Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Side 28
föstudagur 19. júní 200928 Helgarblað
jölmiðlar landsins reyndu stöðugt
að ná tali af Sigurði Jónssyni þeg-
ar Byrgismálið kom upp. „Ég var
meira að segja vakinn klukkan
hálf fjögur um nótt af fjölmiðla-
fólki sem krafðist þess að fá að
vita sannleikann um Guðmund í
Byrginu.“
Áreitnin var svo mikil fyrstu mánuðina eftir
að fréttaskýringaþátturinn Kompás afhjúpaði
Guðmund, að Sigurður neyddist til að flýja inn
til núverandi kærustunnar sinnar og vera þar
í felum í töluverðan tíma. Á þessum tíma tók
hann þá ákvörðun að koma ekki fram í fjöl-
miðlum og hafði hugsað sér að standa við það,
en nú er honum nóg boðið. Eftir stöðugt áreiti
og leiðindi í meira en tvö ár finnst honum
tími til kominn að leysa frá skjóðunni. Þegar
blaðamaður tekur í höndina á Sigurði fer ekki
á milli mála að þarna fer jaxl sem hefur ekki
fengið neitt gefins í lífinu. Handtak að sjóara
sið, tattóveraðir upphandleggir og veðurbar-
ið andlit. Reynslan skín úr andlitinu og hún
er ekki öll góð. Svo mikið er ljóst. Húsakynn-
in eru ekki íburðarmikil, en heimilisleg engu
að síður og þegar blaðamann ber að garði er
vinur Sigurðar í heimsókn. Strákur sem hann
kynntist í Rockville. Sá ber honum vel söguna
og segir upp úr þurru: „Hann Siggi er góður
kall, hann hefur alltaf gert allt fyrir mig. En
þetta hvílir þungt á honum og hann verður að
segja frá.“
„Ég er ekki guðmundur í Byrginu“
Sigurður talar mikið áður en hið eiginlega við-
tal byrjar og ljóst að hann iðar í skinninu að fá
að segja frá. Þegar blaðamaður segir honum að
upptaka sé hafin ekur hann sér til í sætinu og
dregur djúpt andann. Talið berst strax að Guð-
mundi og Byrgismálinu. „Ég verð að segja frá,
til þess að ég verði einhvern tíma látinn í friði
og fólk átti sig á að ég er ekki Guðmundur í
Byrginu. Þegar þetta er farið að lenda á ungum
börnum mínum segi ég hingað og ekki lengra.
Ég vil að það sé alveg á hreinu að það komi
fram að ég þoli þetta ekki lengur.
Ég er í miðjunni af þremur bræðrum og hef
alltaf verið svona horn. Hornið sem allt lendir
á,“ segir Sigurður þungur á brún. Hann reynir að
vera jákvæður, en þegar hann rekur sögu sína
fyrir blaðamanni er augljóst að hann er gramur
yfir mörgu úr fortíðinni. Þriðji bróðirinn, Krist-
ján, hefur átt í erfiðleikum með fíkniefni lengi
og Sigurður segist hafa tekið það nærri sér. „Ég
hef reynt að styðja við bakið á honum eins og
ég get, þó að ég eigi auðvitað ekki mikinn pen-
„Ég verð að segja frá, til
þess að Ég verði einhvern
tíma látinn í friði og fólk
átti sig á að Ég er ekki
guðmundur í Byrginu.“
Sigurður Jónsson verður
fimmtugur síðar á árinu. Hann
er yngri bróðir Guðmundar
í Byrginu. Þessi harðjaxl sem
kallar ekki allt ömmu sína er
búinn að fá nóg. Eftir að hafa
haldið sig frá fjölmiðlum allt
frá því Byrgismálið kom upp
hefur hann loksins ákveðið að
stíga út úr skugga bróður síns
og segja sögu sína.