Bókasafnið - 01.05.2012, Side 16

Bókasafnið - 01.05.2012, Side 16
16 „Hvaðan kemur ykkur kraftur til að draga þetta þunga hlass?“ Sú sem spyr er ein af lykilpersónum í bókasafnsfræðslu í Svíþjóð. Já, hvað höfum við eiginlega fram að færa? Að halda alþjóðlega ráðstefnu undir þeim talsvert háfleyga titli „Creating Knowledge“ hefur það markmið að beina sjónum að einum hinna nýrri háskóla, kemur okkur svolítið áleiðis en nær alls ekki að gera tæmandi grein fyrir því gæðastarfi sem á sér stað innan fræðsludeildar háskólabókasafnsins í Linköping. Hvernig byrjaði NordINFOLIT og verður framhald á því? „Fyrir alla muni finnið nú upp á einhverju sem kemur háskólanum í Malmö á kortið og snýst um brennandi spurningar í einmitt þessu samhengi!“ Það er forstöðumaður markaðs- og kynningarsviðs hins splunkunýja háskóla sem varpar þessari áskorun til okkar, samankominna fulltrúa svokallaðra sviða – ekki deilda, hins nýja lærdómsseturs, þar með talið háskólabókasafnsins. Við fjögur nýráðnu förum strax að hugsa um hugtakið sem farið er að bera á hér og þar í bókasafnsheiminum: information literacy eða upplýsingalæsi. Hugsað, sagt og gert. Tvö okkar eru send til Banda- ríkjanna, þar sem málið er virkilega efst á baugi, til þess að sækja sumarskólann „Immersion“, sem haldinn er ár hvert í ýmsum ríkjum sem eru þátttakendur í Amerísku bóka- varðasamtökunum (ALA – American Library Association). Þar halda allir kennararnir því ákaft fram að „to be a librarian today is to be a teacher.“ Þegar við erum komin heim til Malmö byrjum við svo að halda alþjóðlegar ráðstefnur með áherslu á upplýsingalæsi frá ýmsum sjónarhornum og nefnum þær „Creating Knowledge“. Við leggjum áherslu á að bjóða alltaf þekktum og viðurkenndum fyrirlesurum frá ýmsum löndum. Má þar nefna Patricia Senn Breivik frá Bandaríkjunum, Christine Bruce frá Ástralíu og Sheila Webber frá Bretlandi. Í einni af fyrstu ráðstefnunum vorið 2001 tekur Sigrún Klara Hannesdóttir forstjóri NORDINFO (Norræna ráðið um vísindalegar upp- lýsingar) þátt. Með sinni einstöku atorkusemi horfir hún einbeitt á okkur og segir hvetjandi: „Nú verðum við að koma þessu á í norrænu löndunum. Komið til okkar á 25 ára afmælisráðstefnuna „Content is King – Nordic Forum on Information Policy“ í Helsingfors í haust og við bjóðum upp á styrk fyrir tvo frá öllum Norðurlöndunum og svo finnið þið upp á einhverju góðu sem við getum stutt í framhaldinu“. Þetta var tilboð sem ekki var hægt að hafna. Í framhaldinu varð samstarfsverkefnið NordINFOLIT (Nordiskt forum för samarbete inom området informationskompetens - Nordic Forum for Information Literacy) til með einum fulltrúa frá hverju norrænu landi. Sporin fjögur sem við ákváðum í Helsingfors að við vildum vinna eftir hafa í stórum dráttum enst í tíu ár þrátt fyrir að NORDINFO hafi verið lagt niður 2004 og styrkurinn legðist af. 1. skref: Miklar gæðakröfur gerðu að Sumarskóli í upp- lýsingalæsi hefur verið haldinn í eina viku árlega til skiptis í hverju Norðurlandanna fyrir sig. Fyrsta námskeiðið sem haldið var í Kaupmannahöfn stóð reyndar í tvær vikur en svo kom í ljós að erfitt var að fá þátttakendur sem gátu verið svona lengi fjarverandi. Samtals hafa verið haldnir tíu sumarskólar fyrir norræna bókasafnsfræðinga, alltaf á sérstökum stöðum eins og í Færeyjum, í skerjagarðinum í Stokkhólmi og Finnlandi, á Jótlandi í Danmörku, í fjörðunum í Noregi og á heimili Snorra Sturlusonar í Reykholti á Íslandi. 2. skref: Ráðstefnan „Creating Knowledge“ hefur verið haldin annað hvert ár með um það bil 120 þátttakendum í hvert sinn. Viðfangsefni hafa meðal annars verið náms- umhverfið (the learning environment), kennsluhlutverk bókasafnsfræðingsins (the educational role of the librarian), upplýsingahegðun (information behavior), samvinna stofnana (cross-institutional collaboration) og upplýsingalæsi og margbreytileiki (information literacy and diversity). 3. skref: Vefsetrið hefur verið erfiðasta viðfangsefnið gegn- um árin. Eins og allir vita sem reynt hafa, er erfitt að halda úti lifandi og virkum vef, en metnaðurinn hefur líka verið mikill NordINFOLIT – tíu ára afmæli og breytingar Christina Tovoté, formaður stýrihóps NordINFOLIT, 2001-2010 Þýtt og staðfært af Stefaníu Arnórsdóttur og Astrid Margréti Magnúsdóttur

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.