Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 32

Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 32
32 bókasafnið 36. árg. 2012 stríðsins, einkum milli ólíkra hluta Þýskalands, settu svip sinn á messuna og til eru sögur af „bókanjósnurum“ sem sendir voru til Frankfurt undir dulnefni og skrifuðu skýrslur fyrir austur-þýsk stjórnvöld. Andrúm ´68 barst líka inn á messuna; árið 1967 var efnt til mótmæla hjá stóru þýsku bókaforlagi og ráðist var á bás grískra bókaútgefenda, mótmæli héldu áfram árin á eftir. Á messunni síðasta haust birtust atburðir dagsins í dag meðal annars í dagskrá um „arabíska vorið“. Ísland í Frankfurt Samfélagið og þróun í bókaútgáfu hafa ekki verið eina afl breytinga á bókamessunni. Stjórn messunnar hefur stöðugt endurskoðað skipulag hennar, meðal annars í þeim tilgangi að gæta jafnvægis milli menningar og markaðar. Á 8. og 9. áratugnum voru gerðar tilraunir með ákveðin þemu, ýmist bókmenntir ákveðins heimshluta, bókmenntir Suður-Ameríku (1976), svörtu Afríku (1980) og Indlands (1986) eða ákveðna tegund bókmennta, barnabókmenntir (1978), trúarbrögð (1982). Sú hefð að bjóða einni þjóð sæti heiðursgests hvert ár tók við af þessum þemum, en frá árinu 1988 hefur einstökum þjóðum verið boðið, sem heiðursgestur, að kynna sig sérstaklega. Fyrst var Ítalía og í kjölfarið fylgdu Frakkland (1989), Japan (1990), Spánn (1991) og Mexíkó (1992). Ísland fylgdi í kjölfar Argentínu sem var heiðursgestur 2010, árið áður var það Kína. Ísland er fyrst Norðurlanda til að njóta þessa heiðurs, en einhvern tímann í aðdragandanum kom til umræðu að bjóða Norðurlöndunum sameiginlega. Hver þjóð hefur sinn hátt á því með hvaða hætti hún nálgast verkefnið. Ég fékk tækifæri til að fylgjast nokkuð með undirbúningi þess hér heima, í aðdragandanum hitti ég Halldór Guðmundsson verkefnisstjóra, nokkrum sinnum, og aðra sem unnu að undirbúningi þátttöku Íslands. Hópurinn hafði allan tímann samstarfsmenn í Þýskalandi og að messunni lokinni átti ég fund með einum þeirra, Thomas Böhm, sem eyddi með mér eftirmiðdegi í Literatur Haus í Berlín og rakti hann fyrir mér undirbúning Íslandsverkefnisins af hálfu Þjóðverja. Þetta nána samstarf bauð upp á að nálgast verkefnið með öðrum hætti en oftast er gert. Í stað þess að stýra verkefninu algjörlega héðan og ákveða hvað við vildum sýna var allan tímann spurt: „Á hverju hafa Þjóðverjar áhuga?“ Þeim var sýnt hvað Ísland hafði að bjóða, bæði í bókmenntum og öðrum listum og svo ákváðu þeir hvað þeir vildu fá. Þátttaka Íslands var ekki bundin við dagana fimm sem bókamessan stendur. Íslenskar bókmenntir, menning og samfélag voru í kastljósinu allt árið og viðburðir tengdir Íslandi víða um Þýskaland. Heiðursgestur tekur þátt í opnunarhátíð bókamessunnar og hann lýkur henni einnig með því að afhenda keflið næsta heiðursgesti, að þessu sinni Nýja- Sjálandi. Í sýningarhöllinni hefur heiðursgesturinn sérstakan skála til umráða þar sem hann hefur frjálsar hendur með það hvernig hann kynnir bókmenntir sínar og menningu. Líkt og í undirbúningnum fóru Íslendingar óhefðbunda leið, þar sem náttúran, bækur og síðast en ekki síst lesendur, voru í aðalhlutverki. Skálinn vakti mikla athygli og þótti mörgum framlag Íslands það áhugaverðasta í langan tíma. Í skálanum var samfelld dagskrá alla messuna og utan skálans var nærvera Íslands sterk, bæði í básum þeirra útgefenda sem gefa út íslenskar bækur og eins í dagskrá víða um sýningarsvæðið. Til hliðar við skipulagða dagskrá nýttu margir „einyrkjar“ þá athygli sem var á Íslandi til að koma verkum sínum eða hugmyndum á framfæri. Þarna voru kennarar sem nýta sér nýjar aðferðir í sjálfsútgáfu að kynna kennsluefni á vegum AmazonCrossing, upplýsingafræðingur að hitta útgefendur og útlendingar með próf í íslensku gengu milli forlaga að kynna sig sem hugsanlega þýðendur. Nálægð Íslands var sýnileg um alla borg, á söfnum, í tónlistar- og kvikmyndahúsum og í gluggum bókaverslana, en sú hefð hefur skapast að veita verðlaun fyrir bestu útstillinguna tengda heiðursgestinum og var gaman að elta uppi bókabúðir og sjá hvort og þá hvernig íslenskar bækur voru sýndar. Að bókamessunni lokinni skiptir mestu máli sá fjöldi íslenskra bóka sem kom út af þessu tilefni. Á árinu komu út um 200 bækur í tilefni verkefnisins, bæði þýðingar og bækur um Ísland og íslenskt efni. Það er mun meira en menn létu sig dreyma um og ástæða að geta þess að útgáfur tengdar Íslandi voru mun fleiri en stórþjóðanna sem fóru á undan, Kína og Argentínu. Margir rithöfundar sóttu Þýskaland heim og fylgdu bókum sínum eftir. Þýskaland er stærsti þýðingarmarkaðurinn í heiminum, um 40% útgefinna bóka eru þýðingar. Aðrar þjóðir horfa því oft til Þýskalands þegar þær ákveða hvað þær vilja gefa út. Það verður því áhugavert að fylgjast með framhaldinu, ekki bara í Þýskalandi, heldur hvort þessi kynning eigi eftir að greiða fyrir frekara ferðalagi íslenskra bóka um heiminn. Hvaða áhrif mun bókamessan í Frankfurt 2011 hafa á ferðalag íslenskra bóka? Það er ein þeirra spurninga sem mannfræðingurinn er með í farteskinu. Í tveimur hlutverkum Á bókamessunni var ég í tveimur hlutverkum. Annars vegar í hlutverki starfsmanns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, mættur á staðinn til að átta mig á þeim breytingum sem eru að eiga sér stað í heimi bókarinnar, til að styrkja mig í starfi aðfangabókavarðar og að fylgjast með þátttöku Íslands sem heiðursgests. Hins vegar var ég í hlutverki mannfræðingsins; aðaltilgangur hans var að skoða bókamessuna sem rannsóknarvettvang og byrja að skrásetja ferðalag íslenskra bóka um heiminn. Starfsmaður bókasafnsins gekk nokkuð hreint til verks, skipulagði fyrirfram hvað hann ætlaði að sjá og á hvað hann vildi hlusta, þó dagskráin hafi tekið breytingum í önn dagsins. Hann hélt sér mest á svæði háskólaforlaganna og völdum „heitum reitum“, en einnig fylgdist hann, eftir föngum, með þátttöku Íslands. Það er dýrmæt reynsla fyrir starfsmann þjóðbókasafns að fylgjast með því hvernig bókafólk eigin þjóðar, útgefendur, höfundar, félög og stofnanir kynna sig á þessum vettvangi. Mannfræðingurinn nálgaðist viðfangsefnið öðruvísi, en hlutverkin sköruðust þó á margan hátt. Bókavörðurinn á messunni Fyrir starfsmann háskólabókasafns er bókamessan í Frankfurt einstakur vettvangur til að styrkja sig í starfi, skoða stöðu sína og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.