Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 2
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FERÐAÞJÓNUSTA Þessir ferðamenn virtu fyrir sér Hallgrímskirkju á
föstudaginn langa. Það er af sem áður var þegar allt var lokað á þess-
um degi. Í gær voru til að mynda ýmsir veitingastaðir, kaffihús og
matvörubúðir opnar. Einnig var hægt að fara í sund í þremur sund-
laugum í borginni og verður það líka hægt á páskadag. Þeir ferða-
menn og heimamenn sem dvelja í borginni um páskana þurfa því ekki
að hafa áhyggjur. - vh
Það er af sem áður var, víða er opið um páskahelgina:
Páskastemning í höfuðborginni
FÖSTUDAGURINN LANGI Mikið af ferðamönnum er á landinu og láta þeir lokanir
um páskana lítið á sig fá. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SAMFÉLAG „Ef málshættirnir eru
með neikvæðum boðskap, þá er
fólk stundum óánægt og vill kenna
okkur um,“ segir Finnur Geirsson,
forstjóri Nóa Síríus, og segir máls-
hætti sem hafa verið settir í páska-
egg frá upphafi framleiðslu þeirra
stundum umdeilda. „Fólk hefur
orðið mjög óhresst og kennt okkur
um að eyðileggja fyrir því páskana.
Sumir vilja bara hafa málshætti
skemmtilega, uppörvandi og á
jákvæðum nótum. En við höfum
talið rétt að halda okkur við gömlu
málshættina sem eru jafnan spak-
mæli sem vekja fólk til umhugs-
unar um lífið og tilveruna.“
Finnur segist hafa gaman af því
að halda í þennan gamalgróna sið
og segir að þótt ungt fólk skilji ekki
lengur marga málshætti, þá geti
það flett þeim upp og leitað svara.
Sölvi Sveinsson, fyrrverandi
skólastjóri, hefur skrifað fjöl margar
greinar og bækur um íslenskar mál-
hefðir, orðtök og málshætti. Hann
segir íslenska tungu auðuga af
málsháttum þótt þekking okkar og
skilningur á merkingu þeirra fari
minnkandi. Hann er hrifinn af þeim
sið að kenna ungu fólki málshætti
gegnum páskaegg.
„Ég held að sumpart eigi það eðli-
legar skýringar að skilningur er
minni, sem eru þá þær að allir
gamlir og góðir málshættir eru
vaxnir upp úr samfélagi sem er
gjörólíkt okkar, gamla bændasam-
félaginu.
Hins vegar er líka það að fólk
les hreinlega miklu minna en það
gerði. Það veldur því aftur að fólk
notar málshætti af minna öryggi en
forðum daga,“ segir Sölvi og minn-
ist þess að ömmur sínar hafi átt
málshætti um öll atvik sem upp á
komu.
„Málshættir eru krydd í tungu-
taki hvers manns. Það er gott að
geta brugðið fyrir sig blæbrigða-
ríkum málsháttum, sem eru svo
hnitmiðaðir að þeir segja mjög
mikið í einni setningu eða einni
málsgrein.“
Í málsháttum eru vanalega sann-
indi um lífið og tilveruna. Sölvi
segir marga þeirra fjalla um börn,
uppeldi og uppvöxt og líklega hafi
þeir verið samdir af konum. „Ég
man eftir einum málshætti sem er
eiginlega varúð: Skæri gera barnið
blint en hnífur eineygt, og öðrum,
barnið vex en brókin ekki.“
En er sá siður að semja máls-
hætti liðinn undir lok? Sölvi seg-
ist halda að Íslendingar glæði
málið lífi með öðrum hætti í dag.
„Það eru alltaf að verða til ný orð-
tök, til er eldgamalt orðtak: Eng-
inn hefur átt fyrr en misst hefur.
Honum hefur verið snúið í: Enginn
veit hvað hann átt hefur fyrr en
flutt hefur, sem er nokkuð skondið.
Menn eru sífellt að búa til ný orð-
tök sem gefa atvikum úr daglegu
lífi nútímamanna óeiginlega merk-
ingu.“ kristjanabjorg@frettabladid.is
Kvarta yfir neikvæð-
um málsháttum
Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Síríus, segir sármóðgaða viðskiptavini eiga það til
að hringja og kvarta yfir neikvæðum málsháttum í páskaeggjum sínum. Sölvi
Sveinsson, fyrrverandi skólastjóri, segir málshætti krydd í tungutaki Íslendinga.
GAMALGRÓINN SIÐUR Málshættir í páskaeggjum hafa vakið landann til umhugs-
unar um lífið og tilveruna frá því fyrir 1940. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er
gott að geta
brugðið fyrir
sig blæbrigða-
ríkum máls-
háttum, sem
eru svo hnit-
miðaðir að þeir segja mjög
mikið í einni setningu eða
einni málsgrein.
Sölvi Sveinsson,
fyrrverandi skólastjóri.
Salur borgarstjórn-
ar var aðeins skip-
aður konum þann
31. mars. Tilefnið
var 100 ára afmæli
kosningaréttar
kvenna á Íslandi.
„Þetta var einkar
hátíðleg stund,“
segir Sóley Tómas-
dóttir, forseti
borgarstjórnar.
Bara konur
FIMM Í FRÉTTUM: SUMARSTÖRF OG FYRIRKOMULAG TÚRISMANS
Eygló Harðardóttir, félags-
og húsnæðismálaráð-
herra, ákvað að verja
150 milljónum króna úr
Atvinnuleysistrygginga-
sjóði til að standa straum
af kostnaði við átaks-
verkefni til að skapa
störf fyrir náms-
menn í sumar hjá
opinberum stofn-
unum og sveitar-
félögum, líkt
og gert hefur
verið sl. fimm
sumur.
Edward H. Huijbens ,
prófessor við Háskólann
á Akureyri, segir að aukn-
um straumi ferðamanna
til landsins verði að
mæta með fleira starfs-
fólki sem sækja verði til útlanda.
Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir var ein
þeirra sem féllu fyrir
aprílgabbi Fréttablaðsins.
Að auki vakti myndband
unnið úr Kastljósvið-
tali við hana mikla lukku á vefnum í
vikunni.
Framkvæmdastjóri Sam-
taka fyrirtækja í sjávarút-
vegi, Kolbeinn Árnason,
var óánægður með fyrir-
ætlan ríkisstjórnarinnar
um að hækka veiðigjald á
makríl um 200 prósent.
Fimleikafélag Hafnar-
fjarðar vinnur nú að
byggingu tveggja nýrra
knatthúsa. Byggingarnar
eru keyptar af finnsku
fyrirtæki sem nefnist
Best-Hall. Umboðsmaður fyrirtækisins
á Íslandi er Jón Rúnar Halldórsson, for-
maður stjórnar knattspyrnudeildar FH.
BJÖRGUN Áhöfn varðskipsins Týs bjargaði í gær 320
flóttamönnum sem voru bjargarlausir á fiskibáti á
Miðjarðarhafi. Báturinn var um 30 sjómílur norður
af Líbíu og þrír aðrir bátar voru á svæðinu.
Neyðarkall barst frá bátnum snemma í gærmorg-
un, samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Flóttamennirnir voru allir færðir um borð í Tý sem
sigldi svo áleiðis til Pozzallo á Sikiley en áætlað er
að varðskipið komi þangað síðdegis í dag.
Áhöfnin á Tý hlúði að fólkinu sem var nokkuð ótta-
slegið eftir hrakningana. Í hópnum er fjöldi barna
og það yngsta rétt um ársgamalt. Þá eru einnig
nokkrar konur í hópnum, þar af tvær barnshafandi.
Aldrei hafa fleiri flóttamenn verið teknir um borð
í íslenskt varðskip en áhöfn Týs hefur tekið þátt í
fjölmörgum björgunaraðgerðum á svæðinu síðustu
mánuði.
Talsverðar annir hafa verið á þessu svæði undan-
farið samkvæmt Landhelgisgæslunni. Á fimmtudag
tók Týr þátt í annarri aðgerð þar sem bátur með
flóttafólki sneri við til Líbíu eftir að hafa sent út
neyðarkall á svipuðum slóðum og báturinn var á í
gær. Áhöfn Týs mun sinna leit og björgun og landa-
mæragæslu á þessu svæði fram í miðjan maí en ráð-
gert er að skipið komi til Ísland í lok maí.
- vh
Varðskipið Týr tók þátt í björgunaraðgerðum á Miðjarðarhafi á fimmtudag:
Björguðu 320 flóttamönnum
Á STJÓRNLAUSUM FISKIBÁT Flóttamennirnir sem áhöfn Týs
bjargaði voru á stjórnlausum fiskibát. Hér sjást flóttamenn
sem áhöfn skipsins bjargaði í annarri björgun. MYND/TÝR
SIMBABVE Joyce Mujuru, fyrrver-
andi varaforseti Simbabve, hefur
verið rekin úr flokknum Zanu-PF,
sem er flokkur forsetans Roberts
Mugabe sem setið hefur á stóli
forseta í 35 ár.
Mujuru þótti eitt sinn líkleg til
að taka við stjórntaumum í land-
inu af Mugabe en lenti upp á kant
við eiginkonu hans. Í desember
var hún rekin úr embætti vara-
forseta og sökuð um að ætla að
ráða forsetann af dögum. Grace,
49 ára eiginkona Mugabes, hefur
tekið við flestum verkefnum Muj-
uru innan flokksins. - jóe
Fyrrverandi varaforseti rekinn:
Hrakin á brott
úr flokki forseta
MENNING Stúdentaleikhúsið frum-
sýnir leikritið MIG þann 10.
apríl. Leikhópurinn samdi verkið
í samstarfi við Öddu Rut Jóns-
dóttur leikstjóra.
Stúdentaleikhúsið hefur verið
starfrækt í átta áratugi. Á þeim
tíma hafa margir þjóðþekktir
leikarar spreytt sig í uppsetning-
um leikfélagsins.
Þá hefur félagið unnið til leik-
listarverðlauna á innlendum og
erlendum vettvangi.
Verkið verður sýnt að Strand-
götu 75 og almennt miðaverð er
2.500 krónur. - ie
Leikhúsgleði í Hafnarfirði:
Stúdentar
kynna MIG
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
Vor í Barcelona
30. apríl - 3. maí
Verð frá 99.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann í tvíbýli á hótel Ayre Gran Via með morgunverði
*Verð án Vildarpunkta 109.900 kr.
Fararstjóri er Kristinn R. Ólafsson
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair
VEÐUR
8° 9°
6°
6°
12
6 6
8
6
Sæmilegasta veður víða um land og
yfirleitt rauðar hitatölur. Vindur verður
ekki til ama, en víða verður rigning eða
súld með köflum.
SJÁ SÍÐU 44
4°
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
8
-0
B
F
C
1
7
6
8
-0
A
C
0
1
7
6
8
-0
9
8
4
1
7
6
8
-0
8
4
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K