Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Page 13
föstudagur 19. júní 2009 13Fréttir Breytir ekki samkvæmt anda laganna Annar viðmælandi blaðsins segir að Sigurjón hafi gríðarlega mikla analítíska greind og geti munað heilu excel-skjölin af tölum. „En eins og oft er með svoleiðis menn þá hefur hann ekki mikla og djúpa skynjun á umhverfi sínu og því samhengi sem hann er í. Sigur- jón setur hlutina bara upp í reikn- ingsdæmi og tekur ákvörðun sam- kvæmt því. Þetta er mikill veikleiki hjá honum sem reynst hefur dýr- keyptur, eins og við sáum til dæm- is í þessari bílaumræðu. Af hverju fór Sigurjón ekki bara og keypti sér einhvern annan Benz á bílasölu?“ Þarna er viðmælandi blaðsins að vísa til fréttar DV af því í vikunni að Sigurjón hafi fyrr á árinu látið mágkonu sína, Freyju Maríu Þor- steinsdóttur, leppa fyrir sig kaup á 15 milljóna króna Benz-sport- bíl sem hann hafði haft til afnota á meðan hann var bankastjóri. „Þessi aðgerð Sigurjóns er dæmi um mann sem hefur enga tilfinn- ingu fyrir því hvaða umræða er í gangi í samfélaginu.“ Sömu sögu sé að segja um frétt þess efnis í vikunni að Sigur- jón hafi fengið 70 milljóna króna lán af eigin lífeyri úr Landsbank- anum en lánið átti að vera vaxta- laust fram til ársins 2028. „Það er alveg sömu sögu að segja varð- andi þetta kúlulán á eftirlaunum hans frá Landsbankanum. Hann sér þetta bara sem reikningsdæmi: Ef þetta er löglegt eftir einhverjum gjörningaleiðum þá er þetta bara í lagi,“ segir viðmælandinn og bætir því við að það megi segja um þess- ar ákvarðanir Sigurjóns og margar aðrar ákvarðanir íslenskra auð- og bankamanna hér á landi á síðustu árum að menn hafi eingöngu velt því fyrir sér hvort tilteknar aðgerð- ir hafi verið löglegar eða ekki en ekki hvort þær hafi verið siðlegar; að Sigurjón hafi einfaldlega ekki unnið eftir anda laganna oft á tíð- um. „Ég held ekki að Sigurjón hafi gert þetta af einhverri illgirni held- ur einfaldlega áttar hann sig ekki á því hvað það er margt athugavert við þetta og hvaða umræðu þetta hefur skapað þó þetta kunni að vera löglegt,“ segir viðmælandinn. Oft nokkrum skrefum á undan sér Viðmælendur DV skýra þessar að- gerðir Sigurjóns á þann hátt að hann sé oft á tíðum nokkrum skrefum á undan sjálfum sér. Hann þykir mik- il göslari og er sagður hálf-manískur. „Hann er náttúrulega alltaf nokkrum handahlaupum á undan sjálfum sér; það er alltaf mikill flumbrugangur og sláttur á honum,“ segir einn af við- mælendum blaðsins sem kynntist Sigurjóni í stúdentapólitíkinni í há- skólanum. Allir viðmælendur blaðsins lýsa Sigurjóni á sambærilegan hátt að þessu leyti: að hann einfaldlega fari stundum of geyst og þá fram úr sjálf- um sér. Fyrrverandi undirmaður Sig- urjóns í Landsbankanum segir til dæmis að kapp Sigurjóns sé oft meira en forsjá hans. „Það má kannski segja það sama um Sigurjón og svo marga aðra í íslensku viðskiptalífi á síðustu árum en það er klárlega ekki þannig að hann sé illa innrættur eða svindlari,“ segir starfsmaðurinn fyrr- verandi. Annar viðmælandi blaðsins seg- ir jafnframt að þegar þessi maníu- tilhneiging Sigurjóns fari saman við mikla greind, orku og mikinn dugn- að og sannfæringarkraft þá geti það haft slæmar afleiðingar í för með sér auk þess sem Sigurjón sé þannig að hann hlusti ekki mikið á gagnrýni annarra þegar hann hefur ákveðið hvað eigi að gera. „Hann hlustar ekki mikið á aðra auk þess sem alls ekki allir treysta sér til að mótmæla Sigur- jóni þegar hann hefur ákveðið eitt- hvað því hann er svo dómínerandi karakter... Allir í bankanum treystu dómgreind hans líka mjög vel,“ segir viðmælandinn. Gagnrýni á Icesave ekki svaraverð Eitt af því sem Sigurjón var kapp- samur um og trúði á voru Icesa- ve-innlánsreikningar Landsbank- ans sem svo mikill styr hefur staðið um á liðnum mánuðum vegna þess að ljóst er að Íslendingar þurfa að standa skil á greiðslum til þeirra 350 þúsund viðskiptavina í Bretlandi og Hollandi sem lagt höfðu fé inn á Ic- esave-reikningana. Ástæðan fyrir því að Íslendingar þurfa að ábyrgjast greiðslurnar til Icesave-viðskiptavin- anna eru þær að Landsbankamönn- um láðist að koma innlánsreikning- unum inn í dótturfélög í löndunum tveimur þrátt fyrir að stjórnendum Landsbankans hefði ítrekað verið bent á hættuna sem það gæti haft í för með sér fyrir Íslendinga ef illa færi. Sigurjón vísaði því til dæmis á bug í byrjun júlí árið 2008 að líklegt væri að Landsbankinn væri að fara á hausinn og að Icesave-innistæðu- eigendur í Bretlandi og Hollandi myndu ekki sjá krónu af peningum sínum aftur. Bert Hermskerk, for- maður bankaráðs hollenska bank- ans Rabobank, hafði látið þessi orð falla í umræðuþætti í hollenska sjón- varpinu og sagði hann meðal ann- ars að áreiðanleiki Landsbankans væri enginn og líkti honum við tyrk- neska banka, sem ekki þykja traust- ur pappír í Hollandi. Í viðtali við Við- skiptablaðið þar sem hann svaraði ummælunum sagði Sigurjón: „Það tekur því ekki að svara svona um- mælum, þetta er ekki svaravert... Við erum að keppa á okkar forsendum og það gengur vel,“ sagði Sigurjón. Annað átti hins vegar eftir að koma á daginn. Icesave: „Tær snilld“ Sigurjón var nefnilega svo hrifinn af Icesave-reikningunum sem aðferð við að fjármagna Landsbankann hér heima að í viðtali við Markað- inn, viðskiptafylgiblað Fréttablaðs- ins, í febrúar 2007 sagði hann að inn- lánsreikningarnir væru „tær snilld.“ Í viðtalinu sagði Sigurjón um Ice- save: „Það eina sem ég þarf að gera er að kíkja í lok dags hvað er kominn mikill peningur inn,“ sagði Sigurjón hlæjandi í viðtalinu áður en hann tók símann upp og hringdi til að fá að vita hversu miklir fjármunir væru komnir inn á Icesave-reikningana og bætti svo við: „Það bættust við fimm- tíu milljónir punda bara á föstudag- inn.“ Sigurjón sagði síðar, eftir efna- hagshrunið í október, að í mars 2008 hefði Landsbankinn byrjað að vinna að því að koma Icesave-reikning- unum inn í dótturfélög í Bretlandi og höfðu farið fram viðræður við breska fjármálaeftirlitið um að það yrði gert. Rúmu hálfu ári áður, í ágúst 2007, hafði hins vegar ekkert bent til að Landsbankinn ætlaði að færa Ic- esave-reikningana inn í dótturfélag í Bretlandi. Haldið áfram að fjármagna bankann með Icesave Í viðtali við Ísland í dag í ágúst 2007 sagði Sigurjón að ekkert benti til GRÁ SVÆÐI SIGURJÓNS Ábyrgðin mest hjá Landsbankanum steingrímur j. sigfússon sagði í umræðum um Icesave-samninginn á alþingi í gær að ábyrgðin á skuldsetn- ingu þjóðarinnar vegna þeirra lægi að mestu leyti hjá stjórnendum Landsbankans. Framhald á næstu síðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.