Bókasafnið - 01.05.2012, Side 7
7
bókasafnið 36. árg. 2012
og auk þess sé stór hluti þess pappírs sem fer til bókagerðar
endurnýttur pappír. Bókaútgefendur halda því einnig á lofti
að þeir séu yfi rleitt mjög meðvitaðir umhverfi sverndarsinnar.
Við framleiðslu spjaldtölva og snjallsíma (smartphones)
sé hins vegar vafasamur efnaiðnaður oft stundaður, þar
sem níðst sé á fátækustu þjóðum heims með skelfi legum
afl eiðingum (sbr. nýlegan sjónvarpsþátt: Blood in the mobile).
Í framhaldi af því má minna á að stór hluti þjóða heims, sem
eru jú hluti af IFLA með sín fögru markmið um jafnrétti allra
til menntunar og þroska, eiga sér ekki einu sinni eiginleg
bókasöfn. Þar eru dýrir hlutir eins og spjaldtölvur fj arlægur
draumur, enda yrðu þær reyndar víðast hvar gagnslausar
þótt svo ólíklega vildi til að einhver hefði efni á slíku, þar sem
rafmagn og rafskiptasambönd eru víða hverful ef nokkur hjá
talsvert stórum hluta mannkyns.
Nýlega hefur UNESCO samþykkt stefnuyfi rlýsingu IFLA um
rafræn bókasöfn þar sem lögð eru fram fögur markmið:
„... to assist libraries in undertaking sustainable and
interoperable digitisation activities to bridge the
digital divide – a key factor in achieving the Millennium
Development Goals of the United Nations. Digital libraries
are essential for access to information, and for preserving
national heritage.“
Guð láti á gott vita en því miður er oft himinn og haf milli
fagurra yfi rlýsinga og raunverulegra athafna en orð eru þó til
alls fyrst. Trúlega kæmu rafrænar bækur og rafræn bókasöfn
hvergi betur að notum en hjá þeim þjóðum sem lítils mega sín
bæði fj árhagslega og menningarlega séð.
Ég velti þess vegna fyrir mér svona í lokin hvort við, þessi
(tækja)gráðuga þjóð þægindanna, ættum ekki að láta vit okkar
og raddir heyrast á réttum vettvangi, til dæmis með eftirfylgni
IFLA-yfi rlýsingarinnar, sem styrkt gæti þá sem minnst hafa á
þessu sviði. Það er eftirsóknarvert að sem fl estar þjóðir verði
samferða okkur svo við gætum notið þess að ganga saman
í takt öllum til góðs í stað þess að olnboga okkur áfram. Um
leið gætum við minnt okkur á að við erum manneskjur með
að minnsta kosti fi mm skilningarvit sem okkur ber að nýta til
fulls.
Til stuðnings:
Schaverien, Adele. (2006). Horn. Its history and its uses. [Wahroonga,
N.S.W. : s.n.].
Jönsson, Jan. (2008). Läsmaskinen. Aspekter på bild och bok med
utgångspunkt i Anders Billows verksamhet 1923-1953. Smygehamn : Jan
Jönsson.
Margrét Hallgrímsdóttir. (1990). Rannsóknir í Viðey. Vaxspjöld frá
15. öld fi nnast við uppgröft rústa Viðeyjarklausturs. Árbók Hins íslenska
fornleifafélags 1990, bls. 91-132.
„Book buzz - Economics of e-readers“, Eco-Libris. Sótt 28. des. 2011 af:
http://www.ecolibris.net/bookbuzz.asp
„Books are eternal“, Sarcasm is an art. Sótt 28. des. 2011 af: http://
iperfectedcramming.wordpress.com/tag/books-vs-ebooks/
Blood in the mobile. Sótt 29. des. 2011 af: http://bloodinthemobile.org
„UNESCO endorses the IFLA Manifesto for Digital Libraries”, IFLA :
Digital libraries. Sótt 3. jan 2012 af: http://www.ifl a.org/en/news/unesco-
endorses-the-ifl a-manifesto-for-digital-libraries
Árbók Hagstofu Íslands, Landshagir, hefur komið út í 20 ár. Hún er ómissandi rit
um flesta þætti íslensks samfélags. Traustar hagskýrslur eru í raun forsenda þess að
reka flókin velferðarsamfélög og markaðshagkerfi nútímans.
Tuttugasti árgangur Landshaga var gefinn út aukinn og endurbættur á fyrsta
alþjóðadegi hagtalna 20. október síðastliðinn. Bókin kostar aðeins 4.900 krónur
og hana má panta á netinu.
Áskrift
Hagstofan býður bókasöfnum landsins að kaupa áskrift að Landshögum með
10% afslætti, en það má gera á auðveldan hátt á vefnum. Bækurnar hafa mikið
upplýsingagildi og ættu að vera öllum aðgengilegar.
Vantar þig eldri árganga í safnið?
Þau bókasöfn sem kaupa áskrift að Landshögum gefst kostur á að
kaupa eldri árganga á aðeins 1.000 krónur stykkið. Hringið eða
sendið tölvupóst og við sendum ykkur það sem vantar um hæl.
www.hagstofa.is/landshagir
Hversu vel þekkir þú
íslenskt samfélag?
20
ÁRA
9 Yfir 300 töflur
9 Yfir 50 gröf og skýringarmyndir
9 468 blaðsíður, allar í lit
9 Skýringartexti bæði á
íslensku og ensku
528-1100 | h upplysingar@hagstofa.is