Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2015, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 01.11.2015, Blaðsíða 32
532 LÆKNAblaðið 2015/101 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Evrópusvæðið nær reyndar allt austur að Beringssundi þar sem öll fyrrum Sovét- lýðveldin teljast innan þess. Aðalskrifstofa WHO fyrir allan heiminn er í Genf en síðan er heiminum skipt í nokkur svæði og Evrópusvæðið er eitt þeirra með 53 lönd innanborðs og aðalaðsetur í Kaupmanna- höfn. Þau kjósa sér 12 manna stjórn og ég var kjörinn í hana núna í haust,“ segir Sveinn. Yfir stjórninni er forstjóri sem er aftur ábyrgur gagnvart aðalstjórninni í Genf. Hvert er hlutverk stjórnarinnar? „Stjórnin fundar reglulega með for- stjóra til að fara yfir helstu áherslumál, á hvað beri að leggja mesta áherslu, hvernig stjórnin hefur skilað af sér málum hingað til, hvernig hefur verið brugðist við óvæntum málum en í heildina má segja að þessi vinna og verkefnaskipan sé í nokkuð föstum skorðum og á það við um öll svæði heimsins. Heildarsamræming er síðan í höndum aðalskrifstofunnar og aðalfor- stjóri WHO, Margaret Chan, mætir á árs- fundi allra svæðisstjórna til að hafa sem besta yfirsýn yfir starfsemina um allan heim. Á ársfundinum er fjallað um rekstur svæðisskrifstofunnar, hvernig þeim fjár- munum sem hún hefur úr að spila hefur verið deilt á verkefni og hver árangur hefur orðið af því.“ Sveinn segir að á ársfundinum sem haldinn var í haust hafi málefni flótta- manna í Evrópu verið mikið til umræðu og tekið fyrir utan hefðbundinnar dag- skrár strax í upphafi fundar. „Þetta er svo mikilvægt mál, sem sannarlega snertir starfsemi WHO, að það var sjálfsagt að taka það ítarlega fyrir þó dagskráin væri löngu ákveðin.“ Af öðrum viðfangsefnum WHO nefnir Sveinn viðbrögð við staðbundnum sýking- um og umræður um veika stjórnarhætti í sumum löndunum sem hefur áhrif á heilbrigðisþjónustu þeirra. „Lyfjamál og ýmsir heilbrigðisþættir, einsog heilbrigði kvenna og heilbrigði barna eru dæmi um viðfangsefnin en á síðustu misserum var það Ebólufaraldurinn sem hélt hvað mestri athygli. Umræðan og óttinn við Ebóluna fór að mestu beint frá Vestur-Afríku til Evrópu þar sem heilbrigðisyfirvöld óttuðust að sýkingar kæmu upp heima fyrir. Það tók sinn tíma að komast yfir það en átti sér eðlilegar skýringar þar sem tals- verður samgangur er á milli íbúa Vestur- Afríkulanda og þeirra Evrópulanda sem réðu þeim sem nýlendum fyrrum. WHO var nokkuð gagnrýnt fyrir að bregðast ekki nógu fljótt við Ebólufaraldrinum og lærdómurinn sem WHO hefur dregið er að viðbragðsflýtir stofnunarinnar mætti vera meiri þegar svona aðstæður koma upp. Það á sér reyndar skýringar í því hvernig fjármál WHO eru samsett en einungis fjórðungur af ráðstöfunarfé þess kemur frá aðildarlöndunum en þrír fjórðu hlutar eru framlög einstaklinga og fyrirtækja. Þeir peningar eru yfirleitt eyrnamerktir til ákveðinna verkefna og ekki hægt að nota þá í annað. Nú stendur yfir endurskipulagning fjármála WHO til að eiga viðbragðs- og neyðarsjóð.“ Sveinn segir að í augum umheimsins sé Evrópa álitin vel stæður og vel á sig kom- inn heimshluti. „Það á vissulega við um Vestur-Evrópulönd en alls ekki öll lönd þess Evrópusvæðis sem WHO skilgreinir. Aukning í neikvæðum þáttum heilbrigðis, eins og ónæmi gegn sýklalyfjum, er hvergi meiri en á Evrópusvæðinu, og það blasir við að vöxtur í HIV-smiti er meiri á sumum hlutum Evrópusvæðisins en í löndunum sunnan Sahara sem almennt hefur verið álitið verst leikna svæðið af HIV. Þetta helst í hendur við aukningu á fjölónæmum berklabakteríum sem er hvergi meira en í austurhluta Evrópu.“ Evrópusvæðið eins og WHO skilgreinir það tekur yfir mörg og ólík lönd. Innan þeirra eru mjög ólíkir stjórnarhættir og innviðir misjafnlega sterkir. „Þetta er alveg rétt og WHO hefur brugðist við þessu með því að setja á fót skrifstofur innan svæðisins til að hjálpa þessum löndum til að byggja upp heilbrigðiskerfi sín. Það getur verið allt frá því að koma á löggjöf um lyf til betri sjúkdómaskráningar og flokkunar þeirra og allt þetta sem við teljum að sé nauðsynlegt til að reka nútímalegt heil- brigðiskerfi. Ísland stendur gríðarlega vel í samanburði við önnur lönd þegar skoðuð eru helstu viðmið um góða lýðheilsu og öflugt heilbrigðiskerfi. Hér er lífaldur ís- lenskra karla og kvenna með því hæsta sem gerist í heiminum, ungbarnadauði er hvergi minni og allt hefur þetta áunnist á nokkrum áratugum. Ef við horfum aftur til baka um 100-150 ár þá voru einungis helmingslíkur á því að nýburi næði 10 ára aldri. Í dag eru líkurnar rétt undir 100%. Til að setja þetta í samhengi væri það í rauninni verulegt áfall fyrir okkur að fara niður í breskar, þýskar eða franskar tölur og þó þykja þessi lönd standa sig vel. Þetta staðfestir það að við höfum ýmislegt fram að færa í heilbrigðismálum og getum lagt margt gagnlegt til málanna. Núverandi forstjóri Evrópusvæðisins, Zsuzsanna Jakab, hefur sett á laggirnar samstarf smá- þjóða innan Evrópu. Þetta eru þjóðir með mannfjölda innan við eina milljón. Það er ljóst að þessi lönd búa yfir ýmsum lausn- um á heilbrigðissviði sem stærri þjóðirnar gætu nýtt sér. Þetta er skemmtilegur hópur sem Ísland kemur mjög öflugt inn í til að miðla okkar þekkingu og reynslu. Það er einnig ánægjulegt að Ísland hefur ekki verið mikill þiggjandi aðstoðar WHO frá stofnun eftir síðari heimsstyrjöldina. Við höfum verið í þeirri stöðu að geta „Getum lagt margt gagnlegt til málanna“ Sveinn Magnússon læknir og skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu er sestur í stjórn Evrópusvæðis Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.