Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 4. apríl 2015 | FRÉTTIR | 11
Nýttu þér
séreignarsparnaðinn
Sparnaður
Kostir séreignarsparnaðar eru augljósir
Þú hefur hærri ráðstöfunartekjur við starfslok, mótframlag
vinnuveitanda jafngildir í raun tveggja prósenta launahækkun
og ráðstöfun iðgjalda tímabundið til lækkunar húsnæðislána
felur í mörgum tilfellum í sér tækifæri til að styrkja fjárhagslega
stöðu heimilisins til framtíðar.
Hafðu samband við ráðgjafa í síma 440 4900.
Þú finnur nánari upplýsingar um séreignasparnað á islandsbanki.is
Lækkaðu höfuðstól húsnæðislánsins
Enn er hægt að nýta sér tímabundnar
heimildir ríkis stjórnarinnar til að ráðstafa
iðgjöldum séreignar sparnaðar skattfrjálst*
inn á húsnæðislán eða til kaupa
á húsnæði.
* Vakin skal athygli á því að skattaleg meðferð ræðst af
aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið
breytingum í framtíðinni.
Lífeyrissparnaður
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
FRAKKLAND Yfirvöld í Frakklandi
vilja banna notkun of grannra
fyrirsætna í viðleitni til að draga
úr anorexíu í Frakklandi.
Ísrael og Spánn hafa einnig
bannað hyllingu „hættulega
grannra“ fyrirsæta. Talið er að
frönsku lögin muni hafa áhrif
langt út fyrir landsteinana vegna
sterkrar stöðu Frakklands í tísku-
heiminum.
AP-fréttaveitan segir frá því að
áætlað sé að um 40 þúsund Frakk-
ar þjáist af anorexíu og 90 pró-
sent þeirra eru konur. Neðri deild
franska þingsins mun greiða
atkvæði um lögin í næstu viku.
Samkvæmt frumvarpinu verður
einstaklingi sem er undir ákveðn-
um stuðli varðandi hæð og þyngd
bannað að þiggja tekjur fyrir
fyrir sætustörf. Stuðullinn hefur
enn ekki verið ákveðinn.
Refsing vegna brota á þessum
lögum getur varðað allt að sex
mánaða fangelsisvist og 75 þús-
und evra sekt, sem er um ellefu
milljónir króna. Fyrirsætuskrif-
stofur í landinu eru mjög ósáttar
við frumvarpið.
Fyrr í vikunni tóku nýjar regl-
ur gildi sem skilyrða aðila til að
láta vita sé myndum breytt til að
láta fyrirsætur líta út fyrir að
vera grennri, eða þyngri. - skó, vh
Franska þingið greiðir atkvæði um lög sem er ætlað að sporna gegn anorexíu:
Vilja banna of grannar fyrirsætur
EKKI OF LÉTTAR Verði frumvarpið
samþykkt verður fyrirsætum sem eru
undir vissum stuðli varðandi þyngd og
hæð bannað að starfa sem slíkar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ATP
LÖGREGLUMÁL Kona var hand-
tekin um hádegið á fimmtudag
á hesthúsasvæði í Hafnarfirði. Í
tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að konan hafi verið ölvuð og
grunuð um að hafa ráðist á aðra
konu á hesthúsasvæðinu.
Þá hafði lögreglan afskipti af
manni sem svaf undir stýri í bif-
reið á bílastæði í Hraunbæ. Að
sögn vitna hafði maðurinn ekið
bílnum inn á stæðið og svo lagst
fram á stýrið. Hann er grunaður
um akstur undir áhrifum áfengis
og fíkniefna en einnig kom í ljós
að hann var próflaus. - skh, vh
Árás í hesthúsahverfi:
Réðst á konu
BJÖRGUN Björgunarsveitir frá
Þórshöfn og Kópaskeri sóttu á
föstudag vélsleðamann sem ók
fram af hengju á Öxarfjarðar-
heiði og slasaðist. Sjúkraflutn-
ingamaður var í för með björg-
unarsveitarmönnunum og mat
ástand hins slasaða á vettvangi.
Hann reyndist ekki alvarlega
slasaður og voru þá aðrar bjargir
afturkallaðar. Vélsleðamaðurinn
var fluttur í sjúkrabíl sem beið í
Sandfellshaga og var svo ekið með
manninn á Sjúkrahúsið á Akur-
eyri til frekari aðhlynningar. - vh
Sóttu slasaðan vélsleðamann:
Ók fram af
hengju á vélsleða
EKKI ALVARLEGA SLASAÐUR Mað-
urinn reyndist ekki alvarlega slasaður
en sjúkrabíll flutti hann á sjúkrahúsið á
Akureyri til frekari aðhlynningar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NORÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Suður-
Kóreu segja að nágrannarnir í
norðri hafi skotið fjórum tilrauna-
eldflaugum á haf út í gær.
Flaugarnar voru ekki lang-
drægar en þær draga um 150
kílómetra. Þeim var skotið frá
Dongchang-ri í norðurhluta
Norður- Kóreu.
Kóreuríkin tvö eru tæknilega
enn í stríði þar sem Kóreustríð-
inu (1950-53) lauk með vopnahléi
en ekki friðarsamkomulagi. - jóe
Vopnatilraunir Norður-Kóreu:
Eldflaugum
skotið á haf út
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
9
-2
0
7
C
1
7
6
9
-1
F
4
0
1
7
6
9
-1
E
0
4
1
7
6
9
-1
C
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K