Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Page 59
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Í bókinni Ég á teppi í þúsund lit-
um segir Anne B. Ragde sögu
móður sinnar Birte sem lést
eftir erfið veikindi árið 2012.
Silja Aðalsteinsdóttir þýðir
bókina.
Í tilkynningu með bókinni
segir að Birte eigi erfitt með að
sýna væntumþykju en geti töfr-
að fram mikilfenglegar máltíðir
úr tómu búri. Þrátt fyrir að
vera góðum gáfum gædd hafi
hún ekki fengið að njóta hæfi-
leika sinna í lífinu.
Meðal þekktra bóka eftir
sama höfund má nefna bæk-
urnar Berlínaraspirnar og Kuð-
ungakrabbarnir.
Ný bók frá höf-
undi Berlín-
araspanna
Meira en 150 rithöfundar hvaðanæva úr
heiminum hafa bæst á lista fólks sem for-
dæmir morð á þremur bloggurum í Bangla-
dess það sem af er árinu. Stjórnvöld í landinu
eru hvött til að tryggja að þessir hörmulegu
atburðir muni ekki endurtaka sig og að ger-
endurnir verði dregnir fyrir dóm. Í hópi höf-
undanna eru Margaret Atwood, Salman
Rushdie, Yann Martel og Colm Tóibín.
Booker-verðlaunahafinn Martel kveðst í
samtali við breska blaðið The Guardian
bjartsýnn á að bréfið hafi áhrif enda sé sjald-
gæft að skorað sé á stjórnvöld í Bangladess
með þessum hætti. Bréf af þessu tagi séu
stöðugt í umferð á Vesturlöndum og stjórn-
málamenn löngu orðnir ónæmir fyrir þeim.
„Ég bind vonir við að þetta bréf skjóti stjórn
Sheikh Hasina raunverulega skelk í bringu,“
segir Martel.
Booker-verðlaunahafinn Yann Martel hefur
áhyggjur af málfrelsinu í Bangladess.
Getty Images
MÓTMÆLA MORÐ-
UM Í BANGLADESS
Drög að endurminningum eins af ris-
um kvikmyndasögunnar, Orsons
Welles, fundust á dögunum í skjölum
sem sambýliskona hans til margra
ára, Oja Kodar, sendi háskólanum í
Michigan. Þrír áratugir eru síðan leik-
stjórinn sálaðist.
Titill téðra endurminninga mun
vera Játningar eins manns bands
(Confessions of a One-Man Band) en
þar útskýrir Welles víst hvers vegna
honum tókst ekki að ljúka við allmargar kvikmyndir á ferlinum en hann var löngum upp á kant
við ráðamenn í Hollywood.
Í endurminningunum, sem eru vélritaðar með handskrifuðum athugasemdum, fjallar Welles
meðal annars um vin sinn og óvin á köflum, Ernest Hemingway, eiginkonu sína, Ritu Hayworth
og kvikmyndagerðarmanninn D.W. Griffith.
Að sögn þeirra sem skoðað hafa handritið er það hvergi nærri birtingarhæft enda aðeins
um drög að ræða. Það breytir samt ekki því að fræðimenn sem hafa áhuga á lífi Welles þykjast
hafa himin höndum tekið.
JÁTNINGAR
WELLES
Orson Welles í sinni frægustu mynd, Citizen Kane.
Íris Marelsdóttir, sjúkraþjálfari
og leiðsögumaður, er höfundur
bókarinnar Gönguleiðir að
Fjallabaki sem er nýútkomin hjá
Máli og menningu.
Í bókinni er sagt frá 12 fjöl-
breyttum og spennandi göngu-
leiðum. Með hverri þeirra er
birt kort og ýmsar gagnlegar
upplýsingar fyrir ferðalanga.
Leiðirnar í bókinni eru flestar
tveggja daga gönguferðir og
eiga það sameiginlegt að liggja
um það svæði sem kallað er
„að Fjallabaki“ sem er sá hluti
hálendis Íslands sem er norðan
Mýrdalsjökuls norður til Land-
mannalauga og Hrauneyja.
Á þessu svæði er fjölbreytni
náttúrunnar engu lík. Bókin
ætti að vera fengur fyrir nátt-
úruelskandi fjallageitur sem
vilja fá nýjar hugmyndir að helg-
arferðum með fjölskyldu og
vinum.
Kærkomnar
gönguleiðir
Landmannalaugar eru nátt-
úruperla. Í bókinni eru nokkrar
gönguleiðir með viðkomu þar.
Morgunblaðið/RAX
Skutlur og
spennandi
göngur
MAÍBÆKUR
LÍNA LANGSOKKUR VARÐ SJÖTUG Í VIKUNNI EN
ÞESSI SÍUNGA SÖGUPERSÓNA MUN GLEÐJA
BÖRN OG FULLORÐNA UM ÓKOMIN ÁR. BÆK-
URNAR UM LÍNU ERU EKKI NÝJAR AF NÁLINNI EN
EIGA ALLTAF ERINDI. STERKAR KONUR HALDA
ÁFRAM AÐ VERA YRKISEFNI, EINS OG BÓK ANNE
B. RAGDE UM MÓÐUR SÍNA ER DÆMI UM.
Út er komin á íslensku ný spennu-
saga eftir norska metsöluhöfundinn
Jo Nesbø. Sagan fjallar þó ekki um
þekktustu persónu höfundar, lög-
reglumanninn Harry Hole. Sögu-
hetja þessarar nýútkomnu kilju,
Blóð í snjónum, er leigumorðinginn
Ólafur. Málin flækjast þegar hann
verður ástfanginn af konu sem hon-
um hefur verið falið að koma fyrir
kattarnef. Bjarni Gunnarsson þýddi.
Nýr spennu-
tryllir frá Nesbø
Skutlubók Villa eftir Vilhelm Anton Jónsson inni-
heldur eins konar uppskriftir að 17 skemmti-
legum útgáfum af hinni klassísku skutlu sem hægt
er að föndra úr einu blaði.
Vísinda-Villi hefur verið óþreytandi undanfarin
ár að leiða börn inn í heim vísinda með til-
raunabókum sínum. Í þessari bók fá börnin að
spreyta sig á því að brjóta blað til að úr verði
skutla. Skutlurnar eru misflóknar. Hver skutla
hefur sitt nafn og ljósmynd af henni fullgerðri er
birt í bókinni ásamt skýrum leiðbeiningum. Fyrir
þá sem vilja litríkar skutlur fylgir mynstraður
pappír til skutlugerðar. Fyrsta kastið er þó
kannski vissara að nota bara hvítan prent-
arapappír, þar til skutlutæknin er komin á hreint.
Misflóknar skutlur
í fallegri bók
BÓKSALA 13.-19 . MAÍ
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Skutlubók VillaVilhelm Anton Jónsson
2 Ég á teppi í þúsund litumAnne B. Ragde
3 Ekki snúa afturLee Child
4 Sætmeti án sykurs og sætuefnaNanna Rögnvaldardóttir
5 Rachel fer í fríMarian Keyes
6 MörkÞóra Karítas Árnadóttir
7 Breyttur heimurJón Ormur Halldórsson
8 Iceland in a BagÝmsir
9 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson
10 HilmaÓskar Guðmundsson
Kiljur á íslensku
1 Ég á teppi í þúsund litumAnne B. Ragde
2 Ekki snúa afturLee Child
3 Rachel fer í fríMarian Keyes
4 HilmaÓskar Guðmundsson
5 Gleymdu stúlkurnarSara Blædel
6 Britt - Marie var hérFredrik Backman
7 AfturganganJo Nesbø
8 NáðarstundHannah Kent
9 BiðlundNora Roberts
10 Kamp KnoxArnaldur Indriðason