Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 19
föstudagur 19. júní 2009 19Fréttir
Öfgaflokkar sækja í sig veðrið og árásum fjölgar:
Vaxandi kynþáttahatur
Sigur Breska þjóðarflokksins, Brit-
ish National Party, í kosningum til
Evrópuþingsins í Bretlandi er ein af
birtingarmyndum vaxandi útlend-
inga- og kynþáttahaturs. Flokkur-
inn hafði aldrei áður náð manni
inn á Evrópuþingið en nú bar svo
við að Evrópuþingmenn flokksins
voru tveir þegar talið hafði verið
upp úr kjörkössunum. Miklar óvin-
sældir Verkamannaflokks Gordons
Brown höfðu eflaust áhrif á nið-
urstöðuna en ljóst þykir einnig að
fleiri eru reiðubúnir að greiða þeim
atkvæði sem vilja berjast gegn út-
lendingum og innflytjendum.
Breski þjóðarflokkurinn sam-
þykkir þá eina sem félagsmenn
sem eru hvítir á hörund og hefur á
stefnuskránni að flytja innflytjend-
ur sjálfviljuga úr landi, þó reynd-
ar megi skilja málflutning sumra
forsvarsmanna flokksins þannig
að innflytjendurnir þurfi ekkert
endilega að vera mjög sjálfviljugir í
flutningunum.
Frétt sem birtist á heimasíðu
Breska þjóðarflokksins á fimmtu-
dag sýnir kannski muninn á for-
gangsröðun þeirra og margra
annarra. Meðan fjölmiðlar voru
undirlagðir af frásögnum um árás-
irnar á sígaunana í Belfast tiltók
Breski þjóðarflokkurinn að sígaun-
ar nytu meiri réttinda í breska heil-
brigðiskerfinu.
Sigur Breska þjóðarflokksins
er ekkert einsdæmi. Breski sjálf-
stæðisflokkurinn bætti einnig við
sig fylgi og það gerðu fleiri flokkar
hægri öfgamanna í Evrópu.
Eins og sjá má annars staðar
í þessari umfjöllun hefur haturs-
glæpum fjölgað verulega á Norður-
Írlandi hin síðari ár. Nú er svo kom-
ið að í viku hverri eru að meðaltali
kærðar tuttugu árásir til lögreglu
þar sem kynþátta- eða útlend-
ingahatur er talið vera kveikjan að
árásinni.
Þrátt fyrir tíðar árásir á útlend-
inga í Írlandi undanfarið er ljóst
að þeir þurfa ekki að vera margir
til að fara í taugarnar á kynþátta-
og útlendingahöturum. Innan við
þúsund Rúmenar búa á Norður-Ír-
landi. Sígaunar hafa hins vegar ver-
ið sýnilegir í Belfast síðustu tvö árin
og það hefur farið fyrir brjóstið á
sumum. Þá leiddi könnun Háskól-
ans í Ulster í ljós að af 23 þjóðum
væru Norður-Írar sú þjóð þar sem
hlutfallslega flestir væru haldnir
ýmiss konar fordómum. Algeng-
astir voru fordómar í garð samkyn-
hneigðra, en næstir í röðinni voru
fordómar gagnvart innflytjendum
og farandverkamönnum.
Á flótta í Belfast Þessi börn misstu heimili sín tímabundið eftir árásir öfga-
manna.
Hefðu áður barið kaþólikka
Meðal þeirra sem hafa verið tald-
ir standa að baki árásunum á inn-
flytjendur eru ungir mótmæl-
endur enda hafa flestar árásirnar
verið gerðar í suðurhluta Belf-
ast. Þannig hefur því verið haldið
fram að unga fólkið sem núna fær
útrás fyrir reiði sína með því að
ráðast á innflytjendur hefði fyr-
ir nokkrum árum ráðist á kaþól-
ikka. Átök mótmælenda og kaþ-
ólikka heyri hins vegar að mestu
sögunni til en þess í stað sé ráðist
á innflytjendur.
Óvissa um framtíðina
Eftir að fjölskyldurnar tuttugu, sex-
tíu fullorðnir og fjörutíu börn, þar
á meðal eitt fimm mánaða gamalt,
höfðu hvílst og nærst í kirkjunni þar
sem þær fengu skjól fylgdi lögreglan
þeim á næsta dvalarstað. Skamm-
tímahúsnæði var fundið þar sem
fólkinu var sagt að það gæti dvalist
í allt að viku áður en ákvörðun yrði
tekin um framhaldið. Leynd ríkti
yfir áfangastaðnum því lögregla
vildi tryggja að útlendinga- og kyn-
þáttahatarar réðust ekki á fólkið.
Sendiherra og aðalræðismaður
Rúmeníu á Bretlandseyjum fóru til
Belfast til að ræða málin. „Við erum
hér til að reyna að bæta samskipt-
in milli samfélaga okkar og þjóð-
félaga, ekki til að eyðileggja neitt,“
sagði Mihai Delcea, aðalræðismað-
ur Rúmeníu. „Þau eru örugg hér og
ég hef ekki heyrt neitt neikvætt frá
öðrum Rúmenum hér.“
SKELFINGIN
Í BELFAST
Kynþátta- og útlend-
ingahatur blossaði upp í
Belfast með svo miklum
látum að um hundrað
manns þurftu að flýja
heimili sín. Ungir mót-
mælendur, sem áður
hefðu ef til vill ráðist
gegn kaþólikkum,
grýttu heimili þeirra og
hótuðu að myrða börn
og fullorðna. Hættan flúin Þessar mæðgur dveljast á leynilegum stað ásamt hundrað öðrum innflytjendum.