Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2015 Næstkomandi mánudag, annan í hvítasunnu, milli kl. 10:00 og 13:00 fer fram svokallað Stelpugolf á svæði Golf- klúbbs Kópavogs og Garðabæjar, GKG, við Vífilsstaði. Stelpugolf var fyrst haldið með sambærilegum hætti í fyrra af nemum Golfkennaraskóla PGA og tókst virki- lega vel til, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Golfsambandi Íslands, og ljóst að mikil eftirspurn er eft- ir degi sem þessum á meðal kvenkylfinga á öllum aldri. Síðast komu hátt í fimm hundruð konur og sóttu sér ókeypis kennslu í íþróttinni. Útskriftarnemar Golfkenn- araskólans ætla að halda uppteknum hætti og halda verkefninu gangandi en markmið þess er að fjölga stelp- um í golfi. Kennt verður á sex stöðvum, pútt, vipp, innáhögg, fullt högg, spil og þrautir. „Golfsamband Íslands hvetur stelpur á öllum aldri til að koma við á Vífilsstaðavelli og nota þetta tækifæri til að bæta tæknina undir traustri leiðsögn golfkennara og jafnframt að bjóða vinkonum, dætrum eða mæðrum sem ekki eru í golfklúbbi með sér á Stelpugolf 2015. Allir eru velkomnir,“ segir ennfremur í fréttatilkynningunni. Golf er fyrir stelpur á öllum aldri. Morgunblaðið/Brynjar Gauti GOLFSAMBAND ÍSLANDS BREGST VIÐ EFTIRSPURN Stelpugolf snýr aftur Skoska poppstjarnan Rod Stewart stal senunni þegar fegurðar- drottning Íslands var krýnd á veitingahúsinu Broadway í Reykjavík í lok maí 1985. Stewart var sérstakur gestur um kvöldið en ekki stóð til að hann træði upp. Þegar Björgvin Halldórsson byrj- aði að syngja með hljómsveit Gunnars Þórðarsonar stóðst kapp- inn á hinn bóginn ekki mátið og snaraði sér upp á svið. Tóku þeir Björgvin lagið saman og ætlaði allt um koll að keyra í húsinu, að því er fram kom í Morgunblaðinu. Mikið var lagt í skemmtiatriðin þetta kvöld en Kristján Jóhanns- son óperusöngvari kom líka fram. Tvítug stúlka úr Reykjavík, Halla Bryndís Jónsdóttir, var kjörin fegurðardrottning Íslands 1985 og Helga Melsteð, sautján ára, var við sama tækifæri krýnd fegurðardrottning Reykjavíkur. Í öðru sæti í keppninni Fegurðar- drottning Íslands varð 22 ára göm- ul stúlka úr Garðabæ, Hólmfríður Karlsdóttir, sem síðar sama ár átti eftir að hreppa titilinn Ungfrú heimur. GAMLA FRÉTTIN Stewart stal senunni Björgvin Halldórsson og Rod Stewart syngja saman lagið „Sweet Little Rock & Roller“ á veitingastaðnum Broadway fyrir réttum þrjátíu árum. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Þröstur Emilsson fjölmiðlamaður J.K. Simmons kvikmyndaleikari Gunnar Guðjónsson rafeindavirki BAILEYS-TERTA SÍMI: 588 8998 RÓSATERTA MEÐ FRÖNSKU BANANA-SMJÖRKREMI Kökur og kruðerí að hætti Jóa Fel GULRÓTARTERTA BROSKALLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.