Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Blaðsíða 35
28.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 L ífið væri nú sannarlega litlaust og leiðinlegt ef samferðafólkið væri ekki svona ansi uppátækjasamt og létt. Ég vil nú alls ekki meina að fávitar laði að sér aðra fávita en máltækið lík- ur sækir líkan heim býr yfir ákveðnu sannleikskorni. Mögulega eru það bara fávitar sem segja yfirleitt já í stað nei. Reynslan hefur samt kennt undirritaðri það, og er hún nú ekki fædd í gær, og sannað að með því að segja já í stað nei verður lífið eitt- hvað svo miklu líflegra. Hitastigið hærra og himinninn blárri en nokkru sinni fyrr … eða eitthvað. Þegar konur eru orðnar 38 ára gamlar eru þær nokkurn veginn búnar að átta sig á því fyrir hvað þær standa og hvað þær vilja fá út úr lífinu. Þess vegna þurfa þær ekkert að efast þegar gylliboðin detta af himnum ofan. Og ef gylliboðin detta ekki af himnum ofan kunna þær að pródúsera þétta skemmti- pakka með fjöri og ferðavinn- ingum. Það er gert til þess að stuð- stuðullinn fari ekki undir frost- mark. Það versta sem gæti gerst í lífi svona kvenna er að þær lentu í þeirri hræðilegu stöðu að leið- ast, sem gerði það að verkum að þær yrðu óhamingjusamari en nokkru sinni fyrr. Það eru til margar leiðir til að keyra upp stemninguna. Númer eitt, tvö og þrjú er að vera umvafinn fólki sem liggur eitthvað á hjarta. Fólki sem hefur ástríðu fyrir lífinu og velur björtu hliðarnar – ekki myrkrið. Fyrir einhverja dugir að hella í sig nógu af langdrykkjum en við erum nú ekkert að mæla með því hér! Þegar konur eru umvafðar uppátækjasömum vinkonum getur stuðið stundum farið yfir hættumörk. Á dögunum vorum við vinkonurnar staddar á hverfisveit- ingastaðnum eins og svo oft áður. Á meðan undirrituð brá sér frá í augnablik til þess að ræða við kunningja sína á næsta borði voru hinar búnar að skipuleggja húsbílaferð. Svona eins og konur gera á korteri eitt bjart föstudagskvöld í lok maí. Meðan þið liggið í makindum uppi í rúmi með Moggann og morg- unkaffið verð ég líklega að vaska upp í pallíettufötum í húsbílnum sem heitir því fallega nafni Kollan (í höfuðið á eigandanum). Þessar spariguggur voru nefnilega búnar að ákveða að þemað yrði Absolutely Fabulous og það kæmist enginn inn í húsbílinn nema vera í pallíettufötum. Ég sá það svo sem ekki sem hindrun því pallíettugleði síðustu ára kallar alveg á nokkur dress. Þetta er meira spurning um í hverju á að vera við. Pallíettur á pallíettum eru nefnilega alveg „last season“. Á einhverjum tímapunkti voru þessar vinkonur mínar að reyna að útbúa heitan pott sem hægt væri að draga aftan úr Kollunni en sem betur fer tókst það ekki. Það hefði án efa endað illa ef ég þekki þessa geimflaugasmiði rétt. Ef þið viljið fylgjast með þessari húsbílaferð minni í beinni þá minni ég á snapchattið mitt #Smartur. Þangað til næst – farið varlega. martamaria@mbl.is Það má nota pallíettur í allt. Þessar tvær eru með þetta! Spariguggur á húsbíl Absolutely Fabulous þemað verður tek- ið alla leið. © Sipa Press/Rex Fyrirtæki og verslanir Leikföng í úrvali UMBOÐSAÐILI: www.danco.is Kringlunni 4c – Sími 568 4900 AFSLÁTTAR DAGAR 25% afslátturaf öllum vörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.