Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Síða 45
föstudagur 19. júní 2009 45Helgarblað
Bóndinn á Hinterkaifeck hét Andr-
eas Gruber og var 63 ára gamall
þegar atburðir þessir áttu sér stað.
Eiginkona hans, Cäzilia, var níu
árum eldri. Andreas Gruber var
upphaflega vinnumaður á bænum
og hafði búið þar frá barnsaldri.
Árið 1877 giftist hann Cäziliu, ekkju
fyrrverandi bónda.
Sifjaspell í sveitinni
Bóndahjónin áttu eina uppkomna
dóttur, Viktoríu Gabriel, 35 ára,
sem bjó á Hinterkaifeck eftir að eig-
inmaður hennar lést í fyrri heims-
styrjöldinni. Hún átti tvö börn,
Cäzilu, sjö ára, og Jósef, tveggja ára.
Mál manna í sveitinni var að börn-
in hefði hún eignast með föður sín-
um og feðginin höfðu bæði þurft að
dvelja í fangelsi vegna sifjaspells.
Fyrrverandi vinnukona á bænum
fullyrti að hafa komið að þeim velt-
andi í heysátu í hlöðunni.
Sjötti íbúi Hinterkaifeck var
vinnukonan. Maria Baumgartner
kom til Hinterkaifeck eftirmiðdag-
inn 31. mars 1922. Forveri hennar
hafði yfirgefið bæinn í fússi nokkr-
um mánuðum fyrr, og fullyrt að þar
væri reimt.
Maria Baumgartner var hálf-
fimmtug, öryrki, fædd og uppal-
in í litlu þorpi í nágrenni bæjarins.
Systir hennar fylgdi henni að bæj-
ardyrunum en fékk fálegar mót-
tökur hjá Gruber-hjónunum og
stoppaði aðeins í stutta stund.
Síðan spurðist ekkert til íbúa
bóndabæjarins Hinterkaifeck.
Hökkuð í spað
Fjórum dögum eftir komu nýju
vinnukonunnar, kvöldið 4. apríl,
braust hópur nágranna inn á býlið.
Þeirra beið ekki fögur sjón. Í hlöð-
unni lágu illa útleiknir líkamshlut-
ar á víð og dreif innan um heyið.
Þetta voru leifar bóndahjónanna,
Viktoriu og Cäzilu litlu. Þau höfðu
verið hökkuð í spað með ísexi.
Sömu sögu var að segja um Jósef
litla, sem lá í vöggu sinni og nýju
vinnukonuna. Maria Baumgartner
var varla byrjuð að koma sér fyrir
í nýja herberginu sínu—hún hafði
verið myrt aðeins örfáaum klukku-
stundum eftir að hún kom til Hint-
erkaifeck.
Blæddi út og tætti af sér hárið
Krufning leiddi síðar í ljós að
Cäzila litla, sjö ára gömul, hafði
ekki látist samstundis eins og aðrir
fjölskyldumeðlimir. Hún hafði leg-
ið í heyinu við hlið myrtra ættingja
sinna í margar klukkustundir og
blætt út. Á meðan hafði hún tætt af
sér nær allt hárið.
Morðin vöktu mikla athygli um
gjörvallt Þýskaland og hægt að segja
að nokkurs konar Hinterkaifeck-
æði hafi gripið um sig. Fleiri þús-
und manns mættu í jarðarför Gru-
ber-fjölskyldunnar og fólk þyrpist til
Hinterkaifeck til að berja morðstað-
inn augum. Dæmi eru um að fólk
hafi dvalist á bænum yfir nótt til að
biðja fyrir hinum myrtu.
Morðinginn lá í leyni
Og lögreglurannsóknin sem fylgdi
var ein sú umfangsmesta í sögu
Þýskalandi. Hún stóð í mörg ár og
teygði sig langt út yfir litla bónda-
býlið í Bæjaralandi.
Í ljós kom að nokkrum dögum
fyrir morðin hafði Andreas Gruber
komið að máli við nágranna sína
um undarleg fótspor sem hann
hafði séð í snjónum við Hinterkaif-
eck. Sporin lágu frá nálægum skógi
að bóndabænum, en hann fann
engin spor til baka.
Á lofti bóndabæjarins fundust
merki um mannaferðir. Einhver
hafði legið í leyni og beðið eftir rétta
augnablikinu svo dögum skipti.
Mjólkaði kýrnar
innan um líkin
Og morðinginn lét sig svo held-
ur ekki hverfa eftir að hafa tek-
ist ætlunarverk sitt. Dagana sem
líkin lágu óuppgötvuð í bænum
hafði einhver gefið húsdýrunum
og mjólkað kýrnar. Nágrannar full-
yrtu að hafa séð reyk í strompinum.
Morðinginn hafði dvalið á bænum
í marga daga eftir að hafa myrt allt
heimilisfólkið á hrottalegan hátt.
Lögreglan sem rannsakaði mál-
ið á sínum tíma taldi fyrst að um
ránmorð væri að ræða. Gruber-
fjölskyldan var sannarlega ekki fá-
tæk. Andreas Gruber var frægur
fyrir nísku og var talinn luma á dá-
góðum sjóði í formi skuldabréfa,
gull- og silfurpeninga og skartgripa.
Þessi tilgáta féll um sjálfa sig þegar
þessi verðmæti fundust óhreyfð á
bænum.
Hefnd að handan?
Eiginmaður Viktoríu, Karl Gabriel,
á að hafa fallið í bardaga í Frakk-
landi árið 1914. En líkið fannst
aldrei. Getgátur voru uppi um að
hann hefði í raun aldrei dáið, held-
ur snúið heim á býlið þar sem eig-
inkona hans beið hans, kasólétt eft-
ir föður sinn. Honum hafi blöskrað
svo mjög að hann hafi ákveðið að
drepa alla fjölskylduna í hefndar-
skyni.
Þýska lögreglan yfirheyrði ótal
manns sem voru grunaðir um að
vera Karl Gabriel en án nokkurs ár-
angurs. Af og til hafa sprottið upp
sögur um afdrif hans, til dæmis
fullyrti hópur þýskra stríðsfanga í
seinni heimsstyrjöld að hafa séð
Karl Gabriel sem var þá í hlutverki
kommúnistaleiðtoga í Rússlandi.
Fyrsta voðaverk nasista?
Önnur tilgáta er að morðið hafi ver-
ið verk hægriöfgamanna. Andreas
Gruber sjálfur hafi aðhyllst hægri-
öfgastefnu og leyft fyrirrennurum
nasistaflokksins að nota Hinterka-
ifeck sem leynilega vopnageymslu,
án vitundar annarra heimilis-
manna. „Reimleikinn“ sem gamla
vinnukonan tók eftir hafi í raun ver-
ið laumugangur í nasistum. Gruber
hafi óttast að það kæmist upp um
vopnageymsluna og skipað nasist-
unum að hypja sig á brott, annars
myndi hann kalla til lögregluna. Í
stað þess hafi hægriöfgamennirnir
drepið hann og fjölskyldu hans.
Þessi tilgáta kom nýlega fram í
bók eftir bæverskan blaðamann.
Samkvæmt skjölum sem hann
komst yfir rannsakaði lögreglan á
sínum tíma Adolf nokkurn Gump,
sem bjó í þorpinu nálægt Hinter-
kaifeck og var vinveittur heimilis-
mönnum þar. Gump þessi var liðs-
maður í sjálfboðahersveit, margar
hverjar voru hliðhollar hægri öfl-
um. Rannsókn á Gump var hins
vegar snarlega hætt án nokkurra
skýringa. Ef til vill var þar um að
ræða pólitískan þrýsting? Það verð-
ur sennilega aldrei ljóst.
Hinterkaifeck-málinu var loks
lokað árið 1986. Eftir Veru Illugadóttur
Hver myrti
gruber-fjöl-
skylduna?
Rúma 70 kílómetra norður af München
stendur bóndabærinn Hinterkaifeck. Árið
1922 var bærinn vettvangur eins dularfyllsta og alræmdasta
glæps í sögu Þýskalands.
Morðinginn hafði
dvalið á bænum í
marga daga eftir að
hafa myrt allt heimil-
isfólkið á hrottalegan
hátt.