Læknablaðið - 01.11.2015, Blaðsíða 29
LÆKNAblaðið 2015/101 529
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Elínborg Bárðardóttir og Leifur Bárðarson.
„Félag íslenskra heimilislækna þrýsti lengi
á að þetta yrði að veruleika og við fögnum
því mjög að þessi mikilvægi áfangi hafi
náðst. FÍH hefur skipað nefnd sem á að
vinna að því að taka út kennslustöðvar og
þar miðum við við evrópska staðla Euract
(European Academy of Teachers in Gereral
Practice / Family Medicine) en þar gegndi
ég formennsku um tíma. Við munum að
sjálfsögðu vinna eftir fyrirmælum mats-
nefndarinnar um hvaða kröfur kennslu-
stöðvarnar þurfa að uppfylla.“
Sambærilegt því besta sem býðst
Alma Eir segir sérnámið í heimilis-
lækningum vel undirbúið fyrir þessar
breytingar enda hafi fyrsta marklýsing í
heimilislækningum þegar legið fyrir 1995
og verið uppfærð síðan, síðast árið 2008.
Marklýsingin var gefin út í sérstakri bók
ásamt annarri, Hugmyndafræði heimilis-
lækninga, sem Ólafur Mixa skrifaði. „Við
þurfum að endurrita marklýsinguna núna
að nokkru leyti þar sem sérnámið hefur
verið fjögur og hálft ár en verður nú 5
ár samkvæmt nýju reglugerðinni. Við
þurfum einnig að rita nýja marklýsingu
fyrir kandídatsárið þar sem tíminn á
heilsugæslunni hefur lengst. Við byggjum
á 25 ára reynslu af kennslu í heimilislækn-
ingum á Íslandi og við erum mjög stolt af
því að geta sagt að skipulag sérnámsins
sé mjög gott og standi jafnvel framar því
sem er í boði í nágrannalöndunum. Upp-
bygging námsins er þannig í grunninn að
námslæknirinn tekur þrjú ár á heilsugæslu
og tvö ár á spítala. Námslæknirinn verður
að sækja skipulagða kennslu, hann verður
að hafa mentor og hann verður að standast
ákveðin próf og gæðakröfur.“
Alma segir námið þannig byggt upp
að námslæknirinn sæki tíma þar sem fer
fram formleg kennsla kjarnafyrirlestra.
Nemendur mæta undirbúnir og þetta
er þriggja ára prógram þar sem fyrir-
lestrarnir taka til fjölmargra þátta sér-
greinarinnar. Við förum yfir spurningar
úr bandaríska heimilislæknaprófinu frá
árinu áður og síðan er alltaf BALINT-
fundur í lok kjarnakennslunnar. Balint var
ungverskur geðlæknir sem rannsakaði
ítarlega samskipti lækna og sjúklinga og
það eru Katrín Fjeldsted og Þórdís Anna
Oddsdóttir heimilislæknar sem leiðbeina á
þessum fundum. Við förum síðan með alla
hópa sérnámslækna til Oxford á svokall-
aða BALINT-helgi með breskum heimilis-
læknum og sérnámslæknum. Þetta er
gríðarlega gagnlegt námskeið sem allir
láta mjög vel af.“
Hver sérnámslæknir hefur mentor eða
handleiðara sem þarf að hafa lokið tilskil-
inni þjálfun í handleiðslu og við höldum
námskeið fyrir handleiðara annað hvert
ár. Handleiðarinn fylgist með framvindu
námslæknisins, hittir hann reglulega og
heldur utan um námsmöppu þar sem öll
gögn eru geymd sem snerta námsfram-
vinduna. Á hverju ári tekur sérnáms-
læknirinn bandaríska heimilislæknaprófið
sem er eins konar stöðupróf og þannig
sjáum við hvernig viðkomandi er að
þroskast og þróast í námi sínu. Þá notum
við mikið nokkrar tegundir af mats-
blöðum sem Gunnar Helgi Guðmundsson
yfirlæknir í Efstaleiti hannaði en það gerir
Sérnámslæknar í heim-
ilislækningum á góðri
stund. Efsta röð frá vinstri:
Gunnar Þór Geirsson, Þórunn
Hannesdóttir, Anna Kristín
Þórhallsdóttir, Ragnar Freyr
Rúnarsson, Haukur Heiðar
Hauksson, Guðbjartur Ólafs-
son og Sveinn Rúnar Sigurðs-
son. Miðjuröð frá vinstri:
Fríða Guðný Birgisdóttir,
Bjarki Steinn Traustason, Sig-
urbjörg Ólafsdóttir, Kristrún
Erla Sigurðardóttir, Sunna
Björk Björnsdóttir, Guðný
Ásgeirsdóttir og Hanna Torp.
Fremsta röð frá vinstri: Guð-
rún Ása Björnsdóttir,
Fjölnir Guðmannsson, Julia
Leschhorn, Ruth Auffenberg,
Víóletta Ósk Hlöðversdóttir
og Súsanna Ástvaldsdóttir.