Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Side 20
föstudagur 19. júní 200920 Fréttir „Það kostar sitt að vera sjálfstæð þjóð og það að bera ábyrgð á sjálf- um sér og standa við skuldbind- ingar sínar,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í lok snarprar utandagskrárumræðu um Icesave-samninginn á Alþingi í gærkvöldi. Stjórnarandstæðingar gerðu harða hríð að ríkisstjórninni í um- ræðunum, en höfðu þá haft skamm- an tíma til að kynna sér samning- inn efnislega sem útbýtt hafði verið meðal þingmanna síðdegis í gær. Ekki samstaða um málið meðal stjórnarliða Samkvæmt heimildum DV er ekki ljóst hvort Icesave-samningurinn njóti meirihlutafylgis á Alþingi. Ætla má að 3 til 4 þingmenn VG styðji samninginn ekki og hyggist sitja hjá við afgreiðslu hans. Hins vegar er sagður einhugur meðal þingmanna Safmylkingarinnar um stuðning við samninginn. Stjórnarliðar, sem DV hefur tal- að við, segja fullum fetum að stjórn- in standi og falli með samningnum. Sú staða geti hæglega komið upp að stjórnin fallli með andstöðu fáeinna þingmanna VG verði öll stjórnar- andstaðan einhuga í andstöðu sinni þegar á reynir. Staðan þykir sér- kennileg og flókin en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, ver samn- inginn. Við honum blasir það verk- efni að sannnfæra sína þingmenn um ágæti samningsins, ella falli rík- isstjórn sem VG hefur bundið von- ir við að endist jafnvel lengur en eitt kjörtímabil. Margir stjórnarliðar bera ekki brigður á þær lagatúlkanir, sem meðal annars hafa komið fram hjá prófessor Stefáni Má Stefánssyni lagaprófessor og Lárusi Blöndal hæstaréttarlögmanni í Morgun- blaðsgreinum, en þeir færa með- al annars fyrir því rök að regluverk ESB um innistæðutryggingar eigi ekki allskostar við um alhrun eða algert kerfishrun bankakerfis heill- ar þjóðar. Á hinn bóginn sé pólitískur veru- leiki í samfélagi þjóðanna sem og siðferðislegar skuldbindingar oft á tíðum allt aðrar en það sem bund- ið er í lög. Dómstólaleið reyndist ekki fær Alvara Icesave-málsins og firnamikl- ar skuldbindingar urðu stjórnvöld- um ljós þegar í upphafi bankahruns- ins. Í byrjun nóvember síðastliðins reyndist Evrópusambandið vera til- búið til þess að leggja málið í gerð- ardóm. Árni Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, hitti síðar starfs- bræður sína í Brussel 4. nóvember þar sem þetta var staðfest. Þegar betur var að gáð sáu stjórnvöld fram á að verulegar líkur væru á að málið félli Íslandi í óhag og að þjóðinni yrði ekki aðeins gert að greiða lágmarkstryggingu inni- stæðna, eða liðlega 20 þúsund evrur fyrir hvern innistæðureikning, held- ur mun meira. Úr varð að íslensk stjórnvöld féllu frá því að leggja deiluna um ábyrgð þjóðarinnar á innistæðutryggingum erlendis fyr- ir gerðardóm enda þætti það of áhættusamt. Um þetta leyti var einnig ljóst að ekki var vilji til þess meðal þjóða ESB, Breta og Hollendinga og fleiri þjóða að fara með málið fyrir dóm- stóla. Ótækt væri að sá efasemdum um innistæðutryggingakerfi alls fjármálakerfis ESB. Skjól samningsins lítið segja andstæðingar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og málshefjandi í untandagskrárum- ræðunum í gær, sagði að bókstaf- lega ekkert stæðist af því sem sagt hefði verið um ágæti Icesave-samn- ingsins. „Fjármálaráðherra tekur stærsta kúlulán Íslandssögunnar og hann mun uppskera eins og bank- arnir.“ Sigmundur sagði að á reikn- ingi í Englandsbanka væru nú laus- ar um 350 milljónir punda eftir að frystingu eigna Landsbankans var aflétt um miðjan mánuðinn. Aðeins helmingurinn færi til að greiða nið- ur Icesave-reikninginn, annað rynni til annarra kröfuhafa. Hann gagnrýndi að í samningn- um væru fjölmörg ákvæði um skil- yrði gjaldfellingar og með því færi 7 ára skjól, sem samningurinn átti að veita, fyrir lítið. Hann taldi að samn- ingurinn gæti haft neikvæð áhrif á lánshæfismat og vaxtakjör svo íþyngjandi sem hann væri. Samn- ingurinn væri gerður milli þriggja landa þar sem eitt þeirra glímdi við gríðarlegan efnahagsvanda. Sigmundur gaf lítið fyrir ákvæði um upptöku samningsins ef hann reyndist greiðsluþoli þjóðarinnar of- viða. Ákvæðið fæli einungis í sér að Hollendingar og Bretar væru undir slíkum kringumstæðum reiðubúnir til þess að ræða málin. Undir þetta tók Bjarni Benedikts- son, formaður Sjáflstæðisflokksins. „Öryggisákvæðið er bara loft, inni- haldslaus yfirlýsing um að ef Ísland lendir í meiri greiðsluvanda séu þau til í að ræða hvort þau muni bregð- ast við því.“ Bjarni efaðist um að þingmeiri- hluti væri fyrir því að koma málinu í gegnum þingið. „Þingmenn eru ekki að fara að staðfesta þennan samn- ning.“ „Öryggisákvæðið er bara loft, innihalds- laus yfirlýsing um að ef Ísland lendir í meiri greiðsluvanda séu þau til í að ræða hvort þau muni bregðast við því.“ Óvíst um Icesave- meIrIhluta á þIngI Líf ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði fari svo að þrír til fjórir þingmenn VG styðji ekki Icesave-samn- ingana. Stjórnarliðar binda vonir við að málefnaleg umræða í nefndum þingsins, þar sem allir þingmenn hafi kynnt sér efni samningsins, verði til þess að andstaðan minnki. Þingmenn fengu samninginn í hendur síðdegis í gær og tókust á um hann í utandagskrárumræðum undir kvöld. Löglærðir menn eru ekki á einu máli um það hvort Bretar og Hollendingar geti gengið að hvaða eignum Íslendinga sem vera skal samkvæmt ákvæðum samningsins. Stjórnarliðar inna andstæðinga samningsins eftir öðrum kostum í stöðunni. Jóhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þór Saari, Borgarahreyfingunni „skamm- ist ykkar“ endurtók Þór á leið úr ræðustól og segir ótækt að skuldbinda almenning vegna skulda sem einkaaðilar stofnuðu til. Árni Páll Árnason Engin trygging er fyrir því, að mati félagsmálaráð- herra, að dómstólaleið muni skila þjóðinni betri kjörum vegna Icesave.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.