Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 30
föstudagur 19. júní 200930 Helgarblað
það hvernig hlutirnir gengu fyrir sig. „Þá var ég
búinn að draga upp fleiri, fleiri koparsnúrur í
Rockville og fór alltaf með þær í blikksmiðju
og kom með hverja feita ávísunina á fætur
annarri til baka. Ég vann og vann, svo fór-
um við í eitt skiptið með fleiri tonn af kopar
og fengum eitthvað um 800 þúsund kall fyrir.
Svo áttum við að hitta Guðmund í sjoppu til
að láta hann hafa ávísunina. Þá henti hann í
mig einhverjum 5 þúsund kalli fyrir alla þessa
vinnu,“ segir Sigurður og lyftir upp höndun-
um til að leggja áherslu á það hve honum hafi
þótt þetta ósanngjarnt. Sigurður segist líka
hafa skrifað upp á lán fyrir Guðmund, sem
hafi síðan fallið á hann. „Auðvitað átti ég að
hafa vit á því að segja nei við hann, en þetta
var uppáhaldsbróðir minn og ég trúði honum
og treysti og vann líka fyrir hann. Fyrir mér
snerist þetta aldrei um peninga, heldur bara
traust. Svo missti ég líka húsnæðið sem ég
var með eftir Byrgismálið. Fólk sagði bara: þú
ert bróðir Guðmundar í Byrginu, ég vil að þú
komir þér héðan út,“ segir Sigurður og hallar
sér aftur í stólnum.
Hafa ekki talað saman í Hálft ár
„Ég er mjög reiður út í bróður minn. Ég leit
upp til hans og gerði allt fyrir hann, en mér
finnst eins og hann hafi komið með hníf og
stungið mig í bakið. Ég sagði við Guðmund
eftir að málið komst í fjölmiðla að það kæmi
að skuldadögum og hann myndi þurfa að
borga fyrir þetta. Það er þannig með þá sem
eru að svindla og fela, það kemur alltaf í bak-
ið á þér. Ég reyndi svo einu sinni að tala við
hann eftir það og ætlaði að ræða við hann um
Byrgismálið, en hann skellti á mig. Það var í
janúar, síðan hef ég ekki heyrt í honum.“ Guð-
mundur neitaði sem kunnugt er öllum ásök-
unum, meðal annars í frægu viðtali í Kompás-
þættinum, þar sem fyrst var greint frá málinu.
Sigurður dregur ekki dul á hneykslun sína yfir
þessum viðbrögðum bróður síns og segist
ekki eiga orð yfir það hvernig hann hafi kom-
ið fram í fjölmiðlum eftir að málið kom upp.
„Það sem hann sagði var bara helvítis kjaft-
æði. Kennandi öðru fólki um og annað. Hann
sagðist hafa verið misnotaður í sveit. Bíddu,
ég var alltaf með honum í sveit og fólkið sem
við vorum hjá var bara besta fólk. Tómt kjaft-
æði.“
Sigurður finnur til með öllu því fólki sem á
um sárt að binda eftir Guðmund í Byrginu, en
biður bara um það eitt að hann verði ekki lát-
inn borga fyrir syndir bróður síns. „Mér finnst
alveg synd hvernig Guðmundur hefur far-
ið með allt þetta fólk í landinu. Hann hjálpar
því og misnotar það svo. Ég vil bara segja við
mæður, feður og bræður og systur þeirra sem
Guðmundur misnotaði að ég skil að þau séu
reið. En ég er ekki Guðmundur í Byrginu og
ég á að geta gengið um bæinn án þess að vera
áreittur. Ég þori ekki lengur niður í bæ eftir 10
á kvöldin. Ég vil að það breytist.“