Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Page 10
DV er sá fjölmiðill sem hefur staðið
sig best í að ljóstra upp um spilling-
armál í íslensku samfélagi á síðustu
misserum. Þetta er niðurstaða könn-
unar sem Markaðs- og miðlarann-
sóknir, MMR, gerði í júníbyrjun.
„Mér finnst athyglisvert að DV
skuli koma svona hátt þarna út því
það hefur tiltölulega litla útbreiðslu,
allavega miðað við stóru blöðin,
Fréttablaðið og Morgunblaðið, sem
og ríkismiðlana og ljósvakamiðlana,“
segir Birgir Guðmundsson, lektor í
stjórnmálafræði og kennari við fjöl-
miðlafræðideild Háskólans á Akur-
eyri.
„Hvort sem þeir sem þarna svara
hafa lesið DV eða ekki er ljóst að DV
hefur allavega það orð á sér að vera
gagnrýninn fjölmiðill,“ segir Birgir.
Fréttastofa RÚV í öðru sæti
„Hver eftirtalinna fjölmiðla telur þú
að hafi staðið sig best í að ljósta upp
um spillingarmál í íslensku samfé-
lagi á síðustu misserum?“ er meðal
þeirra spurninga sem MMR lagði fyr-
ir í netkönnun dagana 9. til 13. júní.
Úrtakið var 18-67 ára Íslendingar,
valdir handahófskennt úr hópi álits-
gjafa MMR. Þátttakendur í könnun-
inni voru 849.
Þar af tóku 472 afstöðu til spurn-
ingarinnar. Flestir þeirra, eða 23,3
prósent, telja að DV hafi þar stað-
ið sig best. Fast á hæla Dagblaðsins
kemur Fréttastofa RÚV en 22,4 pró-
sent telja hana hafa staðið sig best
þegar kemur að uppljóstrun spilling-
armála.
MMR gerði könnun á trausti til
fjölmiðla um miðjan
maímánuð sem
vakti mikla at-
hygli. Þar kom
í ljós að að-
eins 15 pró-
sent lands-
manna bera
mikið traust
til fjölmiðla
sem er heldur
lítið. Traustið
hafði þá far-
ið þverrandi frá
desember 2008
en samkvæmt
könn-
un sem MMR gerði báru þá 23 pró-
sent mikið traust til fjölmiðla. Frétta-
stofa RÚV bar þar höfuð og herðar
yfir aðra fjölmiðla en flestir treystu
henni. Fáir sögðust þá treysta DV
og vekur því athygli að nú telja flest-
ir þann fjölmiðil best til þess fallin
að uppræta spillingu í samfélaginu.
Sama fyrirtæki gerði báðar kannan-
irnar.
Útgáfa af trausti
Birgir bendir á að ríkismiðlarnir hafi
í gegn um áratugina notið sérstöðu
vegna mikils trausts. „Það er fyrst
og fremst vegna þessarar pólitísku
fortíðar. Ég held að það hafi smitast
yfir á aðra ljósvakamiðla. Menn taka
öðruvísi eftir því sem birtist í ljós-
vakamiðlum en í blöðunum,“ segir
Birgir.
Fréttastofur sjónvarpsstöðvanna
tveggja koma fast á hæla DV í könn-
uninni. „DV getur vel við unað og er
í sérflokki hjá prentmiðlunum sam-
kvæmt þessu. Staða Fréttastofu RÚV
kemur hins vegar ekki á óvart því
hún hefur alltaf notið mikils trausts.
Þessi spurning er í raun útgáfa af því
hverjum fólk treystir best til að segja
satt og rétt frá,“ segir Birgir.
Hins vegar eru aðeins 5,7 prósent
svarenda í könnuninn sem telja víð-
lesnasta blað landsins, Fréttablað-
ið, hafa staðið sig vel þegar kemur
að spillingarmálum. Birgir telur að
þar komi tvennt til. „Það er orðspor-
ið. Tengslin við eigendurna. Síðan er
það líka þessi tilfinning sem menn
fá þegar auglýsingahlutfallið er orð-
ið jafn mikið og það er. Þá verður erf-
iðara fyrir ritstjórnina að viðhalda
þeirri tilfinningu að þetta sé alvöru
blað. En það hefur ekkert með það
að gera hvað raunverulega stend-
ur í því heldur hvernig fólk upplif-
ir það,“ segir Birgir.
Ofurlaunafólk í sérflokki
Athygli Birgis vekur sú staðreynd
að aðeins rúmur helmingur þát-
takendanna í könnuninni tekur
afstöðu til spurningarinnar. „Það
hversu fáir treysta sér til að segja
hvaða fjölmiðill hefur staðið sig vel
styður fyrri niðurstöður um að
fjölmiðlar þurfa að hugsa
sinn gang hvað
varðar traust
al-
mennt,“ segir hann.
Þegar niðurstöður könnunarinn-
ar eru skoðaðar eftir tekjuhópum
sést að þeir sem hafa á bilinu 600 til
799 þúsund krónur í heimilistekjur-
tekjur hafa mest álit á uppljóstrun-
um DV. Fast þar á eftir fylgir hópur-
inn með tekjur frá 400 þúsundum til
599 þúsund króna á mánuði. Þegar
mánaðartekjur heimilisins eru hins
vegar komnar yfir 800 þúsund fer
hrifning fólks á umfjöllun DV um
spillingarmál þverrandi. Þeim hæstu
launin fá hafa því minnst álit á upp-
ljóstrunum DV.
Slæm útkoma
vefmiðla og Fréttablaðs
Í könnun MMR var einnig spurt:
„Hvaða fjöl-
miðill telur þú að sé öflugustur
íslenskra fjölmiðla á sviði rannsókn-
arblaðamennsku?“ Þar trónir Frétta-
stofa Stöðvar 2 á toppnum en 23,3
prósent þeirra 555 sem tóku afstöðu
til spurningarinnar telja hana öfl-
ugasta. Morgunblaðið landar öðru
sætinu með 22,6 prósent, Fréttastofa
RÚV 19,5 prósent og DV 17,1 pró-
sent.
Þar langt fyrir neðan kemur síð-
an Mbl.is en aðeins 5,9 prósent telja
rannsóknarblaðamennsku öflugasta
á þeim miðli. Fréttablaðið er enn
neðar með 4,3 prósent. Vísir.is ber af
að mati 2,3 prósent svarenda Aðrir
nefndu aðra fjölmiðla til sögunnar.
Samkvæmt þessu er
DV í fjórða sæti yfir öflugustu ís-
lensku fjölmiðlanna á sviði rann-
sóknarblaðamennsku en mun víð-
lesnari miðlar á borð við Mbl.is og
Fréttablaðið teljast síður skara fram
úr á þessu sviði.
Vikmörk í könnun MMR þegar
spurt var um uppljóstrun spillingar-
mála voru á milinu 1,9 til 3,8 prósent.
Mest voru þau hjá þeim hópum sem
voru hlutfallslega stærstir og minnst
hjá fámennustu hópunum.
Þegar spurt var um rannsókna-
blaðamennsku voru vikmörkin á bil-
inu 1,3 til 3,5 prósent.
föstudagur 19. júní 200910 Fréttir
DV er sá fjölmiðill sem hefur staðið sig best í að ljóstra upp um spillingarmál í íslensku samfélagi á síðustu
misserum samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar MMR. Fréttastofa RÚV fylgir fast á hæla blaðsins en
hún hefur í gegn um árin notið mikils trausts almennings. Birgir Guðmundsson telur laka stöðu Frétta-
blaðsins í þessu sambandi helgast af umræðu um eignarhald á blaðinu og hátt auglýsingahlutfall.
DV KEMUR UPP
UM SPILLINGU
„DV getur vel við unað
og er í sérflokki hjá
prentmiðlunum“
23,5%
22,5%
18,6%
11,4%
7,2%
5,7%
4,4%
6,6%
FR
ét
ta
St
oF
a
RÚ
V
FR
ét
ta
St
oF
a
St
öð
Va
R
2
M
oR
GU
Nb
La
ðI
ð
Ví
SI
R.
IS
FR
ét
ta
bL
að
Ið
M
bL
.IS
að
RI
R
M
Ið
La
R
„HVER EFtIRtaLINNa
FjöLMIðLa tELUR þÚ
að HaFI StaðIð SIG
bESt í að LjóSta UPP
UM SPILLINGaRMáL í
íSLENSKU SaMFéLaGI á
SíðUStU MISSERUM?“
Fr
ét
ta
st
oF
a
st
öð
va
r 2
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fr
ét
ta
st
oF
a
rÚ
v
Dv
M
bl
.is
Fr
ét
ta
bl
að
ið
v
ís
ir
.is
a
ðr
ir
Fj
öl
M
ið
la
r
23,3% 22,6%
19,5%
17,1%
5,9%
4,3%
2,6%
4,7%
„HVaða FjöLMIðILL tELUR þÚ að Sé
öFLUGaStUR íSLENSKRa FjöLMIðLa á
SVIðI RaNNSóKNaRbLaðaMENNSKU?”
aFStaða tIL DV EFtIR
tEKjUM HEIMILIS
„Hver eftirtalinna fjölmiðla telur þú að hafi staðið
sig best í að ljósta upp um spillingarmál í íslensku
samfélagi á síðustu misserum?“
un
Di
r 2
50
þÚ
su
nD
25
0-
39
9 þ
Ús
un
D
40
0-
59
9 þ
Ús
un
D
60
0-
79
9 þ
Ús
un
D
80
0 þ
Ús
un
D
eð
a
hæ
rr
a
20,4% 20,4%
24,5%
25,9%
18,9%
Hátt auglýsingahlutfall Birgir guðmunds-
son telur hátt auglýsingahlutfall í fréttablað-
inu skapa ritstjórninni vandræði við að halda
þeirri ímynd að um alvöru blað sé að ræða.
ERla HlynSdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is