Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Page 16
föstudagur 19. júní 200916 Fréttir
Jóhanna Sigurðardóttir telur skuldavanda heimilanna ekki eins alvarlegan og látið hefur verið liggja að
og vísar í skýrslu Seðlabankans um stöðu heimilanna. Þar er hins vegar ekki tekið mið af frystingu íbúða-
lána. Ólafur Ísleifsson telur þetta mikilvægan þátt og leggur til að aðrir en Seðlabankinn vinni skýrslurnar.
Áætlað er að 28.500 heimili verði tæknilega gjaldþrota í lok ársins og bankarnir eignist sífellt stærri hlut í
heimilum.
frosin lán skekkja
heildarmyndina
Skýrsla Seðlabankans um stöðu
heimilanna, sem kynnt var í síð-
ustu viku, tekur ekki mið af frystingu
íbúðalána í tölum um greiðslubyrði
heimilanna. Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra ræddi skýrslu
Seðlabankans á Alþingi í síðustu
viku, þar sem hún sagði að skýrslan
leiddi í ljós að skuldastaðan væri ekki
eins slæm og margir teldu. Langflest
heimili myndu standa efnahags-
ástandið af sér. Í nýbirtri skýrslu fjár-
málaráðuneytisins kemur hins vegar
fram að fjöldi heimila sem eru tækni-
lega gjaldþrota hafi nær fjórfaldast
á tveimur árum og eiginfjárhlutfall
íbúðarhúsnæðiseigenda hrunið að
undanförnu.
Skuldastaða
heimilanna
kann
því
að vera talsvert alvarlegri en kemur
fram í skýrslu Seðlabankans og for-
sætisráðherra notaði til grundvall-
ar röksemdafærslu sinni. Ekki hafa
fengist upplýsingar hjá Seðlabank-
anum um hversu margir hafa nýtt sér
möguleikann á að frysta fasteigna-
lán. Ekki náðist í höfunda skýrslunn-
ar, þar sem þeir eru í fríi.
Segir skuldavandann ekki eins
slæman
Í umræðum um stöðu heimilanna á
Alþingi í síðustu viku sagði Jóhanna
Sigurðardóttir meðal annars: „Þess-
ar nýju upplýsingar frá Seðlabank-
anum sýna hins vegar svart á hvítu
að skuldavandi heimilanna er ekki
eins skelfilegur og málshefjandi í dag
og ýmsir aðrir vilja láta í veðri vaka.“
Enn fremur sagði Jóhanna: „Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem ég
hef þegar fengið virðast þessar nýju
upplýsingar staðfesta að skulda-
vandi heimilanna sé ekki eins
víðtækur og ýmsir halda
fram.“
Ólafur Íseifsson,
lektor í hagfræði
við Háskólann í
Reykjavík, tel-
ur frystingu lána
vera veigamik-
inn þátt í því
að meta skulda-
stöðu heimil-
anna. „Þetta kann
að vera skýring á því
að margir hafa tekið
opinberlega til máls
og ekki kannast við
þá lýsingu sem hefur
komið fram í skýrslum
bankans. Þessari skýrslu
er að einhverju leyti áfátt
og hér er um stórt og við-
kvæmt mál að ræða, enda
eru heimilin hyrningar-
steinar samfélagsins,“ segir
Ólafur.
Ekki á verksviði Seðlabank-
ans
„Ég tel mjög þýðingar-
mikið fyrir ríkis-
stjórnina að
hún hafi
raunhæfa mynd af þessu máli, þar
sem allir helstu þættir eru teknir til
greina. Ríkisstjórnin hefur lýst yfir
eindregnum vilja til að bæta úr skák,
en hún þarf fullnægjandi upplýsing-
ar til að móta sína stefnu,“ segir Ólaf-
ur sem telur skynsamlegt að aðrir en
Seðlabankinn, vinni slíkar skýslur.
„Það getur verið að það sé ástæða til
að leita til annars aðila en Seðlabank-
ans. Þetta er ekki endilega á verksviði
hans og það kynnu að vera aðilar
sem eru ekki síður fallnir til þess að
greina þessar aðstæður.“
Aðspurður segist Ólafur gera
ráð fyrir að Jóhanna hafi ekki haft
upplýsingar um ágalla á skýrslu
Seðlabankans þegar hún fjall-
aði um málefni heimilanna með
vísun til hennar á Alþingi í síð-
ustu viku.
Aldrei átt minna í íbúðum
sínum
Eiginfjárhlutfall fasteignaeig-
enda er nú í sögulegu lágmarki
og gerir fjármálaráðuneytið ráð
fyrir því að í árslok verði eigin-
fjárhlutfallið komið niður í 44
prósent. Árið 1992 var eiginfjár-
hlutfall fasteignaeigenda í íbúð-
arhúsnæði rúmlega 70 prósent.
Þetta hlutfall lækkaði nokkuð
hratt og í kringum síðustu alda-
mót var það komið niður í um
það bil 60 prósent, samkvæmt töl-
um fjármálaráðuneytisins. Á árun-
um 2002 til 2007 hækkaði eiginfjár-
hlutfallið aftur upp í um 65 prósent,
en síðan þá hefur hlutfallið hrunið
algjörlega og hefur aldrei verið lægra
síðustu tvo áratugi.
Í fyrsta skipti eiga bankarnir og
lánafyrirtækin því að jafnaði meira í
íbúðarhúsnæði heldur en fólkið sem
býr í því.
Íbúar í húsum bankanna
Ef skuldlausir fasteignaeigendur eru
undanskildir og eingöngu skoðað-
ir þeir sem voru með íbúðareign og
íbúðarskuld umfram 500 þúsund
krónur, voru 73 þúsund fjölskyldur
í þeim flokki í árslok 2007. Áætlað er
að eiginfjárhlutfall þeirra hafi verið
54 prósent að jafnaði árið 2007. Ári
síðar hafði það hríðfallið og var eig-
infjárhlutfallið komið niður í 40 pró-
sent. Ef áætlun fjármálráðuneytisins
gengur eftir munu húsnæðiseigendur
eiga enn minna í íbúðum sínum í lok
þessa árs, eða 27 prósent að jafnaði.
Það þýðir að meðal þeirra sem skulda
í fasteignum sínum, eiga bankarnir að
jafnaði 73 prósent í fasteignum fólks.
Ástæðan fyrir þessu mikla falli er
að íbúðaverð hefur lækkað frá því það
náði hámarki, en það hefur ekki gerst
áður. Það sem meira máli skiptir er
að íbúðarskuldir hafa hækkað mikið
í kjölfar verðuppfærslu vegna verð-
bólgu og lækkunar á gengi krónunn-
ar.
28 þúsund heimili tæknilega
gjaldþrota
Í loks ársins 2007 voru alls 7.500 heim-
ili með neikvæða eiginfjárstöðu, að
meðaltali um 3,1 milljón króna, sam-
kvæmt útreikningum fjármálaráðu-
neytisins. Spár gera ráð fyrir því að í
lok þessa árs hafi þessi fjöldi nærri
því fjórfaldast og 28.500 heimili verði
komin í neikvæða eiginfjárstöðu.
Neikvæð eiginfjárstaða muni þá að
meðaltali hafa tvöfaldast og vera 6,4
milljónir umfram eignir.
„Það getur verið að það
sé ástæða til að leita til
annars aðila en Seðla-
bankans. Þetta er ekki
endilega á verksviði
hans og það kynnu að
vera aðilar sem eru ekki
síður fallnir til þess að
greina þessar aðstæð-
ur.“
vAlgEir örn rAgnArSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Jóhanna Sigurðardóttir „Þessar
nýju upplýsingar frá seðlabankan-
um sýna hins vegar svart á hvítu að
skuldavandi heimilanna er ekki eins
skelfilegur og málshefjandi í dag og
ýmsir aðrir vilja láta í veðri vaka.“
Ólafur Ísleifsson telur að jóhanna sigurð-
ardóttir forsætisráðherra hafi ekki vitað að
skýrsla seðlabankans tók ekki mið af frystingu
fasteignalána þegar hún ræddi málið á alþingi.