Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 28
28
bókasafnið 36. árg. 2012
útlán sín og beðið um frátektir, pantað millisafnalán og flutt
færslur í heimildaskráningarforrit. Mikið af þeirri þjónustu,
sem er í boði, krefst innskráningar, en til að skrá sig inn í kerfið
er notað sama notandanafn og lykilorð og notað er á gegnir.is.
Undanfarin ár hefur þróun almennt verið í átt til einfaldra
leitarkerfa og eru flestir orðnir vanir því að nota einfalda leit
sem auðvelt er að þrengja og aðlaga. Notendur gera kröfur
um leitarvef sem er í takt við þá þá leitarvefi sem þeir þekkja
annars staðar frá og segja má að með Primo hugbúnaðinum
hafi verið kynnt til sögunnar ný kynslóð leitarvéla fyrir
bókasöfn. Notandinn getur auðveldlega valið hvort hann
notar einfaldan leitarglugga sem birtist strax á forsíðu eða
notar ítarlega leit þar sem hægt er að tengja saman leitarorð
úr ólíkum leitarsviðum. Hvor möguleikinn sem valinn er, þá er
sama afmörkun eftir flokkum (facets) alltaf til staðar.
Framsetning á leitarniðurstöðum í leitir.is er bæði skýr
og myndræn. Myndir af bókarkápum, bæði íslenskum og
erlendum, hafa verið tengdar við leitarniðurstöðurnar og
vonir standa til að einnig verði hægt bæta við forsíðumyndum
DVD mynda og hljóðrita ásamt smámyndum af ýmsu efni svo
sem ljósmyndum. Rafrænu efni er gert hátt undir höfði og
auðvelt er að sjá strax og leit hefur verið framkvæmd hvaða
efni er aðgengilegt rafrænt.
Að auki er FRBR (Functional Requirements for Bibliographic
Records) hluti af grunnvirkni leitir.is, en með þeirri virkni
eru ólíkar útgáfur sama rits paraðar saman til að auðvelda
notandanum að finna aðgengileg eintök.
4. Möguleikar
Með leitir.is opnast ýmsir nýir möguleikar sem gera leit
að upplýsingum bæði einfaldari og skemmtilegri en áður
var. Hér á eftir er tæpt á nokkrum þeirra, en listinn er langt
í frá tæmandi og víst er að í framtíðinni verður þjónustan
enn fjölbreyttari og möguleikum á virkni, sem auðvelda
heimildaleitir, mun fjölga.
Árvekniþjónusta
Í leitir.is er hægt vera áskrifandi að RSS-veitum auk þess
sem boðið er upp á þann möguleika að vista leitir sem
framkvæmdar eru. Hér er talað um árvekniþjónustu en þrenns
konar árvekniþjónusta er í boði í leitir.is:
• RSS straumar (rss) gerir notanda kleift að fylgjast með
nýjum leitarniðurstöðum í leitir.is. Með hjálp sérstakra
forrita, RSS lesara svo sem Google Reader, er hægt að
vakta RSS strauminn. Flestir vafrar birta líka RSS
strauma. Þegar notandi hefur skráð sig í áskrift að RSS
straumi á leitir.is er nýjustu niðurstöðum safnað saman
og þær birtar í RSS lesaranum. Þetta sparar
notandanum endurtekna leit að tilteknu efni sem hann
vill vera í áskrift að.
• Geymsluleitir (vista leit) en þá er leit vistuð á rafrænni
hillu í leitir.is og þaðan má framkvæma hana aftur eftir
þörfum.
• Árvekniþjónusta (vista & tilkynna leit) þar sem leit er
vistuð og notandinn fær sendar upplýsingar í
tölvupósti þegar nýtt efni á hans áhugasviði bætist við.
Tveir síðasttöldu þjónustuþættirnir krefjast innskráningar í
leitir.is.
Tungumálavirkni
Í dag er boðið upp á viðmót á tveimur tungumálum í leitir.is –
íslensku og ensku – en mögulegt er að bæta fleiri tungumálum
við. Primo kerfið býður einnig upp á mismunandi virkni eftir
tungumáli viðmóts, en í dag er uppsetningin þannig að
virknin er óháð tungumáli og tungumálavirkni að mestu
samkvæmt grunnuppsetningu kerfisins.
Til að ná fram virkni tengdri tungumálum þarf að leggja í
mikla vinnu við uppsetningu á íslenskum orðalistum og því
er nauðsynlegt að sú vinna fari fram í samstarfi bæði við aðila
á orðabókamarkaði og ekki síður aðila frá söfnunum sjálfum.
Sem dæmi um virkni tengda tungumáli má nefna
eftirfarandi:
Stopporð eru orð sem kerfið lítur framhjá við leit og breytir
í stafabil. Dæmi um stopporð geta til dæmis verið smáorð eins
og „a“ „but“ „or“ og eins hafa boolean leitarskipanirnar „and“
„or“ „not“ með lágstöfum verið meðhöndlaðar sem stopporð.
Stopporð þarf að meðhöndla með varkárni þar sem orð geta
haft gjörólíka merkingu eftir tungumáli. Sem dæmi má nefna
að orðið „and“ hefur gjörólíka merkingu í ensku og dönsku og
erfitt gæti reynst að finna heimildir um Andrés önd á dönsku
ef „and“ er meðhöndlað sem stopporð.
Orðstofnastytting (stemming) felst í því að ef leit skilar
færri en skilgreindu lágmarki leitarniðurstaðna (í dag er
miðað við 25 niðurstöður) er leitarorðið stytt niður í næsta
orðstofn. Dæmi um þetta er til dæmis leit að orðinu Langanes,
en sú leit skilar einnig leitarniðurstöðum fyrir orðið langan.
Orðstofnastyttingin í leitir.is byggir á Kstem algoritmanum.
Samheitaleit virkar á þann hátt að þegar leit er framkvæmd
er samtímis leitað að þekktum og skilgreindum samheitum.
Þannig leitar kerfið bæði að „11“ og „ellefu“ ef leitarorðið „11“
er slegið inn að því gefnu að búið sé að skilgreina þessi orð
sem samheiti.
Áttirðu við? (Did you mean?) er virkni sem notendur þekkja
orðið frá flestum leiðandi leitarvélum. Þessi virkni byggir á
upplýsingum úr tungumálaskrám ásamt upplýsingum úr
gögnunum sem eru í leitir.is og kemur með uppástungur um
ný leitarorð, til dæmis ef leit skilar engum niðurstöðum.
Röðun
Röðun niðurstaðna (ranking) eftir fyrirframskilgreindum
atriðum er ekki ný af nálinni og á leitir.is er hægt að raða
leitarniðurstöðum efir höfundi, titli, útgáfuári og vægi.
Vægisröðunin er nýmæli, en hún er sjálfgefin í leitir.is. Sú
röðun gæti virst algjörlega tilviljunarkennd en svo er ekki.
Við vægisröðun er einkum horft á staðsetningu leitarorðs
og hversu oft það kemur fyrir í færslunni. Þannig raðast
leitarniðurstöður ofar í niðurstöðulista ef leitarorðið kemur