Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 21
föstudagur 19. júní 2009 21Fréttir
Hvað ef ekki
hefði verið samið?
Fjármálaráðherra gerði sérstaka
athugasemd við það atriði í mál-
flutningi Sigmundar Davíðs, að
Icesave-samningurinn stuðlaði að
veikingu krónunnar og slöku láns-
hæfismati og spurði hvað gerast
mundi ef ekki yrði samið. „Þetta
hefur hangið yfir okkur og það vita
allir.“
Steingrímur sagði að stjórnvöld
hefðu lagt sig eftir því að fá að birta
Icesave-samninginn. Fram hefði
komið andstaða við slíkt og sú
andstaða hefði verið áréttuð í gær
af sendiherra Breta.
Loks þvertók Steingrímur fyrir
að samningurinn fæli í sér hættu
á að allar eigur þjóðarinnar væru
undir og unnt væri að ganga að
þeim hvar sem er. Allra síst ætti
það við um auðlindir þjóðarinnar.
Steingrímur og fleiri stjórn-
arliðar lögðu ríka áherslu á að
þingmenn kynntu sér samning-
inn vandlega, nú þegar hann væri
kominn í hendur þeirra, og að það
yrði gert í næði.
Ísland er Bretum og
Hollendingum byrði
Árni Páll Árnason félagsmálaráð-
herra sagði að Icesave-málið væri
ósanngjarnt og jafnvel andstyggi-
legt. Hann sagði að Bretar bæru
2,4 milljarða punda vegna íslenska
bankahrunsins og Hollendingar
1,7 milljarða evra. Þetta væru meiri
byrðar en Íslendingar bæru vegna
bankahruns í sínu landi. „Viðsemj-
andinn vill ekki bera þetta undir
dómstóla og jafnvel þótt svo væri
er ekki víst að af því væri ávinn-
ingur.“ Hann undirstrikaði líkt og
Steingrímur nauðsyn þess að þing-
menn kynntu sér samninginn vel
og taldi að stjórnvöld hefðu mátt
standa betur að upplýsingagjöf.
Össur Skarphéðinsson utan-
ríksráðherra sagði að ráðgjafar
Framsóknarflokksins, eins og Jón
Daníelsson hagfræðingur, hefðu
mælt með því að semja um Icesave
og Gylfi Zoega hagfræðingur hefði
talið vextina viðunandi miðað við
aðstæður. Formaður Framsókn-
arflokksins hefði ekki getið þessa.
Hann hefði ekki heldur sýnt fram
á með útreikningum að samning-
arnir stefndu þjóðinni í gjaldþrot.
Þór Saari, Borgarahreyfingunni,
sagði að ríkissjórnin hefði lagst í
duftið. Það væri skammarlegt að
velta skuldum einkaaðila yfir á al-
menning. „Hvernig vogið þið ykk-
ur að gera þetta?“
Steingrímur J. Sigfússon árétt-
aði í lok umræðunnar að engin rök
stæðust um að Icesave-samning-
urinn fæli í sér veðsetningu á auð-
lindum þjóðarinnar.
Óvíst um Icesave-
meIrIhluta á þIngI
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
„fjármálaráðherra tekur stærsta kúlulán
íslandssögunnar og hann mun uppskera
eins og bankarnir.“
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
www.nora.is Dalvegi 16a Kóp.
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
smaar@dv.is