Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 56
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 4. APRÍL 20154
MARGIR KOSTIR ÞESS AÐ FERÐAST FYRIR HEILSUNA
Frítími er mikilvægur heilsunni, að eiga tíma sem hver og einn ráðstafar sjálfur þar sem hægt er að upp-
fylla drauma, þrár og þarfir. Rannsóknir hafa sýnt fram á að fólk sem er hamingjusamt lifir lengur. Þess
vegna er gott að ferðast, bæði til skemmtunar og fyrir heilsuna.
TÝNDA BORGIN
Í PERÚ
Forna Inkaborgin Choque-
quirao í Perú fellur oft í skugga
Machu Picchu sem er þekktasta
kennileiti Perú og það vinsæl-
asta á meðal ferðamanna.
Færri þekkja borgina Choque-
quirao sem er þó mun stærri
en Machu Picchu. Ástæðan er
þó skiljanleg þar sem gangan
að borginni fornu er ein sú allra
erfiðasta í Perú.
Ganga þarf 18 km frá bænum
Cachora að fjallinu Capuliyoc.
Þaðan er gengið niður að Playa
Rosalinas þar sem gist er yfir
nótt. Göngumenn þurfa síðan
að fara yfir Apuímac-ána og
ferðast 8 km í bröttu fjallendi
að tjaldstæði nærri rústunum.
Næsta morgun tekur við tveggja
kílómetra þramm að rústunum
sem eru í 3.100 metra hæð yfir
sjávarmáli. Gangan fram og til
baka tekur því sex til sjö daga.
Gestafjöldinn er lítill. Þegar mest
lætur koma 30 manns á dag til
borgarinnar. Til viðmiðunar er
gestafjöldi í Machu Picchu 2.500
manns á dag.
Talið er að borgin hafi verið
byggð um svipað leyti og
Machu Picchu, í kringum 1445.
Borgin er stór og enn eru að
finnast nýjar fornminjar.
● Ferðalög víkka sjóndeildarhringinn
og hjálpa fólki við að sjá heiminn í
öðru ljósi.
● Ferðalög gera fólk sveigjanlegra.
Sama hversu vel skipulagt ferðalagið
er þá kemur alltaf eitthvað upp á.
Aðstæður krefjast þess þá að fólk
endurskipuleggi sig og geri aðrar
ráðstafanir.
● Ferðalög gera fólki kleift að setja
hluti í samhengi. Flestum finnst
þeirra eigin vandamál vera þau
verstu í heimi, þar til þeir sjá með
eigin augum að aðrir þjást meira.
● Ferðalög hvetja til hreyfingar. Flest
ferðalög fela í sér skoðunarferðir,
gönguferðir eða jafnvel fjallgöngur.
● Á ferðalögum getur fólk smakkað
hollan mat sem það hefur ekki
bragðað áður. Þannig gæti fólk
fengið önnur næringarefni í kropp-
inn en það er vant og notið góðs af.
● Ferðalög auka samveru fólks.
Þegar fólk ferðast saman, hvort sem
það eru vinir eða fjölskylda, verður
hópurinn nánari við að deila sömu
reynslu og upplifun.
TÝNT VEGABRÉF Á ER
LENDRI GRUNDU
Á vef Utanríkisráðuneytisins segir
að um tvo kosti sé að velja ef
vegabréf týnist eða því er stolið á
ferðalagi erlendis.
Hægt er að leita til sendiskrif-
stofu eða ræðismanna Íslands
og fá útgefið nýtt ferðaskilríki en
sendiráð sem búa yfir rafrænum
umsóknarbúnaði geta tekið við
umsóknum um nýtt vegabréf.
Þar sem slíkur búnaður er ekki
til staðar er gefið út neyðarvega-
bréf, handskrifað ferðaskilríki sem
gildir að hámarki í 12 mánuði.
www.utanrikisraduneyti.is
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
Frí þráðlaus internet -
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir
Hagkvæmur kostur Umhverfisvænt
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
main@re.is • www.re.is
Skannaðu strikamerkið
með snjallsímanum og
kynntu þér áætlunina.
Kauptu miða núna á
www.flugrutan.is
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 3.500 kr.
1.750 kr.*
FYRIR AÐEINS
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
A
-5
7
8
C
1
7
6
A
-5
6
5
0
1
7
6
A
-5
5
1
4
1
7
6
A
-5
3
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K