Fréttablaðið - 04.04.2015, Page 28
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Aldrei rétti tíminn
„Faðirinn í Blóðbergi er höfundur
sjálfshjálparbóka, sem segja fólki
hvernig á að lifa sínu lífi, en hann er
síst allra til þess búinn. Þannig að fyrir
mér er þessi saga kannski kómedía í
grunninn. Hún einfaldlega verður að
vera það. Þegar svona hlutir koma upp
þá verður maður að geta tekið á þeim
með smá húmor í farteskinu. Auðvitað
er aldrei auðvelt að takast á við svona
hluti og vandinn er að það er kannski
aldrei rétti tíminn til þess að segja
frá sínum leyndarmálum. Þess vegna
hafa leyndarmál tilhneigingu til þess
að koma bara og þegar þau koma þá er
það auðvitað alltaf á versta tíma.“
Ekki ein í heiminum
„Mín kynslóð er alin upp við ákveðna
þögn rétt eins og fyrri kynslóðir. Fólk
var ekki alltaf að spá í tilfinningar sínar,
hvað þá að bera þær á borð fyrir aðra.
En svo er eins og einhvers staðar hafi
opnast fyrir flóðgátt. Allir út með allt
og auðvitað er margt jákvætt við það
að fólk verði opnara fyrir tilfinningum
sínum, segi frá þeim og deili þeim með
sínum nánustu en þetta er orðið dá lítið
bremsulaust. Vegna þess að fólk er stöð-
ugt að spá í sér. Hvernig því líði í dag. Af
hverju það sé eins og það er. Af hverju
það nái ekki lengra í lífinu. Og öll þessi
endalausa sjálfsskoðun. Allt fer að snú-
ast um egóið í gegndarlausum narsiss-
isma og það finnst mér ekki vera góð
þróun. Fólk verður að bera ábyrgð á sér,
orðum sínum og gerðum vegna þess að
við erum ekki ein í heiminum. Við búum
í samfélagi og því fylgir ábyrgð hvort
sem okkur líkar betur eða verr.“
Þetta líf
kemur í fram-
haldinu af
einhverju
mynstri og svo
líða þrjátíu ár
og þau líða
hratt. Stundum
er þessi vendi-
punktur
kallaður grái
fiðringurinn og
stundum
miðaldurskrísa
og allt mögu-
legt. En ég lít
fyrst og fremst
á þetta sem
vendipunkt,
hluta af þroska-
ferli mann-
eskju.
Kvikmyndin Blóðberg eftir Björn Hlyn Haraldsson, handritshöfund og leik-stjóra, verður frumsýnd á sunnudagskvöldið. Það ber til tíðinda að Blóðberg er
frumsýnd á Stöð 2 og verður í íslensk-
um kvikmyndahúsum í beinu fram-
haldi ásamt því að verða fljótlega
aðgengileg á VOD-leigum.
Björn Hlynur segir að þetta sé
ný og spennandi nálgun hérlendis
en þessi leið hefur færst mjög svo í
vöxt á erlendum mörkuðum á síðustu
árum.
Allar dyr opnar
„Það sem gerist við það að fara þessa
leið er að áhorfandanum gefst kostur
á því að stýra áhorfinu. Fyrir okkur
sem framleiðendur þá lokar þetta
engri leið, heldur þvert á móti heldur
öllum dyrum opnum. Fyrir mig sem
leikstjóra og höfund þá hef ég auð-
vitað það meginmarkmið að ég vil að
sem flestir sjái myndina. Lengi vel
þótti frekar hallærislegt að framleiða
myndir fyrir sjónvarp en þetta hefur
breyst gríðarlega á síðustu misserum.
Sjónvarpið er heitur miðill í dag. Leik-
stjórar og höfundar á borð við Woody
Allen og fleiri snillinga eru að vinna
efni fyrir sjónvarp og það opnar á
möguleika.“
Dubbeldusch
Hugmyndin að Blóðbergi hefur lengi
verið að gerjast með Birni Hlyni og
hann byrjaði að vinna með grunnstef
sögunnar fyrir um tíu árum. „Fyrsta
form þessarar sögu birtist í leikrit-
inu Dubbeldusch sem við hjá Vestur-
porti frumsýndum í samstarfi við
LA á sínum tíma. Magnús Geir var
þá enn leikhússtjóri hjá LA og hvatti
mig áfram til þess að skrifa og koma
þessari sögu frá mér. Þegar ég fór
svo að láta á það reyna að skrifa kvik-
myndahandrit þá æxlaðist það þannig
að þessi saga kom aftur til mín.
Fyrst skrifaði ég handrit sem bygg-
ir á bókinni Bæjarins verstu eftir
Hrein Vilhjálmsson. Hann var úti-
gangsmaður til margra ára sem náði
svo að verða edrú og skrifaði þessa
mögnuðu bók um sína lífsreynslu.
Vandinn er að Bæjarins verstu nær
yfir nokkra áratugi og slíkar mynd-
ir eru mun dýrari í framleiðslu en
samtímasögur. Það fór því þannig að
Dubbel dusch kom aftur til mín sem
einföld og sterk samtímasaga sem
mér finnst eiga mikið erindi í dag.“
Á ég systkini?
Blóðberg segir sögu venjulegar
íslenskrar fjölskyldu. Fjölskyldu-
faðirinn bjargar samlöndum sínum
með skrifum á sjálfshjálparbókum á
meðan móðirin bjargar fólki á spítal-
anum sem hjúkrunarkona. Dag einn
kemur einkasonurinn ástfanginn
heim með nýja kærustu og þá verð-
ur fjölskylduföðurnum ljóst að hér
er á ferðinni dóttir hans, launbarn
úr fyrra sambandi, sem hann hefur
þagað yfir alla sína tíð. „Slíkar upp-
ákomur eru algengari en fólk heldur.
Um 10% barna á Íslandi eru rang-
feðruð og í svona míkró-samfélagi
getur það haft afleiðingar.
Ég man að þegar ég var um tutt-
ugu og fimm ára var mikið af svona
sögum í kringum mig. Fólk á mínum
aldri var að standa í þessu að vilja
fá að vita hver systkini þeirra væru
og vildu kynnast þeim. Ég held að
þetta gerist líka oft á þessu aldurs-
skeiði þar sem fólk nær sjálfræði og
þroska til þess að vilja fá svör og á
rétt á þeim. Þessar sögur höfðu áhrif
á mig því oft myndaði þetta fólk sterk
og falleg systkina- og vinasambönd í
framhaldinu og það skiptir máli.“
Þetta gerist bara
„En það er líka mikilvægt að þessi
saga snýst ekki bara um systkinin
heldur auðvitað líka foreldrana, líf
þeirra og ákvarðanir. Einhvern tím-
ann á lífsleiðinni förum við að spyrja
okkur spurninga og horfa aðeins á líf
okkar utan frá. Hvenær ákveðum við
að eyða lífinu með einhverri mann-
eskju? Það er í sjálfu sér ekkert ein-
falt svar við því. Þetta gerist bara.
Þetta líf kemur í framhaldinu af ein-
hverju mynstri og svo líða þrjátíu ár
og þau líða hratt. Stundum er þessi
vendipunktur kallaður grái fiðring-
urinn og stundum miðaldurskrísa
og allt mögulegt. En ég lít fyrst og
fremst á þetta sem vendipunkt, hluta
af þroskaferli manneskju, og það er
ekkert óeðlilegt við það að við velt-
um hlutunum fyrir okkur þegar tími
gefst til.“
Það er aldrei rétti tíminn til
þess að segja frá leyndarmálum
Björn Hlynur Haraldsson, handritshöfundur og leikstjóri, frumsýnir Blóðberg, sína fyrstu kvikmynd, um páskana. Þar
tekst venjuleg fjölskylda á við stórt leyndarmál sem er efalítið algengara í hinu smáa íslenska samfélagi en margan grunar.
HÖFUNDUR OG LEIKSTJÓRI Björn Hlynur hefur sterka þörf fyrir að miðla sögum úr samtímanum og kvikmyndaformið hentar því sérstaklega vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
9
-5
1
D
C
1
7
6
9
-5
0
A
0
1
7
6
9
-4
F
6
4
1
7
6
9
-4
E
2
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K