Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Side 64
n Rithöfundurinn Guðbergur
Bergsson varar formann Lækna-
félagsins við ofmati í pistli á vef
Forlagsins, forlagid.is. Kveikjan að
skrifum Guðbergs er yfirlýsing for-
mannsins um að læknar kunni að
flýja land verði laun þeirra lækkuð
niður fyrir laun forsætisráðherra
með valdboði. Guðbergur bendir á
að íslenskir bankamenn hafi sung-
ið svipaðan söng þegar þeir fengu
ekki allt sem þeir vildu áður en í ljós
kom að snilli þeirra var öllu minni
en þeir vildu vera láta. Guðbergur
nefnir ýmsa Íslendinga til sögunnar
sem þættu vart hafa
mikið fram að færa
á vettvangi alþjóða
og segir svo: „Varla
er þjóðin almennt
eftirsótt í útlönd-
um með skort sinn á
naflaskoðun og kunn-
áttuleysi við annað en
að kjósa ófremdar-
ástand yfir sig.“
Át hann ekki bara
eitthvað ofan í sig?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Það gekk mjög vel þangað til ég
fór úr axlarliðnum. Ég kláraði tvær
síðustu greinarnar svoleiðis,“ seg-
ir Grétar Sigurðarson. Grétar, sem
fékk tveggja og hálfs árs fangelsis-
dóm í líkfundarmálinu svokallaða,
var einn af keppendum í Sterkasti
maður Íslands. Seinni keppnisdagur
var 17. júní en fyrir hann var Grétar í
fjórða sæti. Meiðslin settu svo sann-
arlega strik í reikninginn.
„Ég féll niður í fimmta sætið,“
segir Grétar sem hafði ekki hug-
mynd um að hann hefði farið úr axl-
arlið.
„Ég vissi þetta ekki fyrr en ég kom
upp á spítala. Þetta gerist. Þetta er
ekkert annað en smá bakslag.“
Grétar hefur keppt talsvert inn-
an kraftlyftingaheimsins en þetta
er í annað skiptið sem hann keppir
í Sterkasti maður Íslands. Hann rek-
ur einnig verslunina 1body.is í Skip-
holti 15 sem selur fæðubótarefni
fyrir þá sem vilja ná góðum árangri
í sportinu. Grétar er hvergi af baki
dottinn eftir bakslagið á þjóðhátíð-
ardaginn og ætlar ekki að gefast upp
á næstunni.
„Ég hef verið betri. Ég er mjög
aumur í öxlinni og þarf að bíða og
sjá hvað gerist. Ég ætla bara að taka
ákvörðun um næstu mót þegar bólg-
an er farin og ég sé hvað ég er mikið
skemmdur.“
liljakatrin@dv.is
Skortur á
naflaSkoðun
0
9
-0
0
1
4
H
en
na
r
há
tig
n
Íslenskt nautakjöt er góður grunnur fyrir vel heppnaða máltíð. Á grillið, í ofninn
eða á pönnuna. Veldu ferskt og gott hráefni þegar góða veislu gjöra skal.
Íslenskt og ferskt úrvals hráefni.
Grétar Sigurðarson lenti í 5. sæti í Sterkasti maður Íslands þrátt fyrir meiðsli:
kláraði keppnina úr axlarliðnum
n Ólafur Sindri Ólafsson, sem
gerði garðinn frægan sem kjaftfori
bloggarinn Mengella, segir farir
sínar ekki sléttar á Facebook-síðu
sinni en hann fékk matareitrun eftir
að hafa borðað á Rosenberg fyrir
tónleika Megasar og Senuþjófanna
um þarsíðustu helgi. „Allir sem
ákváðu að snæða máltíð á Rósen-
berg byrjuðu sem sagt að æla lifrum
og allt niður í miltu,“ skrifar Ólafur
Sindri og segir þetta með því versta
sem hann hafi lent í. „Ég hugga mig
bara við að Jón
Baldvin og Gísli
Marteinn voru
að borða þarna
sama kvöld,“
bætir hann
við þannig að
fátt er svo með
öllu illt.
megaS og
matareitrun
n Margir þjóðþekktir einstakling-
ar heimsóttu miðbæ Reykjavíkur á
sjálfan þjóðhátíðardaginn. Meðal
gesta sem spókuðu sig í miðborg-
inni voru skötuhjúin Jón Bald-
vin Hannibalsson og Bryndís
Schram. Bryndís og Jón Baldvin
gengu um bæinn þveran og endi-
langan og skoðuðu það sem í boði
var. Hjónin voru svo sannarlega vel
búin og hvort með sína regnhlífina
þótt lítið rigndi á hátíðardaginn.
Bryndís var með svarta
regnhlíf en Jón Bald-
vin bar aftur á móti
regnhlíf í lit ástríð-
unnar, hárauða.
Þó að turtildúfurnar
deildu ekki regnhlíf
létu þau vel
hvort að
öðru og
geisluðu
af ham-
ingju.
eldrauður
Jón Baldvin
Sáttur grétar er sæll með lífið og
tilveruna og gerir það gott í fæðubótar-
efnabransanum.