Bókasafnið - 01.05.2012, Síða 49
49
bókasafnið 36. árg. 2012
verður að vera ljós. Starfsmenn safnanna verða að geta sýnt
frumkvæði, vera tilbúnir til að leiða samstarfið og vera virkir
í því.
Montiel-Overall (2010) segir algengt að kennarar hafi ekki
skilning á nýju hlutverki bókasafns- og upplýsingafræðings
í kennslunni. Í mínum niðurstöðum kemur fram að til
þess að svona samstarf geti orðið þurfi kennarar að sjá
möguleikana sem samstarf við sérmenntaðan bókasafns- og
upplýsingafræðing og fagaðila með menntun á sviði tölvu-
og upplýsingatækni býður upp á. Hvatinn að slíku samstarfi
kemur af áhuga starfsmanna með svipuð viðhorf, menntun
og framtíðarsýn auk vilja til breytinga. Þá spilar einnig inn í
vilji til að nýta betur þann mannafla sem fyrir er í skólanum og
þekkingu hans. Sú breyting sem tölvubyltingin hafði í för með
sér og þeir möguleikar sem þá opnuðust hafa orðið sumum
hvatning til að nýta tæknina í verkefnavinnu nemenda og til
samstarfs.
Loertscher (1988) heldur fram að það sé sama hve góður
kennari telur sig vera þá geti hann ávallt bætt sig. Með
samstarfi við bókasafns- og upplýsingafræðing verði árangur
kennslunnar meiri því tveir saman séu þeir sterkari. Þetta sama
sjónarmið kom fram í rannsókn minni. Það er því mikilvægt að
í skólanum sé til staðar bókasafns- og upplýsingafræðingur
og fagmaður á tölvusviði auk kennara því saman geta þeir allir
lagt til sérfræðiþekkingu til samstarfs- og verkefnavinnu og
veitt nemendum ítarlegri leiðsögn og stuðning. Þannig verða
til teymi fólks með víðtækari reynslu og sérfræðiþekkingu
innan veggja skólans. Kuhlthau (2010) nefnir að bókasafns-
og upplýsingafræðingar séu frumkvöðlar og geri nemendum
kleift að læra í gegnum fjölbreytt úrræði hluti sem kennarar
ráða ekki við einir. Stefnuyfirlýsing UNESCO/IFLA um skólasöfn
(2003) heldur fram að nemendur nái betri tökum á námi þar
sem samvinna þessara aðila á sér stað.
Góður árangur af samstarfi af þeim toga sem hér er til
umræðu er ótvíræð niðurstaða rannsóknarinnar, bæði fyrir
starfsmenn og nemendur. Einnig kemur fram að árangurinn
ýtir undir frekari löngun til áframhaldandi samstarfs.
Starfsmenn njóta góðs af því að fleiri koma að skipulagningu
og úrvinnslu verkefna sem geta orðið viðameiri þar sem
vinnan dreifist á fleiri. Að sama skapi njóta nemendur þess
að verkefnin verða fjölbreyttari og þeir fá meiri þjónustu
og leiðsögn frá fleirum. Þetta eykur öryggi þeirra til
sjálfstæðari vinnubragða. Ann M. Martin fyrrum forseti félags
skólasafnsfræðinga í Bandaríkjunum hefur einmitt hvatt
til þess að kennarar breyti starfsaðferðum sínum og nýti
sér samstarfið við skólasafnið til þess að nemendur öðlist
færni, getu og frumleika sem auðveldi þeim að finna sér
starfsvettvang í okkar nútíma samfélagi (2008). Fjölbreytni í
kennsluháttum og tilbreyting í skólastarfi veitir nemendum
þjálfun í að vinna með tölvur og forrit í hagnýtum verkefnum
sem nýtast þeim einnig í þeirra daglega lífi og til framtíðar.
Til að tryggja innleiðingu samstarfs af þessum toga væri
vafalaust best að tilskipun þess efnis kæmi frá yfirvöldum
menntamála, bæjaryfirvöldum eða skólastjórnendum. Þá þarf
einnig að taka af öll tvímæli um hlutverk og stöðu skólasafna
innan skólasamfélagsins og tryggja þeim þar sess þannig að
þau séu viðurkenndur aðili í skólastarfinu. Einnig þarf að mæla
svo fyrir að menntaður bókasafns- og upplýsingafræðingur sé
þar í forsvari. Skólastjórnendur væru þá bundnir af þessum
reglum og um leið væri mismunun milli skóla úr sögunni.
7. Lokaorð
Rannsókn mín er lítil í sniðum og því er vafasamt að alhæfa
um of út frá niðurstöðum hennar. Þær eru þó að mörgu leyti
samhljóma niðurstöðum úr erlendum rannsóknum um þetta
efni. Niðurstöður úr rannsókninni sýna að samstarfið byggir á
frumkvæði og vilja starfsmanna og stuðningi skólastjórnenda.
Þær kalla eftir skýrari stefnumörkun frá yfirvöldum
menntamála, bæjarfélaga og skólanna sjálfra til að tryggja
tilvist og framgang skólasafna. Yfirvöld og skólastjórnendur
þurfa að gera sér grein fyrir mikilvægi safnanna og tækifærum
sem þar felast og að menntaðir fagaðilar hafi umsjón með
þeim. Samstarf bókasafns- og upplýsingafræðinga, fagaðila
í tölvum og kennara er nauðsynlegt til að tryggja aðkomu
upplýsinga- og tæknimenntar að öllum námsgreinum.
Það býður upp á betri þjónustu við nemendur, fjölbreyttari
kennsluhætti og ítarlegri leiðsögn sérfræðinga á öllum
sviðum. Þetta leiðir til betri námsárangurs, ánægðari nemenda
og starfsmanna og kemur heim og saman við niðurstöður
fyrrnefndra rannsókna.
Allar vegferðir byrja á einu skrefi og síðan feta menn sig
áfram að markmiðinu. Það er hins vegar framtíðarverkefni að
breiða þennan boðskap út til fleiri skóla og verði niðurstaðan
sú sama má ef til vill gera ráð fyrir að hægt verði að tryggja
víðtækt samstarf fagaðila í sessi í gegnum aðalnámskrá og lög
um grunnskóla.
Abstract
Is will all that is needed?
The school library and cooperation between librarians,
computer specialists and teachers
This study addresses school libraries in elementary schools
in the Greater Reykjavík area and cooperation between
librarians, computer specialists and teachers who all teach
information communications technology. The purpose was
to find out why the result of such cooperation differed, what
it contributed to the schools and how such cooperation can
best be applied into the schoolwork. The survey took place in
late 2010 and early 2011. The research method was qualitative
and data was acquired by open interviews with nine
individuals. The results indicate that this kind of cooperation
depends on the will and initiative of school personnel and
administrators. The authorities need to support the existence
of school libraries. Schools need to lay down certain rules on
how the policy can be implemented and how the librarian
can be intergrated into all subjects. Foreign research supports
that the achievements of such cooperation is substantial for
the students, personnel and the school as a whole. It ensures