Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 70
Fáðu þér áskrift á 365.is | 20:35 BLÓÐBERG Blóðberg er gamansöm kvikmynd með alvarlegum undirtóni um venjulegt fólk í óvenjulegum aðstæðum og segir sögu hefðbundinnar íslenskrar fjölskyldu í úthverfi Reykjavíkur. Myndin er frumsýnd á Stöð 2 áður en hún fer í kvikmyndahús. | 22:00 THE BOOK THIEF Áhrifamikil mynd sem gerist á tímum seinni heimsstyrjaldar- innar. | 07:00-20:30 BARNAEFNI ALLA DAGA Vandað talsett barnaefni og skemmtilegir þættir fyrir yngstu áhorfendurna alla daga á Krakkastöðinni. MEIRIHÁTTAR PÁSKADAGUR! | 18:55 RIO 2 Frábær teiknimynd frá 2014 um fuglaparið Blu og Jewel sem nú hafa eignast þrjá unga. 365.is Allt þetta og meira til í Skemmtipakkanum á aðeins 310 kr. á dag. Nánari upplýsingar á FRUMSÝNIN G! | 22:30 NOAH Russell Crowe leikur hinn sögufræga Nóa úr biblíusögunni um Örkina hans Nóa. Sjálfur Guð vitjar hans og segir honum að framundan sé flóð sem muni valda útrýmingu lífs á jörðinni. Það telst kannski ekki til tíð- inda að Passíusálmar Hallgríms Péturssonar komi út á Íslandi. Passíusálmarnir eru eitt örfárra bókmenntaverka íslenskra höf- unda sem samfellt hafa verið til á bókamarkaði frá fyrstu útgáfu. Á næsta ári verða liðin 350 ár frá því að Passíusálmarnir komu fyrst út á Hólum í Hjaltadal en þeir voru fyrst gefnir þar út árið 1666. Nú er komin á markað 92. útgáfa Pass- íusálmanna og er útgefandi og leiðsögumaður Mörður Árnason íslenskufræðingur. Mörður setur efni sálmanna fram með nýjum hætti og leitast við að leiða lesand- ann um þetta meistaraverk í sögu íslenskra bókmennta. „Í raun varð þessi útfærsla til á milli mín og Kristjáns B. Jón- assonar, útgefanda hjá Crymo- geu. Ég átti síðan mjög gott sam- starf við Birnu Geirfinnsdóttur bókahönnuð,“ segir Mörður sem unnið hefur að útgáfunni síð- asta árið. „Grunnurinn að þessu er að Passíu sálmarnir eru auð- vitað aðgengilegir og skiljanlegir, sérstaklega stöku vers en þegar horft er á þetta mikla verk í heild verður erfiðara að halda yfirsýn. Sálmarnir eru frá 17. öld sem er orðin okkur nokkuð fjarri og því getur verið gott að fá kannski smá aðstoð. Það er mikilvægt að hafa í huga að heimssýnin og lífsbarátt- an var allt önnur en hún er í dag og því reyndi ég að nálgast verk- efnið með tvö meginmarkmið að leiðarljósi. Í fyrsta lagi að flytja Passíusálmana til okkar tíma með texta og skýringum og í öðru lagi að flytja lesendur til 17. aldar með því að hrífa þá með í ferðalagi um þetta einstaka bókmenntaverk. Ég reyni að gæta þess að flækj- ast ekki fyrir heldur koma að þessu sem leiðsögumaður. Gefa ábendingar um það sem gæti verið gaman fyrir lesandann að gefa nánari gaum, koma á fram- færi ýmsum kenningum og fróð- leik en lesandinn á alltaf að ráða för og njóta ferðarinnar. Verkið kann að þykja nýstárlegt en er í raun og veru mjög gamaldags rit- stýring. Ég er ekki að róta í ævi skáldsins eða skapgerðareinkenn- um. Reyni fremur að skýra text- ann og setja lesandann inn í tíðar- anda, Biblíuna, bragfræðina og sitthvað fleira.“ Mörður bendir á að kristin trú sé að sjálfsögðu kjarni Passíu- sálm anna. „En þeir eru ekki ein- göngu trúarrit. Þetta eru heims- bók menntir. Sagan sem greinir frá í sálmunum, sjálf píslarsagan, er ein sú kunnasta í veröldinni og gríðarlega dramatísk. Útleggingar Hallgríms eru frábærar og þarna er að finna einstaklega fallega, ljóðræna kafla sveipaða dulúð. Þarna er líka ýmislegt sem kemur á óvart því það er ákveðinn fram- andleiki sem sautjánda öldin skap- ar. Ég býð því lesandanum upp á stutta kafla sem tengjast við stöku sálma um mál og stíl, bragarhætti og persónur. Þarna er til að mynda að finna kafla um Pílatus sem má segja að sé stærsta aukapersónan og kafla um gyðinga og hvort að beri á hugsanlegri andúð í þeirra garð í sálmunum. Þannig að þarna er að finna sitt af hverju tagi fyrir fróðleiksfúsa og ég vona að bókin hjálpi sem flestum til þess að njóta sálmanna betur.“ magnus@frettabladid.is Leiðsögumaður um Passíusálmana Passíusálmar Hallgríms Péturssonar eru komnir út í sinni 92. útgáfu en í fyrsta sinn fylgir leiðsögumaður með í förinni um þetta mikla 17. aldar meistaraverk. LEIÐSÖGUMAÐUR Mörður Árnason íslenskufræðingur er útgefandi og leiðsögumaður í 92. útgáfu Passíusálmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fyrir utan Kross Hér er lítið dæmi um það efni sem Mörður setur fram til skýringa og skemmtunar. En hér fjallar Mörður um þrítugasta og annan sálm: Um það visnaða og græna tréð. Ein af mörgum gamansögum um Passíusálmana og viðtökur þeirra meðal alþýðu er af kerlingunni sem átti að setja niður á bæ og þverneitaði þeirri vist sem ákveðin var. Menn urðu undrandi því kerlingin var allajafna góðlynd og meðfærileg. Þegar hún var spurð hverju sætti kom upp úr kafinu að bærinn þar sem hún átti að vistast lá tveimur bæjarleiðum utan við bæinn á Krossi. Og út fyrir Kross vildi hún ekki fara. Í Hallgrímssálmum stæði að holdið má ei fyrir utan Kross eignast á himnum dýrðarhnoss. Ef til vill liggur hér að baki að forsetningin fyrir utan er í versinu höfð í danskri merkingu: án– sem ekki er víst að hafi átt greiða leið til almúga- fólks. MENNING 4. apríl 2015 LAUGARDAGUR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 8 -B 8 C C 1 7 6 8 -B 7 9 0 1 7 6 8 -B 6 5 4 1 7 6 8 -B 5 1 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 8 8 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.