Bókasafnið - 01.05.2012, Qupperneq 54

Bókasafnið - 01.05.2012, Qupperneq 54
54 Í starfsáætlun fyrir Borgarbókasafn Reykjavíkur 2010 segir: „Borgarbókasafn hefur ásamt almenningsbókasöfnum á öllum Norðurlöndunum fengið styrk frá Nordisk Kulturfond að upphæð 150.000 evrur til að vinna að þriggja ára þróunarverkefni Next Library. Þetta þróunarverkefni mun setja mark sitt á starfsemi safnsins næstu árin. Fyrsta þriggja daga vinnusmiðja verður í Reykjavík í lok júní.“1 Upphafið Heiti verkefnisins er reyndar Nordic Camps – Network of Nordic Libraries. Heitið Next Library, sem notað er í ofangreindri starfsáætlun, vísar til forsögu og upphafs verkefnisins – og raunar áframhaldandi víðtækara verkefnis á vegum bókasafnsins í Árósum. Forsagan er sú að í nóvember árið 2008 héldu borgarbókasöfnin í Árósum, Stokkhólmi og Helsinki sameiginlega ráðstefnu eða camp, eins og það var kallað á ensku, í Helsinki. Í framhaldi af því stóð svo Borgarbókasafnið í Árósum (Århus Kommunes Biblioteker) fyrir ráðstefnu þar í júní 2009 undir heitinu NextLibrary: International un-conference og voru þátttakendur þar frá ýmsum löndum. 2 Einar Ólafsson Upp úr því var ákveðið að fá fleiri bókasöfn á Norðurlöndum til samstarfs um verkefni þar sem unnið yrði að þróun hugmynda um almenningsbókasöfn framtíðarinnar. Til sam- starfs komu auk bókasafnsins í Árósum borgarbókasöfnin í Stokkhólmi (Stockholm Stadsbibliotek), Helsinki (Helsingfors Stadsbibliotek) og Osló (Deichmanske bibliotek) og þar sem ekkert íslenskt almenningsbókasafn er af sömu stærð og þessi söfn var ákveðið að bjóða þremur söfnum héðan, Borgarbókasafni Reykjavíkur, Bókasafni Kópavogs og Amts- bókasafninu á Akureyri. Þannig komst Nordic Camps-verkefnið á flot en Árósarbókasafnið hefur haldið Next Library-ráð- stefnum sínum áfram og er næsta ráðstefna fyrirhuguð í júní 2013.3 Hugmyndin Í byrjun september 2009 var send inn umsókn til Norrænu menningargáttarinnar4 um styrk til verkefnis sem kallað var á dönsku Nordisk biblioteksnetværk en á ensku Network of Nordic Libraries.5 Verkefninu var lýst þannig að sjö bókasöfn á fimm Norðurlöndum ætluðu að vinna saman að hugmyndum um nýbreytni varðandi hlutverk, starf og stefnu norrænna bókasafna og þróun þeirra sem virkra menningarstofnana og lýðræðislegs rýmis í samfélaginu. Þrjár vinnusmiðjur6 yrðu haldnir þar sem starfsfólk þessara sjö bókasafna kæmu saman. Verkefnið skyldi snúa að nýbreytni og þróun á sviði stefnumótunar og meðal starfsmanna og koma upp samstarfi milli almenningsbókasafna á Norðurlöndunum. Síðan yrði þeirri stefnu, aðferðum og hugmyndum, sem upp úr þessu spryttu, miðlað áfram jafnt innan hvers lands, á norrænum vettvangi og alþjóðlegum. Gert var ráð fyrir þremur vinnu- Bókasafnið inn að kviku! Nordic Camps: Þriggja ára þróunarverkefni 1. http://www.borgarbokasafn.is/Portaldata/16/Resources/um_safnid/Borgarbokasafn_starfs__tlun__2010.pdf, bls. 5 (sótt 26.4.2012). 2. http://www.nextlibrary.net/archive (sótt 25.4.2012). 3. http://www.nextlibrary.net (sótt 25.4.2012) 4. http://www.kulturkontaktnord.org/lang-sv/home (sótt 26.4.2012). 5. Umsókn um styrk, sjá http://nordiccamps.ning.com/page/nice-to-know undir Nordic Culture Point Application (http://api.ning.com/files/*4CwZJz0R Csm8LP2dr1BVvUqGSHLbiw4JsPjptpz268Zc-o5Qb76lTfeg6XJY*2XNYx7tExFlmQHH9HZ1XAq8O6*NSy4MSg7/Application.pdf ) (sótt 26.4.2012). 6. Orðið camp er notað í umsókninni bæði í ensku og dönskum texta, en hér er notað orðið vinnusmiðja eins og í tilvitnaðri starfsáætlun Borgarbókasafnsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.