Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2009, Page 16
ÁGRIP AF SÖGU MINNINGARMARKA OG STEINSMÍÐI Á ÍSLANDI 15
Það er vitað að Guðmundur „elsti“ Guðmundsson (um 1600–1648),
bróðir Guðmundar í Bjarnastaðahlíð, var prestur til Fljóts hlíðar þinga og
sat á Kirkjulæk.21 Jón sá sem legsteinninn er yfir hefur að öllum lík-
ind um verið bróðursonur Guðmundar smiðs og dáið barn að aldri árið
1640. Síra Guðmundur og kona hans Málfríður Björns dóttir áttu síðar
annan dreng sem skírður var Jón, líklega eftir látnum bróður sínum. Sá
varð síðar bóndi á Brekkum í Holtum og sam kvæmt manntalinu 1703
hefur hann verið fæddur 1643, um þremur árum eftir lát bróður síns.22
Það virðist einsýnt að á yngri árum hafi Guðmundur smiður dvalist hjá
bróður sínum á Kirkjulæk og þegar náð mikilli færni í steinhöggi og
skrautdrætti. Hefur hann verið fenginn til þess að gera leg steininn yfir
bróðurson sinn og Solveigu en hún og Málfríður eiginkona síra Guð-
mundar voru systkinadætur. Solveig var dóttir Þrúðar húsfreyju á Strönd
í Selvogi, síðar á Teigi, Magnúsdóttur lögréttumanns í Stóradal í Djúpadal
í Eyjafirði en Málfríður dóttir Björns bónda á Laxa mýri í Reykjahverfi
Magnússonar í Stóradal.23
En víkjum að öðrum legsteinasmíðum Guðmundar. Kristján Eldjárn
vitnar til skrifa Jóns Espólíns og síra Jóns Steingrímssonar þar sem fram
kemur að Guðmundur hafi höggvið út legsteina Þorláks biskups Skúla-
sonar, Gísla biskups sonar hans, Jóns biskups Vigfússonar og Einars biskups
Þorsteinssonar. Kristján telur efalaust að steinar Jóns og Einars séu ekki
eftir Guðmund þó að steinar Þorláks og Gísla séu vafalítið eftir hann.
Telur hann steina Jóns og Einars ekki það líka hinum steinunum og að
tímans vegna hafi Guðmundur ekki getað höggvið þá en Einar biskup dó
1696. Kristján álítur að steinar Þorláks og Gísla hafi verið höggnir út um
líkt leyti eða fáeinum árum eftir lát Þorláks biskups því ártalið 1661 er á
steini Gísla. Ennfremur segir hann að þótt steinninn sé kenndur við Gísla
biskup sem lést árið 1684 sé hann helst legsteinn fyrstu konu hans Gróu
Þorleifsdóttur sem lést árið 1660 árið áður en steinninn var höggvinn.
Hann bendir á að af letrinu megi sjá að steinninn hafi einnig verið settur
til minningar um Gísla en lof legum lýsingarorðum sem annars einkenna
legsteinana í Hólakirkju sé stillt í hóf. Það er skoðun Kristjáns að Gísli
hafi látið setja báða steinana, líklega pantað efnið í þá í sama skiptið og
fengið Guðmund í Bjarnastaðahlíð til þess að höggva þá út.24
Við athugun á legsteinum biskupanna Jóns og Einars koma þó að mati
höfundar þessarar greinar fram í stafagerðinni ýmis höfundar einkenni
Guðmundar sem fram koma einnig á skírnarfontinum sem Guðmundur
merkti sér. Á skírnarfontinum stendur á einum stað: LABIUM ÆNEUM
TYPUS BAPTISMI EXOD XXX. Tilvitnunin er úr annarri Mósebók