Fréttablaðið - 04.04.2015, Page 36
FÓLK| HELGIN
Það hefur verið nóg að gera undanfarna daga hjá Óskari við að undirbúa tvenna
tónleika sem verða í menningar-
húsinu Hofi í dag. Tilhlökkun
og spenna í loftinu, enda Óskar
búinn að fylla húsið. Það var létt
yfir tenórnum þegar við slógum á
þráðinn til hans. „Ég var beðinn
um það upphaflega að vera með
páskatónleika í Hofi þegar húsið
var nýtt. Það var vilji að fá heima-
mann til að koma fram í húsinu,“
segir Óskar, sem er alinn upp í
Skagafirði en hefur búið á Akur-
eyri í rúmlega 40 ár.
Tónleikarnir eru til heiðurs
Gunnari Þórðarsyni sem verður
hljómsveitarstjóri. Meðal þeirra
sem fram koma eru Egill Ólafs-
son, dúettinn Þú og ég, skip-
aður Jóhanni Helgasyni og Helgu
Möller, Harpa Birgisdóttir og
Hjalti Jónsson. Óskar hefur haldið
tónleika í Hofi um páska á hverju
ári síðan húsið var opnað svo
þetta er árlegur viðburður. „Gunni
Þórðar hefur alltaf verið með mér
á þessum tónleikum en ég ákvað
fyrir löngu að heiðra höfðingjann
með lögum eftir hann núna. Ég var
langt á undan þeim fyrir sunnan
að stinga upp á heiðurstónleik-
um,“ segir Óskar og hlær.
GAMALL GULLMOLI
Óskar er bifvélavirki að mennt og
hefur löngum starfað við fagið.
Hann segist skipta vinnutíma
sínum til helminga: 50% er söngur
og 50% gerir hann upp gamla bíla.
„Ég er ekki lengur að gera við bíla
heldur geri ég upp öldunga. Ég
safna fornbílum sjálfur og geri upp
fyrir aðra. Gömul ökutæki hafa
alltaf verið mér hugleikin. Núna
er ég að gera upp 45 ára gamlan
Land Rover úr Skagafirði sem er
búinn að vera ónýtur lengi. Hann
á eftir að verða mikill gullmoli.
Ég er líka að gera upp gamlan
traktor fyrir bónda í Skagafirði.
Elsti bíllinn sem ég hef gert upp
er slökkviliðsbíll frá Akureyri en
hann er jafngamall mér, 61 árs.
Hann er núna til sýnis við slökkvi-
stöðina í upprunalegu útliti,“ segir
Óskar sem hefur gert upp marga
fornbíla. „Maður er hálfruglaður
að þessu leyti,“ segir hann og
bætir við að hann vilji alltaf vita
sögu þess bíls sem hann gerir
upp. „Helst vil ég líka hafa þá úr
heimabyggð.“
LÍK OG GAMALMENNI
Óskar er ættaður úr Skagafirði
og segist oft koma þangað. Þegar
hann er spurður hvort hann
eigi sumarhús þar, svarar hann:
„Söngvari og bifvélavirki hefur
ekki efni á sumarbústað. Starfið er
mitt áhugamál og svo nýt ég þess
að vera með fjölskyldunni. Meira
þarf ég ekki,“ segir Óskar, sem er
kvæntur Jónínu Sveinbjörnsdóttur
en þau eiga þrjú börn og þrjú
barnabörn. „Verst er að tvö barna-
börnin eru búsett í Danmörku.“
Hinn 3. maí verða Álftagerðis-
bræður með tónleika í Eldborgar-
sal Hörpu og hlakkar Óskar mikið
til þess að koma suður. Bræður
hans, Sigfús, Pétur og Gísli, koma
mest fram saman eða með kórum.
Óskar er sá eini sem er með eigin
tónleika. „Ég held að við séum að
verða búnir að fylla kofann,“ segir
hann. „Annars var einn grínisti
sem sagði að okkar helstu að-
dáendur væru lík og gamalmenni,“
segir Óskar og skellir upp úr en
það deyr varla nokkur maður
fyrir norðan án þess að Óskar sé
fenginn til að syngja yfir honum.
Hann segist vera bókaður langt
fram í tímann í jarðarfarir, það eigi
bara stundum eftir að dagsetja
bókunina.
EINRÆNN MEÐ KÖFLUM
Óskar er þekktur húmoristi og
aldrei langt í sprellið hjá honum.
Hann viðurkennir að stundum sé
hann glannalegur í orðum. „Þess
vegna er oft gert grín að mér en
ég er ekkert viðkvæmur fyrir því.
Menn þurfa að ná sér niðri á mér.
Ég hef gaman af því að segja sögur
og láta fólk hlæja og skemmta sér.
Það er nauðsynlegt að hafa létt
andrúmsloft í kringum sig.“
En áttu ekki erfiða daga eins
og aðrir? „Jú, jú, ég er ekki alltaf
í stuði. Ég er í rauninni frekar
einrænn. Mér finnst gott að dútla
í bílunum þegar ég er í þannig
skapi.“
Syngurðu yfir bílunum? „Nei,
það geri ég aldrei og ekki heldur í
sturtu. Áður fyrr var ég sígalandi
en er löngu hættur því. Ég get
æft söng í huganum. Það sner-
ist allt um söng þegar ég var að
alast upp. Annaðhvort var talað
um hesta eða söng þannig að
umræður á æskuheimilinu voru
einhæfar,“ segir hann. Óskar er
yngstur bræðra sinna og segir þá
eldri vera farna að reskjast. Þess
vegna séu þeir farnir að draga sig
nokkuð í hlé. Hann segir plötu ekki
á döfinni. „Eru þær ekki deyjandi
fyrirbæri?“ spyr hann.
LÖGIN Í SJALLANUM
Um páskana ætlar Óskar að
njóta fjölskyldunnar þegar tón-
leikarnir eru að baki. „Eftir
páskana er ég síðan fullbókaður
í jarðarförum. Ég þekki oft þá
sem er verið að jarðsetja og það
gefur mér mikið að kveðja þá
með fallegum söng.“
Þegar hann er spurður hvaða
lög sé mest beðið um í jarðar-
förum segir hann lagaflóruna
vera breiða. „Rósin er alltaf mjög
vinsæl, sömuleiðis Liljan en
svo er mikið beðið um dægur-
lög eins og Vor í Vaglaskógi, Ég
er kominn heim og fleiri slík.
Þetta eru lög sem menn heyrðu
í Sjallanum í gamla daga,“ segir
tenórinn vinsæli sem segist vera
með nokkur fiðrildi í maganum
vegna tónleikanna í dag en ekki
síður tilhlökkun.
■ elin@365.is
HÚMORISTI
„Annars var einn grínisti sem
sagði að okkar helstu aðdáendur
væru lík og gamalmenni,“ segir
Óskar um Álftagerðisbræður og
vinsældir þeirra.
DÚTLAR Í FORNBÍLUM
OG SYNGUR Í HLJÓÐI
MIKIÐ AÐ GERA Óskar Pétursson, söngvari og einn Álftagerðisbræðra, gerir
upp fornbíla á milli þess sem hann syngur í jarðarförum og heldur tónleika,
ýmist einn eða með bræðrum sínum. Hann nýtur þess að skemmta fólki.
VINSÆLDIR Óskar er búinn að fylla Hof á tvennum tónleikum í dag. Þann 3. maí
verður hann í Hörpu ásamt bræðrum sínum og miðasala er langt komin. Það má því
með sanni segja að þetta séu vinsælir bræður. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Engjateigi 5 | Sími 581 2141 | www.hjahrafnhildi.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
B
-0
4
5
C
1
7
6
B
-0
3
2
0
1
7
6
B
-0
1
E
4
1
7
6
B
-0
0
A
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K