Fréttablaðið - 04.04.2015, Page 16
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 16
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi flugþjónustu-
svæðis á Keflavíkurflugvelli
/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar auglýsir hér með
í samræmi við 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010
tillögu að breytingu deiliskipulags á flugþjónustusvæði
Keflavíkurflugvallar. „Keflavíkurflugvöllur – Flugstöðvar-
svæði, svæði A, breyting E“.
Breytingin tekur til lóðanna Blikavallar 2 - 4, Kjóavallar 2
og 2a. Lóðarmörkum er breytt, lóðirnar Blikavöllur 2 og 4
sameinaðar og lóðin Kjóavöllur 2a felld niður.
Byggingarmagn er minnkað lítillega og bílastæðum
breytt. Breytingar verða á kafla 3.03 í skilmálahefti, að
öðru leyti eru skilmálar óbreyttir.
Breytingartillaga þessi verður til sýnis á skrifstofu
skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkurflugvallar
(www.kefairport.is/skipulagsmal) frá og með 7. apríl 2015.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta geta gert
athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að gera
athugasemdir rennur út 20. maí 2015. Skila skal skriflegum
athugasemdum til skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar
merkt: Skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar, Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða
sveinn.valdimarsson@isavia.is.
Keflavíkurflugvelli, 30. mars 2015.
F.h. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar
Sveinn Valdimarsson,
skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar.
RAFVÆDD FRAMTÍÐ Í SÁTT VIÐ SAMFÉLAG OG UMHVERFI
Landsnet býður til opins vorfundar um stöðu flutningskerfis raforku á Íslandi og nýjar áherslur félagsins á
Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 9. apríl milli kl. 9-11.
Morgunhressing í boði frá kl. 8:30 og meðan fundur stendur yfir.
Skrásetning á heimasíðu Landsnets, landsnet.is, eða í síma 563 9300.
Allir velkomnir!
Dagskrá:
Ávarp
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar – og viðskiptaráðherra.
Landsnet 10 ára – horft fram á veginn
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets.
Öruggt rafmagn í takt við samfélagið
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets.
Jarðstrengir á hærri spennu á Íslandi
Friðrika Marteinsdóttir jarðfræðingur hjá EFLU verkfræðistofu.
Áhugasamir, sem eiga þess ekki kost að mæta á fundinn, geta fylgst með beinni útsendingu frá honum á heimasíðu
Landsnets. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir á twitter með merkingunni #landsnet
Víðerni og vírar í sátt við samfélagið
Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Gagnaver: Ný starfsemi á Íslandi í alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi raforku
Eyjólfur Magnús Kristinsson, formaður Samtaka íslenskra
gagnavera.
Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri:
Edda Hermannsdóttir, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins.
AT
H
YG
LI
/
M
AR
S
20
15
ÍRAN „Við létum frá okkur vel
söðlaðan hest í skiptum fyrir
lélega múlbindingu,“ sagði Hos-
sein Shariatmadari, einn nánasti
ráðgjafi Ayatollah Ali Khameini,
æðsta klerks Írans, um kjarnorku-
samkomulag Írana við fastaþjóðir
Sameinuðu þjóðanna, Þýskaland
og Evrópusambandið. Ummælin
þykja vera einkennandi fyrir við-
brögð pólitískra harðlínumanna í
Íran.
Samninga-
nefndirnar náðu
saman á fimmtu-
daginn um að
takmarka getu
Írana til auðg-
u n a r ú ra ns .
Þ ega r ut a n -
ríkisráðherra
Írans, Mohamm-
ad Javad Zarif,
sneri heim úr samningalotunni í
Sviss var hann hylltur sem þjóð-
hetja af hófsömum öflum í Íran
en líkt og fram hefur komið hafa
harðlínumenn þó tekið illa í sam-
komulagið. Það þótti lykilatriði að
Hassan Rouhani, forseti Írans, og
Khameini, æðsti klerkur, höfðu
áður lagt blessun sína yfir samn-
ingaferlið. Rouhani hefur þegar
tjáð sig á jákvæðum nótum um
niðurstöðu samninganna en loka-
afstaða Khameinis mun þykja
skipta sköpum þar sem hann mun
hafa lokaorðið fyrir hönd Írana.
Samkomulagið hindrar mjög
mikið getu Írana til að auðga úran
en gegn því munu Bandaríkin og
Evrópusambandið slaka á við-
skiptahindrunum við Íran. Sam-
komulagið í Sviss er þó í raun
ekki lokasamkomulag heldur ein-
ungis drög að samningsramma
sem stefnt er á að fullklára fyrir
30. júní.
Þó svo að samningamenn hafi
farið almennt ánægðir frá borð-
inu eru fleiri neikvæðar raddir á
kreiki. Benjamín Netanjahú, for-
sætisráðherra Ísraels, segir ríkis-
stjórn sína alfarið á móti sam-
komulaginu en að hans mati þarf
að gera út af við kjarnorkuáætlan-
ir Írana fyrir fullt og allt. „Samn-
ingurinn stöðvar ekki vegferð
Írana í átt að kjarnorkusprengj-
unni,“ sagði Netanjahú á blaða-
mannafundi í gær.
„Samkomulagið leggur veg fyrir
Írana í átt að kjarnorkusprengj-
unni, sem gæti orðið neisti sem
gæti hrundið af stað kjarnorku-
vopnakapphlaupi um öll Mið-Aust-
urlönd sem yki líkurnar á hrika-
legu stríði,“ sagði Netanjahú.
Samningalotan í Sviss er talin
vera stórt skref fram á við í sam-
skiptum Írans og Bandaríkjanna.
„Það eru 35 ár síðan við ræddum
við Írana með jafn hreinskipt-
um hætti,“ sagði John Kerry,
utanríkis ráðherra Bandaríkjanna,
í samtali við CNN. Þó að Kerry
fagni þessu skrefi ítrekar hann að
enn eigi eftir að ljúka samkomu-
laginu endanlega og að ef Íranar
virða ekki samkomulagið sé auð-
velt að koma viðskiptaþvingunum
aftur á. stefanrafn@frettabladid.is
Ekki allir sáttir við
kjarnorkusamning
Samkomulag náðist um slökun viðskiptaþvingana og takmörkun á getu Írana til
að auðga úran síðastliðinn fimmtudag. Harðlínumenn í Íran og ríkisstjórn Ísraels
gagnrýna samkomulagið. Lokasamkomulag þarf að vera tilbúið fyrir 30. júní.
MOHAMMAD
JAVAD ZARIF
SAMNINGAHÓPURINN Lotan í Sviss þótti ganga vel upp en enn á eftir að fullklára
samninga. NORDICPHOTOS/AFP
Sam-
komulagið
leggur veg
fyrir Írana í
átt að kjarn-
orkusprengj-
unni, sem
gæti orðið neisti sem gæti
hrundið af stað kjarnorku-
vopnakapphlaupi um öll
Mið-Austurlönd.
Benjamín Netanjahú,
forsætisráðherra Ísraels.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
7
-D
F
8
C
1
7
6
7
-D
E
5
0
1
7
6
7
-D
D
1
4
1
7
6
7
-D
B
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K