Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 26
föstudagur 19. júní 200926 Fókus
um helgina
Steinunn borgarliStamaður 2009
Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir var á þjóðhátíðardaginn sjálfan út-
nefnd borgarlistarmaður Reykjavíkur þetta árið. Steinunn hefur notið mikill-
ar velgengni erlendis sem og hérna heima og hefur hún meðal annars unnið
sem aðalhönnuður hjá Gucci, Calvin Klein og La Perla. Í fyrra hlaut Steinunn
stærstu hönnunarverðlaun heims, sænsku Torsten och Wanja Söderberg-
verðlaunin. Þetta er í fyrsta sinn sem fatahönnuður hlýtur þessi verðlaun.
Hrunið enn
vinSæluSt
Tvær bækur um efnahagshrunið
tróna á toppi yfir mest seldu bæk-
urnar í Eymundsson þessa vikuna.
Hrunið eftir Guðna Th. Jóhannesson
sagnfræðing situr á toppi vinsælda-
listans aðra vikuna í röð en í þriðja
sæti er bókin Íslenska efnahags-
undrið eftir Jón F. Thoroddsen. Í
öðru sæti er bókin Óheillakrákan
eftir Camillu Lackberg. Aðrar vin-
sælar bækur eru Karlar sem hata
konur eftir Stieg Larsson, Ef ég væri
söngvari eftr Ragnheiði Gestsdóttur,
Sofandi að feigðarósi eftir Ólaf Arn-
arson og Dóttir hennar, dóttir mín
eftir Dorothy Koomson.
guSguS á ferð
og flugi
Sveitin GusGus eru nú á stuttu
ferðalagi um Evrópu og hefur
komið við á nokkrum stöðum við
góðar undirtektir. Ástæðan fyrir
ferðinni er að kynna fyrstu smá-
skífuna af væntanlegri breiðskífu,
24/7. Smáskífan heitir Add This
Song og kemur út mánudaginn
22. júní. Um helgina kemur Gus-
Gus fram á hinni virtu tónlistar-
hátíð Sonar í Barcelona ásamt
ekki ómerkari tónlistarmönnum
en Fever Ray, Grace Jones, Anim-
al Collective og Orbital.
Konur á rauðum
SoKKum
Heimildarmyndin Konur á rauðum
sokkum eftir Höllu Kristínu Einars-
dóttur verður sýnd í Regnboganum
föstudaginn 19. júní. Þessi fróðlega
heimildarmenn um íslenskar konur
sem tóku þátt í kvennabaráttunni á
sínum tíma hlaut áhorfendaverð-
launin á Skjaldborgarhátíðinni fyrir
ekki svo löngu. Myndin byggist á
viðtölum þeirra Höllu og Fríðu Rós-
ar Valdimarsdóttur við um 20 konur
sem tóku þátt í kvennabaráttunni á
sjöunda og áttunda áratug síðustu
aldar, og er einn afrakstur verkefnis-
ins Minningar úr kvennabaráttunni
1965–1980 sem Miðstöð munnlegrar
sögu stendur að. Sýning myndarinn-
ar hefst klukkan 20 og er líklegt að
fleiri sýningar verði í Regnboganum.
Terminator Salvation er sjálfstætt
framhald af samnefndum þríleik
um tortímandann þar sem Arnold
Schwarzenegger var í aðalhlutverki.
Myndin gerist í framtíðinni eftir að
dómsdagur hefur átt sér stað. Hún
gerist samt á undan þeim atburðum
í framtíðinni sem áttu eftir að móta
nútíð fyrri myndanna. Flókið, en
samt ekki svo.
Christian Bale leikur and-
spyrnuhermanninn John Connor
sem berst gegn illum vélmenn-
um Skynet-varnarkerfisins. Jörð-
in er nánast eyðimörk ein eftir að
vélmennin tóku yfir og reyndu að
útrýma mannkyninu með kjarn-
orkuárásum. Connor og þeir fáu
sem eftir eru reyna að finna leið til
þess að vinna bug á vélunum. Allt
breytist hins vegar þegar nýtt vél-
menni lítur dagsins ljós.
Það vonuðust flestir til þess að
Bale myndi blása nýju lífi í Term-
inator-myndirnar líkt og hann gerði
við Batman. Það hefur mistekist. Í
það minnsta tókst ekki eins vel til.
Kannski er það þó ekki færni Bales
sem klikkaði heldur gæðamunurinn
á leikstjórunum sem skiptir mestu
máli. Það er að segja McG sem leik-
stýrir Terminator Salvation og hins
vegar Christopher Nolan sem gerði
Batman Begins og The Dark Knight.
Helstu afrek McG fram að þessu eru
Charlies Angel´s myndirnar.
Terminator Salvation er fínasta
hasarmynd en er því miður ekki
mikið meira en það. Hún er ekki
jafngóð og fyrstu tvær myndirnar
en klárlega betri en sú þriðja. Hún
er bara of Hollywood-leg og fyrir-
sjáanleg á köflum til að verða eitt-
hvað meira en fín hasarmynd. Það
gladdi mig mikið að sjá Arnold
gamla bregða fyrir jafnvel þótt hann
hafi verið tölvugerður og það voru
margir jákvæðir punktar inn á milli.
Hljóðið í myndinni var ótrúlega flott
og útlit hennar sannfærandi.
Vonin er þó ekki úti enn og sem
gamall Terminator-aðdáandi von-
ast ég enn til þess að næstu tvær
myndir sem á eftir koma verði betri
en sú fyrsta. Spurning hvort einhver
annar en McG sé ekki betur til þess
fallinn að leikstýra þeim.
Ásgeir Jónsson
Burt með Mcg
TerminaTor
SalvaTion
Leikstjóri: Mcg
Aðalhlutverk: Christian Bale og sam
Worthington
kvikmyndir
Christian Bale Er fínn en myndin ekki
jafngóð.
AllAr leiðir liggjA
upp frá botninum
Bergsveinn Birgisson gaf út skáldfræðiritið Handbók um hugarfar kúa á þjóðhátíð-
ardaginn. Þetta er hans önnur skáldsaga og segir sögu manns sem glímir við geðræn
vandamál um leið og hann rannsakar íslensku kúna. Um leið er bókin ádeila á við-
horf til geðrænna vandamála og á vestræna hugmyndafræði sem sé nú komin í þrot.
Bergsveinn Brigisson sendir
frá sér sína aðra skáldsögu.
mynd heiðA heLgAdóttir