Bókasafnið - 01.05.2012, Síða 47
47
bókasafnið 36. árg. 2012
safna, auk þess Guðrúnu Kristjánsdóttur, deildarstjóra í
tölvum, og loks Kristínu Eddu Júlíusdóttur, kennara. Í Tungu-
skóla ræddi ég við Erlu Ósk Helgadóttur, bókasafns- og
upplýsingafræðing, Vigdísi Jónsdóttur, kennsluráðgjafa í
tölvum, og Þórhildi Atladóttur, kennara. Konurnar höfðu allar
starfs reynslu í viðkomandi starfi en mislanga þó.
Þar sem rannsóknin var eigindleg er ekki hægt að alhæfa
um niðurstöður hennar. Enginn skólanna þriggja sem rann-
sóknin nær til er heildstæður. Bugðuskóli er tæplega 300
nemenda skóli fyrir nemendur í 1. til 7. bekk. Flugumýrarskóli
er einnig tæplega 300 nemenda skóli fyrir nemendur í 7. til
10. bekk. Tunguskóli er rúmlega 400 nemenda skóli fyrir
nemendur í 1. til 7. bekk. Það er nauðsynlegt að hafa þennan
mun á skólum í huga þegar niðurstöður rannsóknar eru
lesnar því starfsemi skólanna er ekki alveg sambærileg. Öflun
rannsóknargagna hófst í lok ágúst 2010 og lauk 31. janúar
2011. Því næst tók við greining gagnanna og þá komu í ljós
þrjú meginþemu sem skiptust síðan í nokkur undirþemu. Hér
verður einungis fjallað um meginþemun. Fyrsta meginþemað
nefnist skólasafnið. Annað meginþemað er aðkoma yfirvalda
og skólastjórnenda. Þriðja og síðasta meginþemað heitir
samstarf og samstarfsverkefni innan skólans.
3. Skólasafnið
Ef starfsemi allra þriggja safnanna er borin saman þá sést að
í Bugðu- og Flugumýrarskóla er starfað á líkan hátt og þar
er mikið samstarf á milli bókasafns- og upplýsingafræðings,
fagaðila í tölvum og kennara. Þeir líta á sig sem samstarfsteymi
og skipuleggja starfsemina saman. Þeir sinna hver sínu
fagsviði en saman leiðbeina þeir nemendum í upplýsinga-
og tæknimennt, standa fyrir og taka þátt í stórum og smáum
verkefnum sem oft eru þvert á námsgreinar. Þá veita þeir
samstarfsmönnum sínum faglega ráðgjöf hver á sínu sviði.
Í Flugumýrarskóla hafa safnið og annað tölvuver skólans
verið sameinuð og gerð að upplýsingamiðstöð skólans. Þar er
upplýsinga- og tæknimenntin undir sama hatti. Í Bugðuskóla
hefur slík sameining ekki átt sér stað en þrátt fyrir það
stendur safnið engu að síður undir nafni og er upplýsinga- og
menningarmiðstöð skólans. Gott aðgengi er að tölvum og þar
á sér stað náið samstarf milli fagaðila í tölvum og kennara án
þess að það tengist þeirri kennslu sem fram fer í tölvuverum.
Fyrir utan þessi samstarfsverkefni fara kennarar með bekkina
sína í tölvuver og sinna þar tölvukennslu sem sérfagi í samstarfi
við fagaðila í tölvum sem tengist yfirleitt ekki verkefnum
skólasafnsins. Samskonar kennsla í tölvuverum á sér stað í
Tunguskóla. Hins vegar sker starfsemi skólasafns Tunguskóla
sig frá hinum söfnunum tveimur að því leyti að þar er ekki
komin mikil hefð fyrir samstarfi þessara þriggja aðila. Þar er
Erla Ósk bókasafns- og upplýsingafræðingur tiltölulega ný í
starfi og hefur verið að koma á breytingum og móta starfsemi
safnsins. Líkt og í Bugðuskóla hafa safn og tölvuver ekki verið
sameinuð en húsnæðið býður upp á möguleika á samgangi
sem ekki hefur verið nýttur.
Almenn ánægja var með störf fagaðila í tölvum, þjónustu
þeirra og stuðning. Mikilvægi þeirra og bókasafns- og
upplýsingafræðinganna er ótvírætt og kennarar treysta á
ráðgjöf þeirra og þjónustu. Þeir gera kennurum kleift að ráðast
í viðamikil verkefni og ættu að veita allan þann stuðning sem
hægt er til að bæta námsárangur nemenda. Það kemur einnig
fram að bókasafns- og upplýsingafræðingar hafa áhyggjur af
stöðu og framtíð skólasafna þar sem hún er ekki lengur tryggð
í lögum um grunnskóla (nr. 91/2008). Einnig var komið inn á
aðstæður sem skapast á samdráttartímum. Söfn skólanna
þriggja hafa orðið fyrir niðurskurði með ýmsum hætti, til
dæmis með skerðingu starfshlutfalla sem skapar hættu á að
sérþekking hverfi. Þá hafa fjárframlög til eflingar safnkosts og
tækjakaupa dregist saman.
4. Aðkoma yfirvalda og skólastjórnenda
Aðkoma yfirvalda og skólastjórnenda er lykilatriði fyrir tilveru
skólasafna og hlutverk þeirra. Viðmælendurnir nefndu bæði
jákvæð og neikvæð atriði er snerta skólasöfn og upplýsinga-
og tæknimennt í grunnskólum. Stefnumörkun hvað varðar
framkvæmd kennslu og samstarfs innan skólans er mikilvæg
og einnig endurmenntunarmöguleikar starfsfólks er málin
varða.
Viðmælendur mínir nefndu flestir lögin um grunnskóla
(nr. 91/2008) og námskrár menntamálaráðuneytisins (2006
og 2007) sem sneru beint að þeirra sérsviði. Bókasafns- og
upplýsingafræðingarnir nefndu allir lögin um grunnskólann
og stöðu skólasafna í þeim. Þrátt fyrir að ákvæðið um skólasöfn
væri ekki lengur í lögunum væri upplýsinga- og tæknimennt
þar enn til staðar sem sérstakt námssvið sem Aðalnámskrá
grunnskóla legði línur fyrir. Fagaðilar í tölvum ræddu stöðu
upplýsinga- og tæknimenntar út frá aðalnámskránni og
kennslutilhögun hennar. Hjá þeim kom einnig fram að við
skipulagningu verkefna væri aðalnámskráin höfð til grundvallar.
Í Bugðu- og Flugumýrarskóla er upplýsinga- og tæknimenntin
skipulögð þvert á námsgreinar. Í Tunguskóla kom það álit fram
að betur megi gera í upplýsingamennt, henni þurfi að sinna
markvissar eins og tölvukennslunni. Þar er upplýsinga- og
tæknimenntin samtvinnuð námsefninu þótt markmið fyrir
þau séu í sitt hvoru lagi í námskránni. Skólarnir þrír hafa það
markmið að allir nemendur fái ákveðna þjálfun í tölvufærni
en í Flugumýrarskóla á það líka við um upplýsingamenntina.
Það var álit eins viðmælanda að skólasamfélagið verði að
ákveða tilhögun kennslu í upplýsinga- og tæknimennt svo
það samræmist námskrá. Í Tungu- og Bugðuskóla er komin
ákveðin stefna fyrir tæknimenntina.
Stjórnendur skólanna þriggja styðja vel við sín skólasöfn
þótt greina megi þar áherslumun því í Tunguskóla er
bókasafns- og upplýsingafræðingur aðeins í hlutastarfi.
Allir viðmælendur voru sammála um jákvætt viðhorf
skólastjórnenda til skólasafna og vilja þeirra til að viðhalda
og verja starfsemi þeirra í erfiðum efnahagsaðstæðum. Þeir
gera sér grein fyrir mikilvægi þeirra í kennslunni og þeim
tækifærum sem þar felast. Í Bugðu- og Flugumýrarskóla
sýna þeir samstarfsverkefnum áhuga og hvetja til þeirra en í
Tunguskóla hefur áhugi stjórnenda enn sem komið er meira
beinst að útlánum en breytingar eru í vændum.