Certain Regard“
af um fjögur þúsund myndum sem sóttu
um að vera í flokknum.
Grímur Hákonarson fer með leikstjórn
og skrifar handrit. Með aðalhlutverk fara
Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júl-
íusson. Tökur fóru fram á bæjunum Mýri
og Bólstað, sem eru hlið við hlið í Bárð-
ardal á Norðurlandi.
Bræðurnir snúa saman bökum
Bræðurnir neyðast til að snúa saman bökum eftir áratuga þögn sín á milli. Myndinni hefur gengið sérlega vel á Cannes-kvikmyndahátíðinni.