Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 64
n Rithöfundurinn Guðbergur Bergsson varar formann Lækna- félagsins við ofmati í pistli á vef Forlagsins, forlagid.is. Kveikjan að skrifum Guðbergs er yfirlýsing for- mannsins um að læknar kunni að flýja land verði laun þeirra lækkuð niður fyrir laun forsætisráðherra með valdboði. Guðbergur bendir á að íslenskir bankamenn hafi sung- ið svipaðan söng þegar þeir fengu ekki allt sem þeir vildu áður en í ljós kom að snilli þeirra var öllu minni en þeir vildu vera láta. Guðbergur nefnir ýmsa Íslendinga til sögunnar sem þættu vart hafa mikið fram að færa á vettvangi alþjóða og segir svo: „Varla er þjóðin almennt eftirsótt í útlönd- um með skort sinn á naflaskoðun og kunn- áttuleysi við annað en að kjósa ófremdar- ástand yfir sig.“ Át hann ekki bara eitthvað ofan í sig? Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Það gekk mjög vel þangað til ég fór úr axlarliðnum. Ég kláraði tvær síðustu greinarnar svoleiðis,“ seg- ir Grétar Sigurðarson. Grétar, sem fékk tveggja og hálfs árs fangelsis- dóm í líkfundarmálinu svokallaða, var einn af keppendum í Sterkasti maður Íslands. Seinni keppnisdagur var 17. júní en fyrir hann var Grétar í fjórða sæti. Meiðslin settu svo sann- arlega strik í reikninginn. „Ég féll niður í fimmta sætið,“ segir Grétar sem hafði ekki hug- mynd um að hann hefði farið úr axl- arlið. „Ég vissi þetta ekki fyrr en ég kom upp á spítala. Þetta gerist. Þetta er ekkert annað en smá bakslag.“ Grétar hefur keppt talsvert inn- an kraftlyftingaheimsins en þetta er í annað skiptið sem hann keppir í Sterkasti maður Íslands. Hann rek- ur einnig verslunina 1body.is í Skip- holti 15 sem selur fæðubótarefni fyrir þá sem vilja ná góðum árangri í sportinu. Grétar er hvergi af baki dottinn eftir bakslagið á þjóðhátíð- ardaginn og ætlar ekki að gefast upp á næstunni. „Ég hef verið betri. Ég er mjög aumur í öxlinni og þarf að bíða og sjá hvað gerist. Ég ætla bara að taka ákvörðun um næstu mót þegar bólg- an er farin og ég sé hvað ég er mikið skemmdur.“ liljakatrin@dv.is Skortur á naflaSkoðun 0 9 -0 0 1 4 H en na r há tig n Íslenskt nautakjöt er góður grunnur fyrir vel heppnaða máltíð. Á grillið, í ofninn eða á pönnuna. Veldu ferskt og gott hráefni þegar góða veislu gjöra skal. Íslenskt og ferskt úrvals hráefni. Grétar Sigurðarson lenti í 5. sæti í Sterkasti maður Íslands þrátt fyrir meiðsli: kláraði keppnina úr axlarliðnum n Ólafur Sindri Ólafsson, sem gerði garðinn frægan sem kjaftfori bloggarinn Mengella, segir farir sínar ekki sléttar á Facebook-síðu sinni en hann fékk matareitrun eftir að hafa borðað á Rosenberg fyrir tónleika Megasar og Senuþjófanna um þarsíðustu helgi. „Allir sem ákváðu að snæða máltíð á Rósen- berg byrjuðu sem sagt að æla lifrum og allt niður í miltu,“ skrifar Ólafur Sindri og segir þetta með því versta sem hann hafi lent í. „Ég hugga mig bara við að Jón Baldvin og Gísli Marteinn voru að borða þarna sama kvöld,“ bætir hann við þannig að fátt er svo með öllu illt. megaS og matareitrun n Margir þjóðþekktir einstakling- ar heimsóttu miðbæ Reykjavíkur á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Meðal gesta sem spókuðu sig í miðborg- inni voru skötuhjúin Jón Bald- vin Hannibalsson og Bryndís Schram. Bryndís og Jón Baldvin gengu um bæinn þveran og endi- langan og skoðuðu það sem í boði var. Hjónin voru svo sannarlega vel búin og hvort með sína regnhlífina þótt lítið rigndi á hátíðardaginn. Bryndís var með svarta regnhlíf en Jón Bald- vin bar aftur á móti regnhlíf í lit ástríð- unnar, hárauða. Þó að turtildúfurnar deildu ekki regnhlíf létu þau vel hvort að öðru og geisluðu af ham- ingju. eldrauður Jón Baldvin Sáttur grétar er sæll með lífið og tilveruna og gerir það gott í fæðubótar- efnabransanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.