Bókasafnið - 01.05.2012, Side 29
29
bókasafnið 36. árg. 2012
fyrir í höfundar- eða titilsviði heldur en ef það kemur fyrir
í öðrum sviðum eins og til dæmis athugasemdarsviði. Að
auki spila vinsældir ritsins inn í röðunina, en þær bækur
sem eftirsóttastar eru og fara oftast í útlán raðast þá ofar í
niðurstöðulista.
5. Gögnin
Með leitir.is hefur opnast sá möguleiki að leita frá einum
stað í fjölbreyttu efni safna, hvort sem um ræðir hefðbundið
efni eins og bækur og tímarit eða óhefðbundið efni eins og
ljósmyndir og rafbækur. Efnið er ýmist rafrænt eða prentað,
íslenskt eða erlent og má nefna bækur, tímarit, tímaritsgreinar,
námsritgerðir, tónlist, kvikmyndir, kort og ljósmyndir. Eigendur
og/eða ábyrgðaraðilar gagnanna eru bókasöfn landsins auk
Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Gögnin eru uppfærð reglulega,
allt niður í uppfærslu á klukkustundar fresti.
Leitarvélinni leitir.is er þó ekki aðeins ætlað að leita í
gögnum bókasafna, heldur er ætlunin að gera þar einnig
leitarbær önnur söfn svo sem minjasöfn og listasöfn svo fátt
eitt sé nefnt. Hér er verið að horfa til þess að gera aðgengilegar
ljósmyndir, myndir og lýsingu á munum af ýmsu tagi, hljóð-
og myndupptökur auk ýmis konar rafræns efnis. Leitir.is
ræður enda ekki aðeins við lýsigögn á Marc-sniði heldur flest
gögn á stöðluðu formi, til dæmis MarcXML og Dublin Core.
Leiðarstefið er að notandinn finni ætíð í upplýsingaleit sinni
fjölbreytt gögn sem eru í umsjá eða eigu íslenskra safna.
Í dag eru gögnin aðgengileg á tveimur flipum í leitir.
is. Á fyrri flipanum, Bækur, tímarit og fleira, er hægt að
leita í Gegni og öðru íslensku efni. Á flipa tvö, Greinar í
landsaðgangi, er leitað í Landsaðgangi. Vegna gífurlegs
magns gagna í Landsaðgangi hefur ekki verið talið fýsilegt að
gera hann leitarbæran á sama flipa og Gegni og annað íslenskt
efni. Leggja þyrfti í mjög mikla vinnu við röðun til að tryggt
væri að íslenska efnið týndist ekki í leitarniðurstöðunum.
Bækur, tímarit og fleira
Í dag eru eftirfarandi gagnasöfn aðgengileg þegar leitað er á
fyrri flipa á leitir.is:
• Bækur.is - stafræn endurgerð gamalla íslenskra bóka.
• Elib - áskrift bókasafns Norræna hússins að hljóð- og
rafrænum bókum.
• Gegnir - samskrá íslenskra bókasafna.
• Hirsla - geymir vísinda- og fræðigreinar starfsmanna
Landspítala- háskólasjúkrahúss.
• Myndavefur Ljósmyndasafns Reykjavíkur - inniheldur
fjölmörg ljósmyndasöfn í eigu safnsins.
• Skemman - safn námsritgerða og rannsóknarita
íslenskra háskóla.
• Timarit.is - veitir aðgang að fjölmörgum dagblöðum
og tímaritum sem hafa verið gefin út á Íslandi,
Grænlandi og í Færeyjum.
Greinar í landsaðgangi
Rafrænar áskriftir Landsaðgangs – hvar.is hafa verið gerðar
aðgengilegar á sérstökum flipa í leitir.is. Nýmæli er að hægt
er að leita í rafrænum tímaritsgreinum í áskrift Landsaðgangs
en ekki einungis tímaritstitlum eins og áður var. Þegar leitað
er í greinum í Landsaðgangi skilar leitin mjög yfirgripsmiklum
niðurstöðum.
Þetta er gert kleift á grunni þjónustu sem keypt er í áskrift
af Ex Libris, en hún heitir Primo Central Index (PCI). Í PCI er búið
að safna saman og lykla lýsigögn rafrænna tímaritsgreina frá
fjölmörgum útgefendum og endursöluaðilum tímarita. Þegar
leitað er frá flipanum Greinar í landsaðgangi í leitir.is er í
reynd verið að leita í lýsigögnum PCI, sé áskrift til staðar sér
SFX krækjukerfið um að veita aðgang að heildartexta greinar.
Segja má að nánast allt efni Landsaðgangs sé aðgengilegt
í gegnum leitir.is og hefur Ex Libris náð samningum við flesta
útgefendur. Enn eru þó nokkrir útgefendur sem ekki hafa
náðst samningar við og á Ex Libris nú í viðræðum við þá. Af
þessum útgefendum má helst nefna EBSCO, Proquest og OVID
en þó að ekki hafi náðst samningar er yfir 70% af efni þeirra
nú þegar aðgengilegt í leitir.is gegnum aðra útgefendur og
heildartexti aðgengilegur með SFX krækjukerfinu. Rafrænu
áskriftirnar eru á mikilli hreyfingu og stöðugt er verið að
bæta við nýjum gagnasöfnum. Þar af leiðir að efni sem vantar
í leitarniðurstöður í dag gæti verið komið í grunninn næst
þegar hann er notaður. Þá er efni í Oxford Art og Music Online
(Grove söfnin) og Encyclopedia Britannica ekki leitarbært en
tenglar á leitarvélar þeirra birtast neðst í leitarniðurstöðum í
leitir.is.
Úr leitarglugga á heimasíðu Landsaðgangs, hvar.is, er leit
vísað í leitir.is. Niðurstaðan er sú sama og þegar leitað er beint
frá flipanum Greinar í landsaðgangi. Þetta eru þannig tvær
leiðir að sama marki.
Rétt er að benda á að umhverfi leitir.is er að mörgu leyti
ólíkt umhverfi einstakra gagnasafna Landsaðgangs og
því gefur beinn samanburður á niðurstöðum úr leitir.is og
niðurstöðum úr einstökum gagnasöfnum ekki alltaf rétta
mynd af undirliggjandi gögnum.
Þessa dagana er unnið að því að gera rafrænar séráskriftir
safna sem skráðar eru í SFX krækjukerfið aðgengilegar í
leitir.is. Þegar þeirri vinnu lýkur munu lánþegar fá aðgang
að rafrænum áskriftum síns safns til viðbótar við áskriftir
Landsaðgangs.
Tilraunaáskrift að PCI lýkur í lok apríl 2012. Rætt er um að
Landsaðgangur og söfn með rafrænar séráskriftir skipti á milli
sín árlegum kostnaði vegna áskriftar að PCI frá og með maí
2012.
Leitargluggi með tveimur flipum á leitir.is