Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 4
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 30.3.2015 ➜ 5.4.2015 Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Verð frá 4.190.000 kr. 58,7% fjölgun var á störfum í ferðaþjónustu milli áranna 2008 og 2014. 45 ára móðir fékk ekki að sækja um rafræn skilríki hjá Auðkenni fyrir dóttur sína þar sem hún var ekki „eldri forráðamaður“. 79.000 GESTIR sóttu sinfóníutónleika á síðasta ári. 22 þingfundir eru eftir fram að sumarfríi þing- manna. 4.500 máltíðir framleiðir og selur eldhús Landspítalans á dag. 800 manns eru á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík. voru sigurtölur íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Kasakstan. 28 KARLAR OG AÐEINS 9 KONUR gegna starfi sendiherra og sendifulltrúa. BYGGÐAMÁL 90 störf verða flutt á Norðvesturland auk þess sem 40 ný opinber störf verða til í lands- hlutanum, langflest þeirra í Skaga- firði, ef tillögur landshlutanefndar fyrir Norðurland vestra ná fram að ganga. Nærri eitt hundrað þess- ara starfa verða í Skagafirði, sam- kvæmt tillögum nefndarinnar. Áður hefur verið greint frá tveimur liðum í skýrslu lands- hlutanefndarinnar í fjölmiðlum; hugsanlegum flutningi heima- hafnar varðskipa Landhelgisgæsl- unnar til Sauðárkróks og flutningi höfuðstöðva RARIK til Skaga- fjarðar. Fréttablaðið hefur nú skýrslu nefndarinnar undir höndum. Í henni eru sett- ar fram 25 til- lögur um flutn- ing opinberra starfa í lands- hlutann sem og hugmyndir um ný opinber störf sem geti orðið til í landshlutanum. Stefán Vagn Stefánsson, oddviti Framsóknarflokksins í Skagafirði og formaður nefndarinnar, segir allar þær tillögur sem birtast í skýrslunni vera framkvæman- legar. Skýrslan sé nú til meðhöndl- unar í forsætisráðuneytinu og bíði afgreiðslu ríkisstjórnar. „Við vonum að sem flestar af þessum tillögum verði að veruleika. Lands- hlutinn hefur í langan tíma verið í mikilli varnarbaráttu. Við höfum einnig séð að verkefni hafa oft og tíðum ekki ratað til landshlutans. Það er síðan forsætisráðuneytis- ins að meta þær tillögur sem við komum með. Ég á svo von á því að niðurstaða fáist fljótlega.“ Auk Stefán Vagns sátu í nefnd- inni Héðinn Unnsteinsson frá forsætisráðuneytinu, Sigríður Svavarsdóttir frá sveitarfélaginu Skagafirði, Unnur Valborg Hilm- arsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, og Valgerður Hilmars- dóttir, forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar. Ásmundur Einar Daðason, aðstoðarmaður forsæt- isráðherra, starfaði einnig með nefndinni. Fram kemur í skýrslunni að markmiðið sé að efla byggð á Norðurlandi vestra. Bent er á leið- ir um hvernig stuðla megi að auk- inni fjárfestingu á svæðinu, fjölga atvinnutækifærum og stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Erfitt er að henda reiður á kostn- aði við þessar tillögur nefndar- innar. Sautján verkefni af 25 eru metin á um 370 milljónir króna, sem kæmi úr ríkissjóði. Þessar til- lögur eru almenn verkefni sem og verkefni sem fela í sér sköpun um 29 stöðugilda. Til samanburðar er nýlegur ívilnunarsamningur hins opin- bera við Matorku metinn á um 425 milljónir króna. Átta tillögur nefndarinnar eru þannig að um er að ræða flutning opinberra starfa inn í landshlut- ann frá öðrum svæðum, að mest- um hluta frá höfuðborgarsvæð- inu. Þar er um að ræða tæplega 90 stöðugildi. Segir í inngangi skýrsl- unnar að erfitt sé að meta kostnað við þær. Kostnaður myndi að öllum líkindum aðeins falla til við flutn- ing starfanna en eftir það ætti árlegur kostnaður að vera svipað- ur og áður. sveinn@frettabladid.is Leggja til að 130 opinber störf flytjist til Norðurlands vestra Skýrsla Landshlutanefndar fyrir Norðurland vestra var lögð fyrir ríkisstjórn þann 12. desember síðastliðinn. Í tillögum nefndarinnar eru lagðar fram 25 hugmyndir um fjölgun opinberra starfa í landshlutanum. SAUÐÁRKRÓKUR Lagt er til að um eitt hundrað þessara starfa verði staðsett í Skagafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETURSTEFÁN VAGN STEFÁNSSON ➜ 17 verkefni af 25 í skýrslu Landshlutanefndar eru metin á um 370 milljónir króna sem kæmu úr ríkissjóði. FRAKKLAND Sex þeirra sem lifðu af gíslatökuna í París í byrjun árs hafa kært sjónvarpsstöðvar í land- inu fyrir fréttaflutning af málinu. Lögmaður fólksins segir að fréttaflutningurinn hafi stefnt lífi skjólstæðinga sinna í voða. „Að upplýsa um það í beinni útsendingu að fólk feli sig í kæli fyrir vopnuðum manni sýnir dóm- greindarleysi,“ segir lögmaðurinn Patrick Klugman. Ahmedi Coulibaly myrti fjóra áður en hann var felldur af lög- reglu. Tveimur dögum áður féllu tólf í árás á ritstjórn tímaritsins Charlie Hebdo. - jóe Gíslar kæra sjónvarpsstöðvar: Kærðar fyrir fréttaflutning DÓMSMÁL Réttarfarsnefnd gerir alvar legar athugasemdir við tillögur um breytingar á fyrirkomulagi við skipan dómara við Hæsta- rétt Íslands. Að mati nefndarinnar færu þær í bága við meginsjónarmið um skipan dómara sem fram hafa komið hjá alþjóðlegum stofnunum og í reglum annarra ríkja. Innanríkisráðherra skipaði nefnd árið 2013 sem falið var að semja reglur um millidómstig og fyrir- komulag við skipan dómara. Innanríkisráðherra skilaði niðurstöðum nefndarinnar í síðasta mánuði en í þeim tillögum er meðal annars lagt til að veita ráðherra aukið vald við skipan dómara. Innanríkis- ráðherra óskaði eftir umsögn réttarfarsnefndar um tillögurnar, en nefndin hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar á sviði réttarfars. Réttarfarsnefnd vísar til tilmæla ráðherra- nefndar Evrópuráðsins um sjálfstæði dómara. Þar kemur fram að ákvörðun um skipan dómara skuli vera byggð á lögbundnum hlutlægum sjónarmiðum og að það yfirvald sem taki slíka ákvörðun skuli vera óháð bæði ríkisstjórninni og löggjafarvaldinu. Þá telur réttarfarsnefndin að tillagan sé að mestu órökstudd og sýni ekki fram á fullnægjandi forsendu þess að komið verði á millidómstigi á Íslandi. - gag / srs Réttarfarsnefnd gagnrýnir tillögur um skipan hæstaréttardómara: Sjálfstæði dómara yrði minna HÆSTIRÉTTUR Tillögurnar eru ekki í takt við reglur nágrannaríkja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JEMEN Kínverski flotinn hefur flutt 225 erlenda ríkisborgara og um 600 kínverska ríkisborgara frá hafnarborginni Aden í Jemen. Kínversk yfirvöld fullyrða að þetta sé í fyrsta sinn sem kín- verski herinn flytur aðra ríkis- borgara en kínverska frá hættu- svæðum. Átökin í Jemen hafa verið að færast í aukana en uppreisnar- menn Houthi-hreyfingarinnar sækja sífellt meira fram gegn stjórnarhernum. - srs Kínverski flotinn í Aden: Kínverjar flytja fólk frá Jemen ÍKLÆDD ÁRÓÐRI Loftárásum Sádi- Araba í Jemen er mótmælt víða. AFP/ MOHAMMED HUWAIS 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 8 -9 B 2 C 1 7 6 8 -9 9 F 0 1 7 6 8 -9 8 B 4 1 7 6 8 -9 7 7 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 8 8 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.