Bókasafnið - 01.05.2012, Page 24

Bókasafnið - 01.05.2012, Page 24
24 bókasafnið 36. árg. 2012 fyrir Borgarbókasafn, sem ég leyfi mér að segja að hafi líka haft áhrif á önnur almenningsbókasöfn í landinu, sveitarfélögin kepptust um að gera vel við bókasöfnin sín, bókasafnabóla blés út. Við fengum nýjan bókabíl, Höfðingja, 2001 og síðar sama ár flytur Bústaðasafn í nýtt húsnæði í Kringlumýri og kallast þá Kringlusafn, Ársafn í Árbæjarhverfi var opnað 2004 og sögubíllinn Æringi fer af stað 2008. Lánaðist að stofna Landskerfi bókasafna Því miður, þegar Borgarbókasafn og fleiri söfn tölvuvæddust í kringum 1990, þá tókst ekki að sameinast um eitt kerfi fyrir bókasöfn landsins, það var reynt á þeim tíma, en tókst ekki. Það var alveg stórkostleg breyting þegar Borgarbókasafn og fleiri söfn tóku Feng í notkun og Landsbókasafn og fleiri söfn Gegni, en þessi aðskilnaður tölvukerfa var því miður hamlandi fyrir samstarf, nú svo ekki sé talað um óþarfa tvíverknað. Við finnum svo vel muninn. Þegar okkur lánaðist að stofna Landskerfi bókasafna fyrir rúmum tíu árum, árið 2001 og taka í notkun árið 2003 eitt kerfi fyrir allt landið, sem fékk nafnið Gegnir, breytti það miklu varðandi samstarf, verkaskiptingu, samþættingu. Slagkrafturinn í bókasöfnum landsins hefur orðið meiri og erum við öfunduð af erlendum kollegum vegna þessa. Samstarfið vegna Landsaðgangsins hvar.is hefur enn frekar aukið slagkraftinn í bókasöfnunum. Árið margumtalaða 2007 var hafin vinna við að þróa þjónustu Landskerfis enn frekar með því að bæta viðmót kerfisins en svo verður hrunið 2008 og þá voru menn við það að gefast upp. Sem betur fór létum við hrunið ekki slá okkur út af laginu og leitir.is leit dagsins ljós. Hér má líka nefna sjálfsafgreiðsluvélarnar sem teknar voru í notkun árið 2007 og rétt sluppu í hús fyrir hrunið, en þær hafa gjörbreytt vinnu starfsmanna Borgarbókasafns. Auðvitað voru margir á varðbergi gagnvart þessu og héldu að starfsmönnum yrði sagt upp, en það kom auðvitað aldrei til greina. Innleiðing sjálfsafgreiðsluvélanna hefur hins vegar losað starfsmenn undan rútínuvinnu og gefið þeim færi á að fara í önnur og fjölbreyttari verkefni. Rýmið – hætt að vera svona hæversk Ég hef stundum sagt að almenningsbókasafn væri starfs- mennirnir, safnkosturinn og húsnæðið eða rýmið í þessari röð. Lengst af var Gerðubergssafn, sem var opnað 1986 í Breiðholti, eina safnið sem var í ásættanlegu húsnæði, rými þar sem hægt var að bjóða upp á alvöruþjónustu og viðburði. Rýmið hefur stækkað, ekki aðeins innan fjögurra veggja bókasafnanna. Við lítum æ meir á alla borgina sem almenningsrými þar sem Borgarbókasafn er mótandi og tekur þátt. Við erum inni í húsnæði annarra með til dæmis fjölmenningarverkefni, á götum úti, til dæmis menningargöngur og hátíðir, eða í sýndarheimi eins og með bókmenntavefinn. Við vildum ekki vera uppáþrengjandi, vildum gæta virðingar, áttum bara að vera til staðar og fólk átti að koma til okkar. Við erum hætt að vera svona hæversk. Nú erum við miklu ófeimnari, jafnvel við að gera mistök, við erum í fjölmiðlum og starfsmenn koma fram sem talsmenn einstakra verkefna safnsins. Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á það sem yfirmaður að það sé ekki ég sem er alltaf að segja frá starfseminni. Hver yrði ekki hundleiður á því að heyra alltaf í sama starfsmanni safnsins? Þeir sem eru með verkefnin gera það miklu betur en ég og af miklu meiri eldmóði. Ég treysti samstarfsmönnum mínum sem nánast undantekningarlaust gera miklu meira og miklu betur en einhverjir hefðu kannski haldið fyrirfram. Það er bara þannig. Við erum einhvern veginn miklu afslappaðri með hvað ,,á við“ í bókasafninu, óhræddari við að bjóða einstaklingum eða hópum sem eru með spennandi hugmyndir að vinna með okkur. Við leggjum áherslu á sem fjölbreytilegasta viðburði af því nú getum við það rýmisins vegna. Gott dæmi er að núna í maí verður fundaröð, þrír fundir, þar sem fram fer kynning á forsetaembættinu og frambjóðendur kynna sig. Samræmi í þjónustu – hvert sitt svipmót Við erum löngu búin að úthýsa orðinu útibú! Söfnin eru hverfissöfn en ekki ,,útibú“ frá, ja hverju, aðalsafni? Þótt það þurfi auðvitað að vera mjög gott samræmi í þjónustu, þá er miklu skemmtilegra að söfnin hafi hvert sitt svipmót. Áherslur og leiðir geta verið mismunandi og þó að eitt safn sé að gera eitthvað, þá þarf ekki endilega næsta safn að vera að gera nákvæmlega sama hlutinn. Það er bara skemmtilegra að það sé breytileiki, bæði í rýminu, hvað fólk sér þegar það kemur inn og hvað er að gerast. Mér finnst það mikið atriði að starfsfólkið á hverfissöfnunum hafi tiltölulega frjálsar hendur, því það veit best hvað hentar í hverju hverfi, þar eru mismunandi stofnanir, vinnustaðir, skólar og mismunandi möguleikar og tækifæri. Mjög oft er það sama að gerast í mörgum, jafnvel í öllum söfnum en líka hafa þau ólíkar áherslur og fara ólíkar leiðir til að örva. Ég nefndi áður að Reykjavík varð ein af menningarborgum Evrópu árið 2000. Þá settum við upp í nýja aðalsafninu stóra farandsýningu með bókum frá öllum menningarborgunum níu. Afar minnistætt og hefði ekki verið mögulegt að gera nema í þessu nýja húsnæði. Það afsprengi menningarborgarársins 2000 sem lifir er Bókmenntavefurinn, bokmenntir.is, sem er ein af skrautfjöðrunum okkar. Hann var upphaflega hluti af samstarfsverkefni sex af níu menningarborgunum. Verkefnið Bókasýning menningarborganna árið 2000.

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.