Bókasafnið - 01.05.2012, Síða 27
27
bókasafnið 36. árg. 2012
2. Upphafið
Síðla árs 2007 fékk stjórn Landskerfis bókasafna erlendan
ráðgjafa, Dr. Karl Wilhelm Neubauer, til liðs við sig til að
taka þátt í hugmyndavinnu um hvernig efla mætti þjónustu
félagsins. Niðurstaða vinnunnar var að áhugavert væri að
kanna möguleika á að koma á laggirnar samþættri leitarvél
(integrated search engine) fyrir Ísland, en í heitinu fólst að
komið yrði á samleit í Gegni og tengdu stafrænu íslensku
efni ásamt erlendum áskriftum í Landsaðgangi. Lagt var
til að gengið yrði til samstarfs við Konunglega bókasafnið
í Kaupmannahöfn og Danska tækniháskólann (DTU) um
að útbúa frumgerð að slíku kerfi og yrði það byggt á líkani
dönsku samstarfsaðilanna. Horft var til þess að leit að greinum
í Landsaðgangi yrði í gegnum svokallaða DADS (Digital Article
Database Service)1 þjónustu Danska tækniháskólans en aðrir
sambærilegir möguleikar voru ekki í boði á þessum tíma.
Vinna við frumgerðina var að mestu greidd af Landskerfi
bókasafna en einnig fengust styrkir frá Borgarbókasafni
Reykjavíkur, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og
frá menntamálaráðuneyti í tengslum við verkefni á stefnuskrá
ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið, Netríkið Ísland
2008-2012.
Vinna við frumgerðina hófst síðla árs 2008 og stóð hún
fram á mitt næsta ár. Þá var orðið ljóst að um afar vænlegan
kost væri að ræða og í kjölfarið hófst athugun á mögulegum
fjármögnunarleiðum. Huga þurfti að stofnkostnaði sem
fólst í kaupum á kerfinu og uppsetningu þess, en ekki síður
aukningu á árlegum rekstarkostnaði í tengslum við hýsingu
og daglega umsjón kerfisins þar sem nýir tekjumöguleikar
voru ekki í sjónmáli. Þegar hér var komið sögu var allt annað
en augljóst að hægt yrði að ráðast í verkefni af þessari
stærðargráðu þrátt fyrir að ávinningurinn væri augljós öllum
þeim sem að vinnu við frumgerðina höfðu komið en miklar
breytingar höfðu orðið í íslensku samfélagi frá því að vinnan
hófst á árinu 2007.
Eftir skoðun á mögulegum leiðum var lagt til að verkefninu
yrði skipt í nokkra áfanga. Í fyrsta áfanga skyldi horft til Gegnis
og stafræns íslensks efnis bókasafna. Tenging Landsaðgangs
var fyrirhuguð í áfanga tvö að því gefnu að fjármögnun
þess áfanga væri tryggð. Í næstu áföngum yrði svo horft til
annarra safna menningarsögulegs efnis. Eigendur Landskerfis
bókasafna veittu samþykki sitt fyrir því að því að fyrsti áfangi
yrði fjármagnaður í gegnum afskriftasjóð félagsins enda mætti
líta svo á að um kerfislega endurnýjun Gegnis (gegnir.is) væri
að ræða. Þegar á reyndi kom í ljós að framleiðandi kerfisins, Ex
Libris, var tilbúinn til þess að koma verulega til móts við félagið
varðandi leyfis- og viðhaldsgjöld vegna kerfisins. Samningur
um kaup á kerfinu, sem undirritaður var síðla desember 2009,
innihélt einnig ókeypis eins árs tilraunaáskrift að glænýrri
þjónustu. Þjónustan kallast Primo Central Index (PCI)2 og
var hér kominn nýr og áður óþekktur möguleiki til að tengja
Landsaðgang inn í samleitina. Nánar verður sagt frá þessari
þjónustu síðar. Hér opnaðist ný leið til að taka Landsaðgang
með í tilraunaskyni í fyrsta áfanga. Gífurlegar framfarir höfðu
orðið á tímabilinu í aðgengi að rafrænum tímaritsgreinum en
við upphaf þess var það aðeins Danski tækniháskólinn sem
gat státað af gagnagrunni með lýsigögnum frá fjölmörgum
útgefendum og birgjum auk þjónustu fyrir utanaðkomandi til
að tengjast honum.
Vinnan við uppsetningu og innleiðingu hins nýja sam-
leitarkerfis hófst á árinu 2010 en hún var unnin í góðu
samstarfi við Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn og Ex
Libris. Kerfið var formlega opnað í nóvember 2011 á léninu
leitir.is, en hafði verið opið á netinu í prófunarútgáfu frá lokum
mars á sama ári.
3. Grunnlýsing á kerfi
Vefurinn leitir.is byggir á Primo3 hugbúnaðinum frá Ex Libris
sem er jafnframt framleiðandi Aleph bókasafnskerfisins
(Gegnir) og SFX krækjukerfisins og vinna kerfin öll mjög vel
saman.
Leitarvélin að baki Primo er Lucene leitarvélin sem er
sama leitarvél og notuð er hjá Google. Því má segja að verið
sé að færa google-leitina yfir á efni safnanna. Þegar leitað er
í leitir.is er leitað samtímis í öllum gögnum leitarvélarinnar og
kerfislega er mögulegt að leita í heildartexta þó að sá möguleiki
hafi ekki verið virkjaður enn. Þar sem leitarniðurstöðurnar eru
meðhöndlaðar og birtar sem ein heild burtséð frá því hvaðan
þær koma, verður notandinn ekki var við að hann sé í raun að
leita í mörgum gagnasöfnum samtímis.
Í leitir.is er til staðar öll sú grunnvirkni sem notendur
bókasafna þekkja. Notendur geta meðal annars endurnýjað
21. september 1927, fjárrekstur við Þjórsá í Þjórsárdal. Ljósmyndari
Ólafur Magnússon. Höfundarréttur hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
1. http://www.dtic.dtu.dk/infosog/dads.aspx
2. http://www.exlibrisgroup.com/category/PrimoCentral
3. http://www.exlibrisgroup.com/category/PrimoOverview