Læknablaðið - 01.11.2015, Blaðsíða 46
546 LÆKNAblaðið 2015/101
Læknastöður á Heilbrigðisstofnun Austurlands
FÖST STAÐA LÆKNIS
Í HEILSUGÆSLU
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða lækni með aðalstarfsstöð á Egilsstöðum.
Um er að ræða 100% stöðugildi og veitist staðan frá 1. janúar 2016 eða eftir samkomulagi.
Austurland er stórt og dreifbýlt með um 11 þúsund íbúa, þar sem Heilbrigðisstofnun Austurlands sinnir allri heilsugæsluþjónustu á
mörgum stöðvum og rekur líka Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN. Aðalstarfsstöð læknis er Egilsstaðir, miðlægt á Austurlandi. Þar er
alþjóðlegur flugvöllur með millilandaflugi og heilsugæslan hefur tæplega 4000 íbúa á sínu svæði. Þar er mikil ferðamennska og svæðið,
eins og allt Austurland, býður upp á fjölbreytt tækifæri til afþreyingar. Á stöðinni starfa nú tveir sérfræðingar í heimilislækningum,
húðsjúkdómalæknir í 1/2 starfi (þjónar öllu Austurlandi) og afleysingalæknir. Þrír námslæknar eru tengdir stöðinni. Annað fast fagfólk
stöðvarinnar er m.a. hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sjúkraliðar, lífeindafræðingur, geislafræðingur, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfarar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar.
- Heilsuvernd.
- Vaktþjónusta.
- Kennsla nema.
- Þátttaka í vísindastarfi, gæða- og umbótaverkefnum.
Hæfnikröfur
- Leitað er að sérfræðingi í heimilislækningum eða eftir atvikum annari sérgrein.
Læknir með almennt lækningaleyfi kemur einnig til greina.
- Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð.
- Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu).
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki.
- Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast upp
fylla framangreind skilyrði.
- Íslenskukunnátta áskilin.
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 2015.
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.
landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðn-
ingar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og
vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækj-
endur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaksnotkun er
ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Nánari upplýsingar veita: Óttar Ármannsson, yfirlæknir Egilsstöðum, s. 470-3000,
netf. ottar@hsa.is, Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3053 og 895-2488,
netf. emils@hsa.is og Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og
860-6830, netf. petur@hsa.is.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin
þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austur-
lands er í Neskaupstað.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
AFLEySINGA -
LÆKNIr
Nú þegar er laus staða afleysingalæknis með
aðalstarfsstöð á Egilsstöðum. Tímalengd
starfs er samkomulagsatriði.
Helstu verkefni eru almennar lækningar,
heilsuvernd og vaktþjónusta. Leitað er að
lækni með almennt lækningaleyfi og lögð
áhersla á áreiðanleika, faglegan metnað,
jákvæðni og sveigjanleika.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2015.
Kjör fara eftir kjarasamningi
fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem
fást á vef Embættis landlæknis; www.
landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra,
Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Nánari upplýsingar veita sömu aðilar og um
sérfræðistöðuna.