Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 48
föstudagur 19. júní 200948 Lífsstíll
Exótísk Eva Leikkonan Eva Mendes hefur á undanförnum
misserum verið ein helsta fyrirsæta bandaríska hönnuðarins
Calvins Klein. í nýjustu auglýsingaherferð kappans má sjá Evu
fáklædda ásamt fyrirsætunni jamie dornan. Myndirnar þykja
einstaklega kynþokkafullar. Myndirnar eru teknar af hinum virta
steven Klein og má sjá Evu og jamie fáklædd og útötuð í olíu.
Haustið hjá sænska tískurisanum
verður heldur betur viðburðaríkt.
Divided-línan er ákaflega djörf að
þessu sinni og einkennist mikið af
mótorhjólalúkkinu. Auk þess hefur
HM hafið samstarf við skóframleið-
andann Jimmy Choo sem mun koma
til með að hanna skó og aukahluti
fyrir haustið. Aðalhaust/vetrarlína
HM er einnig stórglæsileg en hún
hefur svolítið fallið í skuggann af Di-
vided-línunni og Jimmy Choo-frétt-
unum. Á meðfylgjandi myndum má
sjá haustlínuna í bland við Divided-
línuna og er óhætt að segja að haust-
ið með HM verði afar spennandi.
Vonandi styrkist krónan með haust-
inu svo við Íslendingar getum ferðast
til útlanda og kíkt í uppáhaldsbúðina
okkar.
uMsjón: KoLbrún páLína hELgadóttir, kolbrun@dv.is
Upp að altarinU?
fatahönnuðurinn Marc jacobs er
sagður ætla að ganga í heilagt
hjónaband á allra næstu dögum.
brúðkaupið mun fara fram í bænum
province í Massachusetts sem er
vinsæll giftingarstaður meðal
samkynhneigðra þar sem
Massachusetts-fylki leyfði
samkynhneigðum að gifta sig fyrir
fimm árum. jacobs og unnusti hans
Lorenzo Martone hafa verið saman í
um eitt ár og er Martone ættaður
frá brasilíu. Ef orðrómurinn um
væntanlegt brúðkaup er sannur má
búast við stjörnum prýddu
brúðkaupi.
Missir fEgUrðar-
gljáann
gisele bundchen er ein af síðustu
ofurfyrirsætunum sem selur enn á
forsíðum tískublaðanna sem í dag
notast einungis við leikkonur. gisele
prýddi forsíðu Vanity fair árið 2007
og var sú forsíða sú þriðja mest
selda það árið. hún prýddi aftur
forsíðu blaðsins núna í maí en í
þetta sinn voru sölutölurnar ekki
jafngóðar. blaðið var það minnst
selda það sem af er árinu. Það sama
má segja um harper´s bazaar. hún
pósaði á forsíðu þess í nóvember í
fyrra og seldist blaðið lítið sem ekki
neitt. hver gæti svo sem ástæðan
verið. jú, talskona Vanity fair
útskýrði þetta á mjög einfaldan
máta: „Kannski er hún að missa
fegurðargljáann?“
Tískuráð Bandaríkjanna stendur fyrir árlegri verðlaunahátíð þar sem helstu hönnuðir
vestanhafs eru heiðraðir. Allar helstu stjörnur og fyrirsætur heims láta sig ekki vanta
á þessa verðlaunahátíð sem er löngu orðin ein sú skemmtilegasta í tískubransanum.
Hin árlegu verðlaun Tískuráðs Banda-ríkjanna voru veitt með glæsibrag í New York á dögunum þar sem helstu hönnuðir Vestanhafs voru
heiðraðir. Italo Zucchelli fyrir Calvin Klein og
Scott Sternberg fyrir Band of Outsiders deildu
verðlaunum sem karlafatahönnuðir ársins og
Rodarte hlaut heiðurinn fyrir kvenfatahönnun
ársins. Proenza Schouler tók heim heiðurinn
sem aukahlutahönnuður ársins. Karlhönnuður
ársins var Tim Hamilton en í kvennaflokknum
var það Alexander Wang sem hlaut toppheið-
urinn. Swarovski-verðlaun ársins fyrir auka-
hluti fékk Justin Giunta fyrir Subversive Jewel-
ry. Vinsældaverðlaunin hlaut Ralph Lauren.
HönnUðirHEiðraðir
Flott teymi justin timberlake
og anne Wintour spjölluðu
saman á verðlaunahátíðinni.
Flott lúkk hönnun
helstu hönnuða heims.
Glæsileg jason Wu
ásamt Kerry Washing-
ton og diane Kruger.
Swaroski-verðlaunahafar justin
giunta, alexander Wang og tim hamilton
ásamt blake Lively og nadiu swarovski.
Glæsileg jason Wu
ásamt Kerry Washingt-
on og diane Kruger.
Flott saman Zac posen
og doutzen Kroes.
Gullfalleg í
appelsínugulu
ashley olsen er
alltaf smekklega
til fara.
Agyness Deyn Er alltaf flott.
Spennandi tímar hjá sænska tískurisanum:
haustið með hM