Fréttablaðið - 04.04.2015, Side 22

Fréttablaðið - 04.04.2015, Side 22
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Tilfelli fær tilfelli Það er afmæli fram undan. Sjö- tugur? „Menn eru alltaf að bása og flokka alla hluti, raða og telja. Og ekki síst árin. Ég held ég hafi ekki tilfinninguna gagnvart þess- um aldri.“ Þú upplifir þig þá ekki sjötugan? „Nei, ég hef ekki þá tilfinningu sem mér finnst ég ætti að hafa en ég hef hins vegar ekki hugmynd um hver eða hvers konar hún er. Miðað við mínar ranghugmyndir þá hélt ég að þetta væri öðruvísi. Það á þó kannski ekki við um allan aldur en gaman væri að finna þann aldur hvar allir fíla sig þegar að honum kemur.“ Megas er ekki með tónleika í tilefni af afmælinu á prjónunum, segir svo mikið af tónleikum í gangi að síst sé á það bætandi. En er hann hættur að performera? „Nei, ég er ekki hættur því. Ég er bara ekki alveg í því stuði um þessar mundir. Maður er aðeins að byrja á því að hreyfa sig, en maður dans- ar ekki alveg eins liðugt og áður.“ Líkt og áður segir er Megas í endurhæfingu á Grensás og ber hann því vel söguna. Þar inni sé allt eins og best verði á kosið. Þar séu ungir og gamlir að endurræsa sig eftir ýmiss konar áföll. Þú hefur nú ort um einhverjar heilbrigðisstofnanir … „Já, reynd- ar aðallega þær sem ég hef minnst af að segja. Þetta er partur af líf- inu. Menn þurfa af og til að losna úr umferð og menn geta alltaf dottið af baki. Hjá mér var það æð í höfði sem gaf sig. Ég veit ekki alveg hvað það heitir, en í gamla daga hét það „til- felli“. Það kom af stað einhverju illu ferli í heilanum sem kostaði einhverjar stöðvar starfsgetuna. En á meðan maður heldur lífi má alltaf fá til baka það sem maður missir að einhverju leyti.“ Megas, eitt alræmdasta tilfellið í íslenskum menningarheimi, fékk því tilfelli, en gengur vel að vinna úr því og líður vel með lífið og til- veruna í dag. Hafnar ekki handanlífinu Nú ertu að verða sjötugur og nýbúinn að fá tilfelli, setur þetta þig í þær stellingar að fara að velta tilverunni fyrir þér, líta yfir farinn veg og hvernig gangan verður fram undan, eða er þetta bara enn einn dagurinn? „Ég held að þetta sé bara enn einn dagurinn. Að svo miklu leyti sem maður þarf að skipuleggja sig fram í tímann þá gerir maður það. Ekkert frekar eða síður nú en endranær. Að líta yfir farinn veg, ég er held ég bara ekki í því. Eina retróspektívið er að syngja gamalt efni og ég ligg ekki mikið í því að rannsaka ferlið. Þetta er bara ein samfella, engin þróun, engin pró- gressjón, þetta er allt sami kanón- inn. Nema þá helst að mér hafi fleygt fram í einhverjum tækni- legum smáatriðum. En það sem ég var að semja þegar ég var barn stendur fyllilega jafnfætis því sem ég sem í dag. Menn fóstra auðvitað hin ólíkustu verkefni, en það er alltaf gjarnan einhver brú yfir í það næsta. En eins og ég sagði, menn flokka og bása, skilgreina og búa til tímabil.“ Þannig að þú situr ekki þessa dagana og veltir fyrir þér tilvistinni og ódauðleikanum? „Ekki meir en hver annar.“ En handanlífið, trúirðu á það? „Ég myndi halda að meiri en minni líkur séu á framhaldslífi.“ Edrúlífið flatti eitthvað út Talandi um tímabil, þú áttir þitt edrútímabil, en því lauk. „Edrúlíf er klisja sem menn hafa kosið að misskilja á allan mögulegan hátt. En þarna er átt við árin sem ég stundaði AA-fundi. Af þeim mætti segja margar sögur til næsta bæjar en nafnleyndin bannar það. Ég held ég hafi fengið þar gott veganesti til seinni tíma.“ Þú fannst þig ekki í edrúlífinu? „Þarna voru æði margar hliðar en svo kom að því að mér fannst sumar þeirra fletja út og rjúfa tengsl. Það var eitthvað sem ég saknaði. Eitt- hvert sambandsleysi við djúpið.“ Efnin hafa alltaf verið hluti af þínu lífi, eða kannski það að vera ekki í efnaleysi? „Efnin eru partur af efnisheiminum en þær eru ýmsar aðferðirnar við sköpun og þar má segja að sérhver drepi sínar flær með sínu lagi.“ Er þetta partur af þinni lífssköp- un, eða kannski lífsstíl? „Nei, þetta er bara partur af umferðarmögu- leikum.“ Nýr tónn sem skar í fín eyru Fyrsta plata Megasar, samnefnd honum, kom út árið 1972. Óhætt er að segja að hún hafi vakið athygli og umtal. Ef þú hefðir sem ungur maður þá horft til ársins 2015, ertu þá á svip- uðum stað nú og þú hélst að þú yrðir, eða varstu ekkert að hugsa út í það? „Mitt hugmyndaflug náði ekki svo langt að höndla slíkt. Nei. Ég hafði verið að dunda mér við að búa til smálög við mína texta og annarra frá því ég var 11 ára gamall. Það hafði lengi verið gnægð af trúbador- um erlendis en ég hafði við litla hefð að styðjast. Sá vísnasöngur sem þar tíðkaðist gekk ekki í útgefendur hér á landi. Enda var mín fyrsta plata gerð og gefin út í Noregi.“ Hún vakti mikla athygli og umtal, áttirðu von á því? „Maður skil- ur það betur í dag, þegar maður lítur á umhverfið sem hún kom út í, hvaða plötur voru yfirleitt gefn- ar út, hvernig á því stóð. Hún þótti gróf þótt mér fyndist hún blíðleg á sínum tíma. Þýðlegur díalógur. Það var mín ranghugmynd ef ég tek mið af því sem þá var efst á baugi. Það voru einkum námsmenn sem þekktu Åkeström og Vreeswijk og þeir ósk- uðu eftir hliðstæðu heima fyrir. Það fjölgaði í hópnum eftir næstu plötu, þá kveiktu poppararnir. Ég fékk t.d. mjög góða dóma hjá Pétri Kristjáns.“ En það er alltaf einhver angi sam- félagsins sem hefur átt erfitt með að akseptera þig og margar plötur hafa vakið mikið umtal? „Já. Það eru Megas. Þeir eru fáir mennirnir sem hafa vakið jafn mikið umtal og hann. Nafnið eitt og sér vekur upp viðbrögð hjá fólki og leitun er að manneskju sem ekki hefur skoð- un á Megasi. Fólk elskar hann eða hatar, en fáum er sama um hann. Allt þetta hellist yfir blaðamann- inn sem fær það verkefni að taka viðtal við Megas. Tveggja síðna helgarviðtal í tilefni af sjötugs- afmælinu sem verður á þriðjudag. Þegar við bætist að blaðamaður- inn hefur verið aðdáandi frá því að hann sem smápúki heyrði fyrst í Megasi hjá foreldrum sínum er ekki laust við að verkefnið vaxi í augum. En verkefni eru til að tak- ast á við þau og í huga þess sem hér ritar þyrfti sá eða sú sem neit- aði samverustund með Megasi að fara að endurskoða forgangsröðun- ina í lífinu. Það er hins vegar með allt þetta í farteskinu sem ég, ásamt ljós- myndara, sæki Megas á Grensás, en þar er hann í endurhæfingu. Og Megas ferðast heldur ekki einn; með í för er ferillinn, plöturnar, lögin og ljóðin í rúma fjóra ára- tugi. Þegar upp í bílinn er komið, að ég tali nú ekki um þegar sest hefur verið á Hótel Borg yfir kaffi, hverfur þessi tilfinning þó og eftir standa, eða sitja, tveir menn að spjalla um ævi og verk annars þeirra. Þarf að vera í sambandi við djúpið Megas hefur verið hneykslunarhella í tæpa hálfa öld. Hann verður sjötugur í næstu viku og fær bók um sig í afmælisgjöf. Hann fór hratt, hægði á sér, kynntist mörgum nýjum hliðum, fannst ýmislegt fletjast út og hraðaði för sinni. Hann þvertekur fyrir að vilja hneyksla. Hann er í raun þægur. Þarna voru æði margar hliðar en svo kom að því að mér fannst sumar þeirra fletja út og rjúfa tengsl. Það var eitthvað sem ég saknaði. Eitthvað sam- bandsleysi við djúpið. UPPLIFI MIG ÞÆGAN Megas upplifir sig sem þægan mann sem sé alltaf að reyna að fara mjúkum höndum um hlutina í kringum hann þannig að enginn verði sár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 0 8 8 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 9 -8 3 3 C 1 7 6 9 -8 2 0 0 1 7 6 9 -8 0 C 4 1 7 6 9 -7 F 8 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 8 8 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.