Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2015 HEIMURINN A GA ABÚ í ngdiafganska þ umngju þastóra bílspre hia skað Lögregl vikið vakið fasemdir um að vara sé á bak við ja talibana til að til a v F PARÍS aks birti gögn um að banda fðu hlerað síma gja forseta. Þar kemur fram að eftþrig und með Angelu rkel, kanslara Þýskalands, 2012 hafiMe ncois HollandeFra , forseti Frakkland ft allt á hornum sér, funduriha afi verið „án innihalds“ og „h i ng“. Franska þingið s m að gefauí vikunni lög nnu ogleyniþjónust ts.völd til eftir AKKRA gare vegildaJaf ernig i Gana fótboltaætt ákur ltr ið ns fsilíu og nur á bophæð milljó sp röfð BANDARÍKIN WASHINGTON stirétturHæ ðaði aðBandaríkjanna úrskur ákvæði laga stjórnar aracksB Obama ta umBandaríkjafors almannatryggingar um stæðust. Þetta var í an sem rétturinn fjallaði höfðað var il ð h k Lögin kveð vera með efnaminni ess Málið var h orða í mör ívilnanir „k forsendu a alríkið ekk aðeins eins Ýmis samtök, sem berjast fyr- ir borgaralegum réttindum, hafa árum saman farið fram á að yfirvöld í suðurríkjunum fjarlægi fánann úr borg- arastríðinu. Fánann má einnig finna á margs konar glingri og fatn- aði. Verslanakeðjan Walmart lýsti yfir því á mánudag að hætt yrði að selja varning með suðurríkjafánanum í verslunum hennar. Í kjölfar- ið sigldi Sears, sem rekur Sears- og Kmart- verslanirnar, og netversl- anirnar Amazon og EBay. Eftirspurn eftir vörum með fánanum jókst hins vegar. Árás á söfnuð kirkju svartra íCharleston í Suður-Karólínu hefur kveikt heit- ar umræður um kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum. Níu manns létu líf- ið þegar ungur maður, Dylann Storm Roof, lét til skarar skríða í Emanuel A.M.E.-kirkjunni eftir að hafa setið með söfnuðinum í klukku- tíma. Ástæðan fór ekki á milli mála. „Þið nauðgið konunum okkar og er- uð að yfirtaka landið okkar,“ sagði hann að sögn vitnis. Merki kynþáttakúgunar Roof aðhylltist greinilega kenningar um yfirburði hvíta kynstofnsins og sveipaði sig oft merkjum kynþátta- kúgunar. Á myndum af honum má sjá fána Suðurríkjanna, 13 hvítar stjörnur (ein fyrir hvert ríki) í bláum krossi á rauðum grunni. Ýmsir hafa haldið ástfóstri við fánann og í Suður-Karólínu hefur hann blakt við hún. Mörgum blöskr- aði hins vegar þegar fánanum var flaggað í heila stöng fyrir utan þeg- ar kista eins fórnarlamba Roofs, Clementu Pinckney, prests og þing- manns í ríkisþinginu í Kólumbíu, höfuðborg Suður-Karólínu, var látin standa í anddyri ríkisþingsins. Ein- hver setti svart tjald fyrir glugga svo að þeir sem vildu votta hinni látnu virðingu sína þyrftu ekki að horfa á fánann út um gluggann. Herir Suðurríkjanna notuðu fán- ann á vígvellinum í borgarastríðinu 1861 til 1865 því að hinn opinberi fáni sem Suðurríkin tóku upp þegar þau klufu sig frá norðrinu þótti of líkur fána Norðurríkjanna. Fáninn er víða notaður og þeir sem hampa honum segja að það sé í minningu arfleifðar Suðurríkjanna og hetjudáða þeirra sem börðust undir merkjum hans og komi kyn- þáttamálum ekki við. Saga fánans er hins vegar sam- ofin kúgun svartra því að á henni grundvallaðist samband Suðurríkj- anna eins og skýrt kom fram í hinni svokölluðu hornsteinsræðu Alexand- ers H. Stephens, varaforseta Suður- ríkjanna, í mars 1861: „Okkar nýja stjórn er einmitt grundvölluð á hinni gagnstæðu hugmynd; grunnur hennar er lagður, hornsteinn henn- ar hvílir á hinum mikla sannleik að negrinn er ekki jafn hvíta mann- inum; að undirokun með þrældómi gagnvart hinum æðra kynstofni er hans náttúrulega og eðlilega ástand.“ Þessi hugmyndafræði var að baki ofbeldi og morðum hvítu öfga- samtakanna Ku Klux Klan, sem fóru um með Suðurríkjafánann á lofti. Á milli 1882 og 1968 voru 3.446 svartir karlar, konur og börn hengd í Bandaríkjunum. Tilgangurinn með hryðjuverkum Ku Klux Klan var að fylla blökku- menn skelfingu; þagga niður í þeim, skjóta þeim slíkan skelk í bringu að þeir dirfðust ekki að leita réttar síns, voguðu sér ekki að líta við hvítri konu og héldu sig á mottunni. Roof virðist hafa verið einn að verki þegar hann framdi ódæðis- verkið í kirkjunni en hann hefur greinilega ekki farið varhluta af þeim hugmyndum sem lýst er hér fyrir ofan. Hann sagði að svo vel hefði verið tekið á móti sér í kirkj- unni að hann hefði verið að hugsa um að hætta við, en lét þó til skarar skríða. Fimm dögum eftir tilræðið lýsti Nikki Haley, ríkisstjóri í Suður- Karolínu, yfir því að Suðurríkja- fáninn ætti heima á safni. Hún get- ur hins vegar ekki fjarlægt fánann upp á sitt eindæmi. Til þess þarf 2/3 meirihluta í báðum deildum þingsins. Erfitt gæti orðið að ná því. Hin pólitíska hlið Forsetaframbjóðendur repúblikana hafa átt í vandræðum með þetta mál. Carly Fiorina, fyrrverandi yfir- maður Hewlett Packard, sagði að einu gilti um hennar skoðun og Scott Walker, ríkisstjóri Wisconsin, sagði að þetta væri undir hinum einstöku ríkjum komið. Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu, sagði fyrst að fáninn væri „hluti af okkur“ en eftir yfirlýsingu Haleys sneri hann við blaðinu og sagði að taka ætti fánann niður. Vendipunktur umræðunnar var þegar Mitt Romney, forseta- frambjóðandi repúblikana 2012, sem ákvað að bjóða sig ekki fram að þessu sinni, sagði á félagsvefnum Twitter að taka ætti fánann niður af þinghúsinu í Suður-Karólínu: „Í hugum margra er hann tákn um kynþáttahatur. Takið hann niður núna af virðingu við fórnarlömbin í #Charleston.“ Umdeildur fáni og arfur þrælahalds SUMIR LÍTA Á FÁNA SUÐURRÍKJANNA SEM TÁKN UM HETJUDÁÐIR OG HEIÐUR SUÐURSINS, ÖÐRUM FINNST HANN ENDUSPEGLA ÞRÆLAHALD OG KYNÞÁTTAHATUR. EFTIR MORÐIN Í CHARLESTON MAGNAST KRÖFUR UM AÐ FJARLÆGJA SUÐURRÍKJAFÁNANN. Karl Blöndal kbl@mbl.is FÁNI Á BANNLISTA Þessi mynd birtist á síðunni Lastrhodesian.com (í Ródesíu ríkti hvít minnihlutastjórn) af Dylann Roof, sem gefið er að sök að hafa myrt níu manns í kirkju í Suður-Karólínu. Hann er með Suðurríkjafánann í annarri hendi og byssu í hinni. AFP * Bandaríki hengingaTitill á ritgerð, sem Mark Twain skrifaði 1901 þegar honum ofbauðtíðni henginga á blökkumönnum í Bandaríkjunum. Hann hætti við útgáfu henn-ar og áform um bók um efnið vegna þess að gæfi hann efnið út myndi hann „ekki einu sinni eiga hálfan vin í suðrinu“. Alþjóðamál KARL BLÖNDAL kbl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.