Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 21
föstudagur 19. júní 2009 21Fréttir Hvað ef ekki hefði verið samið? Fjármálaráðherra gerði sérstaka athugasemd við það atriði í mál- flutningi Sigmundar Davíðs, að Icesave-samningurinn stuðlaði að veikingu krónunnar og slöku láns- hæfismati og spurði hvað gerast mundi ef ekki yrði samið. „Þetta hefur hangið yfir okkur og það vita allir.“ Steingrímur sagði að stjórnvöld hefðu lagt sig eftir því að fá að birta Icesave-samninginn. Fram hefði komið andstaða við slíkt og sú andstaða hefði verið áréttuð í gær af sendiherra Breta. Loks þvertók Steingrímur fyrir að samningurinn fæli í sér hættu á að allar eigur þjóðarinnar væru undir og unnt væri að ganga að þeim hvar sem er. Allra síst ætti það við um auðlindir þjóðarinnar. Steingrímur og fleiri stjórn- arliðar lögðu ríka áherslu á að þingmenn kynntu sér samning- inn vandlega, nú þegar hann væri kominn í hendur þeirra, og að það yrði gert í næði. Ísland er Bretum og Hollendingum byrði Árni Páll Árnason félagsmálaráð- herra sagði að Icesave-málið væri ósanngjarnt og jafnvel andstyggi- legt. Hann sagði að Bretar bæru 2,4 milljarða punda vegna íslenska bankahrunsins og Hollendingar 1,7 milljarða evra. Þetta væru meiri byrðar en Íslendingar bæru vegna bankahruns í sínu landi. „Viðsemj- andinn vill ekki bera þetta undir dómstóla og jafnvel þótt svo væri er ekki víst að af því væri ávinn- ingur.“ Hann undirstrikaði líkt og Steingrímur nauðsyn þess að þing- menn kynntu sér samninginn vel og taldi að stjórnvöld hefðu mátt standa betur að upplýsingagjöf. Össur Skarphéðinsson utan- ríksráðherra sagði að ráðgjafar Framsóknarflokksins, eins og Jón Daníelsson hagfræðingur, hefðu mælt með því að semja um Icesave og Gylfi Zoega hagfræðingur hefði talið vextina viðunandi miðað við aðstæður. Formaður Framsókn- arflokksins hefði ekki getið þessa. Hann hefði ekki heldur sýnt fram á með útreikningum að samning- arnir stefndu þjóðinni í gjaldþrot. Þór Saari, Borgarahreyfingunni, sagði að ríkissjórnin hefði lagst í duftið. Það væri skammarlegt að velta skuldum einkaaðila yfir á al- menning. „Hvernig vogið þið ykk- ur að gera þetta?“ Steingrímur J. Sigfússon árétt- aði í lok umræðunnar að engin rök stæðust um að Icesave-samning- urinn fæli í sér veðsetningu á auð- lindum þjóðarinnar. Óvíst um Icesave- meIrIhluta á þIngI Sigmundur Davíð Gunnlaugsson „fjármálaráðherra tekur stærsta kúlulán íslandssögunnar og hann mun uppskera eins og bankarnir.“ NICOLAI Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455 www.nora.is Dalvegi 16a Kóp. opið: má-fö. 11-18, laugard. 11-16 Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is Fyrir bústaðinn og heimilið Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar. ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR Hringdu í síma 515 5550 og byrjaðu strax í dag! smaar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.