Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Page 35
28.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
L
ífið væri nú sannarlega litlaust og leiðinlegt ef samferðafólkið
væri ekki svona ansi uppátækjasamt og létt. Ég vil nú alls
ekki meina að fávitar laði að sér aðra fávita en máltækið lík-
ur sækir líkan heim býr yfir ákveðnu sannleikskorni.
Mögulega eru það bara fávitar sem segja yfirleitt já í stað nei.
Reynslan hefur samt kennt undirritaðri það, og er hún nú ekki fædd
í gær, og sannað að með því að segja já í stað nei verður lífið eitt-
hvað svo miklu líflegra. Hitastigið hærra og himinninn blárri en
nokkru sinni fyrr … eða eitthvað.
Þegar konur eru orðnar 38 ára gamlar
eru þær nokkurn veginn búnar að átta
sig á því fyrir hvað þær standa og
hvað þær vilja fá út úr lífinu.
Þess vegna þurfa þær ekkert
að efast þegar gylliboðin
detta af himnum ofan. Og ef
gylliboðin detta ekki af
himnum ofan kunna þær að
pródúsera þétta skemmti-
pakka með fjöri og ferðavinn-
ingum.
Það er gert til þess að stuð-
stuðullinn fari ekki undir frost-
mark. Það versta sem gæti
gerst í lífi svona kvenna er að
þær lentu í þeirri
hræðilegu stöðu að leið-
ast, sem gerði það að
verkum að þær yrðu
óhamingjusamari en
nokkru sinni fyrr.
Það eru til margar
leiðir til að keyra upp stemninguna. Númer eitt, tvö og þrjú er að
vera umvafinn fólki sem liggur eitthvað á hjarta. Fólki sem hefur
ástríðu fyrir lífinu og velur björtu hliðarnar – ekki myrkrið. Fyrir
einhverja dugir að hella í sig nógu af langdrykkjum en við erum nú
ekkert að mæla með því hér!
Þegar konur eru umvafðar uppátækjasömum vinkonum getur
stuðið stundum farið yfir hættumörk.
Á dögunum vorum við vinkonurnar staddar á hverfisveit-
ingastaðnum eins og svo oft áður. Á meðan undirrituð brá sér frá í
augnablik til þess að ræða við kunningja sína á næsta borði voru
hinar búnar að skipuleggja húsbílaferð. Svona eins og konur gera á
korteri eitt bjart föstudagskvöld í lok maí.
Meðan þið liggið í makindum uppi í rúmi með Moggann og morg-
unkaffið verð ég líklega að vaska upp í pallíettufötum í húsbílnum
sem heitir því fallega nafni Kollan (í höfuðið á eigandanum).
Þessar spariguggur voru nefnilega búnar að ákveða að þemað
yrði Absolutely Fabulous og það kæmist enginn inn í húsbílinn
nema vera í pallíettufötum. Ég sá það svo sem ekki sem hindrun því
pallíettugleði síðustu ára kallar alveg á nokkur dress. Þetta er
meira spurning um í hverju á að vera við. Pallíettur á pallíettum eru
nefnilega alveg „last season“.
Á einhverjum tímapunkti voru þessar vinkonur mínar að reyna að
útbúa heitan pott sem hægt væri að draga aftan úr Kollunni en sem
betur fer tókst það ekki. Það hefði án efa endað illa ef ég þekki
þessa geimflaugasmiði rétt.
Ef þið viljið fylgjast með þessari húsbílaferð minni í beinni þá
minni ég á snapchattið mitt #Smartur.
Þangað til næst – farið varlega. martamaria@mbl.is
Það má nota pallíettur í allt.
Þessar tvær eru með þetta!
Spariguggur
á húsbíl
Absolutely
Fabulous
þemað
verður tek-
ið alla leið.
© Sipa Press/Rex
Fyrirtæki og verslanir
Leikföng í úrvali
UMBOÐSAÐILI:
www.danco.is
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
AFSLÁTTAR
DAGAR
25% afslátturaf öllum vörum