Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2009, Síða 45
44 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Áður en lengra er haldið verður fjallað um messur og annað helgihald
með það fyrir augum að fá samanburð við jarðarfarirnar og setja þær
í rétt samhengi. Útvarpsmessur hafa heldur ekki verið rannsakaðar
sér staklega og eru það rök fyrir að þær fái hér allýtarlega umfjöllun.
Útsending á guðsþjónustum hefur tíðkast frá upphafi útvarps hér á landi
og hefur bersýnilega þótt sjálfsögð. Messum hefur einnig lengi verið
útvarpað í hinum kristnu löndum víða um heim, bæði í ríkisútvarpi og
á einkastöðvum. Ennfremur má nefna útvarp páfagarðs og kristilegar
stöðvar, en hin fyrsta sinnar tegundar í heiminum hóf sendingar árið
1931.1
Árið 1926 hóf fyrsta íslenska útvarpsstöðin, H.f. Útvarp, starfsemi
sína. Svo merkilega sem það hljómar fyrir okkur nútímafólk var fyrsta
tilraunaútsending þessarar stöðvar, 31. janúar, messa í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði. Stöðin tók formlega til starfa 18. mars og opnaði
atvinnumálaráðherra hana með ræðu. Auk ráðherra f lutti séra Friðrik
Hallgrímsson ávarp um víðvarpið og boðskap fagnaðarerindisins. Það er
eftirtektarvert, og í raun táknrænt, að kirkjunnar maður kom þegar
við sögu í fyrstu formlegu sendingu útvarps hér á landi. Í erindi sínu
lagði séra Friðrik til að guðsþjónustum yrði útvarpað einu sinni til
tvisvar á hverjum helgum degi og ennfremur miðvikudagsmessum á
föstunni. Vísaði séra Friðrik einkum til þess að vegna strjálbýlis bæri
ekki að messa í sumum kirkjum nema í fáein skipti á ári og ennfremur
að sjúklingar væru ekki færir um að sækja guðsþjónustur, jafnvel svo
árum skipti. 2 Fremur lítið er vitað um dagskrá H.f. Útvarps en þó voru
sendar út einhverjar messur meðal annars efnis. Rekstur stöðvarinnar
mun hafa staðið fram á árið 1928 að minnsta kosti.3
Á Akureyri var rekin útvarpsstöð 1928 til 1929 á vegum bresks
trúboða en óvíst er hve reglulegar útsendingar hennar voru og líklega
voru þær mjög stopular. Meðal dagskrárliða áttu að vera messur á
hverjum sunnudegi.4
Í greinargerð með fyrsta frumvarpi um ríkisútvarp, sem lagt var fyrir
Alþingi 1928, var gert ráð fyrir að „guðsþjónustur og kirkjusöngur“
yrðu allt að 100 klst. á ári eða 8,3% af heildarútsendingartíma á árs-
grund velli.5 Útvarpað var tveimur messum á öðrum starfsdegi útvarps-
ins, sunnudeginum 21. desember 1930, frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fyrir hádegi og Fríkirkjunni eftir hádegi. 6 Þetta segir auðvitað sína sögu
um sterka stöðu kristinnar trúar í landinu. Messur á sunnudögum og
stórhátíðum hafa verið sendar út allar götur síðan.