Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Menning
Við erum alltaf að vinna meðsömu persónur sem heitasömu nöfnum og við en búa
í hliðstæðum raunveruleika og eru
kannski aðeins meiri hálfvitar en
við erum í raun og veru,“ segir
Friðgeir Einarsson, meðlimur í
leikhópnum Kriðpleir. Hópinn hef-
ur ekki skort sýningargleðina síðan
fyrsta sýning þeirra, Blokk, var
sett upp fyrir þremur árum og
stefnir nú á að sýna á hinni virtu
nýlistahátíð Steirischer Herbst í
Austurríki, fyrstur íslenskra leik-
hópa.
„Við erum semsagt nýbúnir með
sýninguna Síðbúin rannsókn í
Tjarnarbíó, þar sem sakamál hins
meinta morðingja Jóns Hreggviðs-
sonar var tekið upp á nýjan leik
eftir 330 ára hvíld. Það hefur geng-
ið vel þótt við séum enn ekki vissir
hvort hann hafi drepið mann eða
ekki,“ segir Friðgeir.
Auk hátíðarinnar í Austurríki
mun leikhópurinn troða upp á Cult-
urescapes í Sviss með sýningu sína
„Tiny Guy“, en hátíðin leggur sér-
staka áherslu á íslenska list í ár. Í
Tiny Guy reynir hópurinn að rann-
saka hvaða ómeðvitaða starfsemi í
heilanum hefur raunverulega stjórn
á lífi okkar, og hvort unnt sé að
beisla þessa heilastarfsemi, með
gráthlægilegum niðurstöðum.
Hópinn skipa auk Friðgeirs þeir
Ragnar Ísleifur Bragason og Árni
Vilhjálmsson, sem er e.t.v. best
þekktur fyrir söng sinn í hljóm-
sveitinni FM Belfast. Bjarni Jóns-
son skrifar handrit.
Getið þið aðeins sagt mér frá til-
komu leikhópsins Kriðpleirs?
Friðgeir: „Ég var semsagt að
vinna verk árið 2012 fyrir sviðs-
listahátíðina Lókal, sem hét Blokk
og fjallaði um líf mitt í fjölbýlis-
húsi. Ég bjó þá í fjölbýlishúsi og
fannst það mjög einkennilega
venjuleg upplifun. Á einhverjum
tímapunkti ákvað ég að fá Ragnar
með mér inn. Bjarni Jónsson var
líka mikið að hjálpa mér með
dramatúrgíu og textavinnslu og þá
vorum við orðnir þrír. Í því verki
vorum við byrjaðir að nota okkar
eigin nöfn. Ég lék Friðgeir og
hann var Ragnar og við vorum í
hliðstæðum veruleika, svona alter
ego persónur sem lifa sjálfstæðu
lífi.“
Árni: „Má ég samt taka fram að
ég fór sem áhorfandi á Blokk. Á
ljósmyndarennslinu eru myndir af
mér að hlæja.“
Uppúr þessu varð síðan samstarf
í kringum næstu sýningu hópsins,
Tiny Guy, og Árni fenginn í hlut-
verk manns með alvarlega heilabil-
un.
Árni: „Í þeirri sýningu er ég
með klút á höfðinu mestallan tím-
ann en í Síðbúinni rannsókn tala ég
aðeins meira. Þá er ég líka ekki al-
veg með heilabilun þótt ég sé um
margt ansi takmarkaður.“
Friðgeir: „Árni er alltaf með
minni og minni heilabilun. Ég held
hann verði orðinn bráðgáfaður í
næstu sýningu.“
Hvað fleira einkennir sýningar
Kriðpleirs?
Ragnar: „Við erum að leika okk-
ur með form sem er í grunninn
fyrirlestur sem fer úr böndunum.
Einskonar vandræðafyrirlestur. Til
grundvallar liggur handrit en
óvænt element koma alltaf fyrir og
engar tvær sýningar eru eins.“
Friðgeir: „Það hefur líka verið
einkennandi að persónurnar ætla
sér um of. Við erum engir tauga-
sérfræðingar, einsog við gefum
okkur út fyrir að vera í Tiny Guy,
og við erum þeim mun síður sér-
fræðingar í málum Jóns Hregg-
viðssonar. Persónurnar skortir
hæfileika og áhöld til að takast á
við verkefnið hverju sinni.“
Hvernig gekk ykkur þá að rann-
saka mál Jóns Hreggviðssonar?
Friðgeir: „Við erum náttúrlega
engu nær um hvort hann hafi verið
sekur eða saklaus, en við lærðum
heilan helling og fengum marga
góða menn með okkur í lið, til
dæmis Má Jónsson hjá Árna-
stofnun.“
Árni: „Það er mjög áhugavert að
ímynda sér hvernig týpa hann hef-
ur verið.“
Ragnar: „Hann var annars vegar
algjör fauti og mjög viðskotaillur
þegar hann var kominn í glas en
hefur líka haft einhverja samúð
með sér í liði. Þetta fræga orðalag:
„hvenær drepur maður mann og
hvenær drepur maður ekki mann?“
finnst okkur mjög lýsandi um við-
leitni hans.“
Hvað er á döfinni hjá Kriðpleir?
Friðgeir: „Við erum með nýja
sýningu í bígerð sem ber vinnutit-
ilinn Krísufundur. Hópurinn er í
því verki kominn í krísu með hvert
hans næsta verkefni verður.“
Ragnar: „Við fáum það á heilann
að samfélagið sé í stöðugri þróun
en við séum að dragast aftur úr.
Krísufundur verður vandræðafyr-
irlestur þar sem við leitum að hug-
mynd að næsta verki, en fer að
snúast um okkar eigin krísur og þá
sjálfsvinnu sem við erum í.“
Leikhópurinn Kriðpleir. Myndina prýða þeir Bjarni Jónsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Friðgeir Einarsson og Árni Vilhjálmsson. Hópinn hefur ekki skort sýningargleðina á þriggja ára ferli sínum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
PERSÓNUR SEM ÆTLA SÉR UM OF MEÐ GRÁTBROSLEGUM NIÐURSTÖÐUM
Fyrsti íslenski leikhópurinn
á virtri hátíð
MIKIL GRÓSKA HEFUR ÁTT SÉR STAÐ UNDANFARIN ÁR HJÁ SJÁLFSTÆÐUM ÍSLENSKUM LEIKHÓPUM OG HÓPURINN KRIÐPLEIR ER ENGIN UNDANTEKN-
ING ÞAR Á. BRÁÐFYNDNIR „VANDRÆÐAFYRIRLESTRAR“ HÓPSINS HAFA VAKIÐ LUKKU HÉRLENDIS OG ERU NÚ KOMNIR Í ÚTRÁS ÚT Í EVRÓPU.
Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is
Hópurinn er engu nær um sekt eða sakleysi Jóns Hreggviðssonar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári