Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 52
FÓLK|HELGIN
KATRÍNARTÚNI 12 WOWTRAVEL.IS WOWTRAVEL@WOWTRAVEL.IS
LÍFIÐ ER LJÚFT
DRAUMAFERÐ
TIL GARDA
VATNSINS
Frá: 159.900 kr.
INNIFALIÐ: Flug með sköttum og gjöldum,
akstur til og frá flugvelli, 5 kg í handfarangur,
gisting í 7 nætur á Park Hotel Oasi með 1/2 fæði
og íslensk fararstjórn með Lilju Hilmarsdóttur
Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla
vinsælda og Gardavatnið, stærsta stöðuvatn
Ítalíu þar sem náttúrufegurðin er engu lík
Verð á mann í tvíbýli.Tímabil: 16. til 23. júní 2015
travel
Fyrr í vikunni hlaut mat-reiðslubók Gunnars Karls Gíslasonar, matreiðslu-
meistara á Dill Restaurant, og
Jody Eddy rithöfundar matar-
bókaverðlaun Alþjóðasambands
matreiðslumeistara í flokki al-
þjóðlegra matreiðslubóka. Bókin,
sem ber heitið North: The New
Nordic Cuisine of Iceland, tók
tvö ár í smíði og inniheldur sögu
veitingastaðarins Dill
ásamt uppskrift-
um þaðan
en ekki síður
ítarlega um-
fjöllun um þá
góðu birgja og
framleiðendur
sem veitingastað-
urinn hefur skipt
við undanfarin ár.
„Draumur minn
var alltaf að gera
óhefðbundna mat-
reiðslubók þar sem
áherslan væri ekki síður á sam-
starfsfélaga okkar sem alla tíð
hafa haldið sterkt í íslenskar
hefðir. Þannig er matreiðslubókin
blanda af skemmtilegum upp-
skriftum, fróðleik og ekki má
gleyma öllum þeim fallegu lands-
lagsmyndum sem prýða bókina.“
Kveikjuna að matreiðslubók-
inni má rekja til samstarfs höf-
undanna fyrir nokkrum árum.
„Jody starfaði sem ritstjóri hjá
ART Culinary sem var að skrifa
grein um íslenska veitingastaði.
Dill kom þar við sögu og hún
reyndist hrifin af staðnum. Stuttu
síðar hafði hún samband og
spurði mig hvort við vildum vera
með í matreiðslubók þar sem
nokkrir ólíkir veitingastaðir áttu
efni. Við vinnslu hennar sátum
við yfir spjalli eitt kvöldið þar
sem hún spurði mig hvort ég
hefði áhuga á að gera eigin mat-
reiðslubók. Ég sagði henni frá
hugmynd minni sem ég taldi þá
of dýra fyrir íslenska markaðinn
en hún stakk upp á því að gefa
hana út erlendis í staðinn.
Hugmyndin kom mér í
opna skjöldu enda hafði
mér aldrei dottið það
í hug. Úr varð að við
ákváðum að gefa út
bók saman og vinna
við gerð hennar hófst
fljótlega. Í kjölfarið
fengum við okkur
umboðsmann í
Bandaríkjunum og
settum allt í gang.“
FRAM ÚR VONUM
Jody kom fimm sinnum til lands-
ins ásamt ljósmyndara bókar-
innar og ferðuðust þau þrjú að
sögn Gunnars tvo hringi kringum
landið. „Við tókum mörg viðtöl
við framleiðendur víða um land
við iðju sína en líka mjög margar
fallegar landslagsmyndir. Dill hef-
ur alltaf sótt innblástur í íslenska
ómengaða náttúru og því vildum
við gera mikið úr fallegum lands-
lagsmyndum.“
Allar uppskriftir bókarinnar
eru úr smiðju Dills en Gunnar
segist hafa grafið upp alla mat-
seðla staðarins frá upphafi. „Ég
valdi alla uppáhaldsréttina mína
en þeir eru af öllum gerðum,
bæði einfaldir og flóknir. En
burtséð frá því hvort fólk hefur
gaman af uppskriftum eða ekki
þá inniheldur bókin mikið lesmál
og fróðleik.“
Að sögn Gunnars munu verð-
launin vafalaust hafa mikil og
jákvæð áhrif á sölu bókarinnar
og um leið gefa höfundunum
tveimur byr undir báða vængi
varðandi frekari útgáfu. „Þessi
verðlaun eru ein af stærstu
matarbókaverðlaunum í Banda-
ríkjunum og því eðlilega mikill
heiður fyrir okkur tvö. Bókin fór
í sölu ytra í september og hefur
salan farið fram úr björtustu
vonum okkar og útgefanda okkar
sem er í skýjunum yfir þessum
árangri. Nú er ég farinn að undir-
búa næstu bók en á þessu stigi
er of snemmt að segja hvernig
hún verður enda veit ég það
varla sjálfur. Hún mun þó vafa-
laust einblína á einfaldari mat.“
INNBLÁSTUR FRÁ
NÁTTÚRUNNI
VERÐLAUNABÓK Íslensk matreiðslubók hlaut á dögunum alþjóðleg matar-
bókaverðlaun. Auk uppskrifta er lögð áhersla á landslagsmyndir og fróðleik.
M
Y
N
D
/Ú
R EIN
K
A
SA
FN
I
MIKIL FJÖLBREYTNI
„Þannig er matreiðslubókin blanda
af skemmtilegum uppskriftum,
fróðleik og ekki má gleyma öllum
þeim fallegu landslagsmyndum
sem prýða bókina.”
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
B
-0
4
5
C
1
7
6
B
-0
3
2
0
1
7
6
B
-0
1
E
4
1
7
6
B
-0
0
A
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K