Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 10
10 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
Svanur Sigurbjörnsson læknir varar við því að detox sé kynnt sem læknismeðferð enda sé það fjarri
sanni. Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur segist vera í samstarfi við pólska lækna en íslenskir
læknar þori ekki að vinna með henni af ótta við Landlæknisembættið og lyfjafyrirtækin. Svanur telur
Jónínu stunda blekkingarstarfsemi og þvertekur fyrir að hægt sé að losna við sjúkdóma með því að fara
í detox. Jónína sakar Svan hins vegar um persónulegt níð.
ÍSLENSKIR LÆKNAR
SMEyKIR VIÐ DETOX
„Það er háalvarlegt mál þegar því
er haldið fram að detox sé læknis-
fræðileg meðferð,“ segir Svanur Sig-
urbjörnsson læknir sem lengi hefur
gagnrýnt detox-meðferðir og hefur
sérstaklega beint augum sínum að
starfsemi Jónínu Benediktsdóttur
íþróttafræðings. Jónína segir de-
toxið vera „læknismeðferð“ og er
hún kynnt sem slík á vefsíðu fyr-
irtækisins. Svanur sakar Jónínu
hins vegar um kukl og segir hana
stofna heilsu skjólstæðinga sinna
í hættu með því að hvetja þá til
að hætta á lyfjum. Hann bendir á
að þeir pólsku læknar sem Jónína
vinnur með hafi ekki fengið birt-
ar greinar í viðurkenndum vís-
indaritum og tekur sem dæmi að
í Pubmed, stærsta gagnagrunni
vísindarita á alþjóðavísu, séu eng-
ar greinar eftir þá. Jónína vísar á
greinar læknanna sem birtar eru á
vefsíðum tileinkaðar detox-með-
ferðum.
Aðeins 500 hitaeiningar
Jónína býður viðskiptavinum sín-
um upp á detox-meðferðir bæði
á Íslandi og í Póllandi. Tveggja
vikna meðferð á detox-stöðinni á
Ásbrú kostar 170 þúsund krónur
fyrir einstakling sem er einn í her-
bergi. Þeir sem kjósa að vera einir í
svítu greiða hins vegar 210 þúsund
krónur. Greiða þarf aukalega fyrir
ristilskolun.
Þátttakendur neyta mestmegn-
is lífrænt ræktaðs grænmetis og
ávaxta, alls um fimm hundruð
hitaeininga á dag. Auk þess stund-
ar fólk létta hreyfingu á meðan á
meðferðinni stendur, fer í nudd,
gufuböð og slökun.
Á vef fyrirtækisins lofa skjól-
stæðingar meðferðina. „Sykursýk-
in hvarf eftir þrjá daga í meðferð-
inni, ég þarf ekki lyfin, jibbí,“ segir
Anna sem er 48 ára en nánari upp-
lýsingar um hana koma ekki fram.
Svanur segir detox hins vegar
ekki lækna neina sjúkdóma og að
engar viðurkenndar vísindalegar
rannsóknir hafi sýnt fram á það.
„Læknar hafa heyrt að Jónína ráð-
leggi fólki að hætta að taka lyfin
sín og það getur verið mjög hættu-
legt, til dæmis í tilvikum þegar fólk
er með erfiðan háþrýsting sem er
helsta orsök heilablóðfalla,“ segir
hann. Einnig sé eðlilegt að blóð-
sykur detti niður við og eftir föstu
en það þýði ekki að sykursýki sé
horfin.
Svanur ritaði nýverið grein á
heimasíðu sína þar sem hann var-
ar við detox-meðferð Jónínu sem
hann segir „kuklprógramm“. Jón-
ína segir í samtali við DV að svo
virðist sem Svanur sé með hana á
heilanum og að ekkert sé að marka
gagnrýni hans þar sem rót henn-
ar virðist vera persónuleg andúð í
garð Jónínu. „Hann talar um mig
eins og ég sé hálfviti,“ segir hún.
Komið með upp í kok af lyfjum
Ristilhreinsunin sem margir kjósa
að fara í sem hluta af detox-með-
ferð hefur vakið athygli en Svanur
hefur litla trú á gildi hennar. Hann
rifjar upp mýtu sem gekk manna
á milli um að ristilhreinsun skili
ótrúlegustu hlutum til baka, jafn-
vel leikföngum. „Það hefur ekki
læknisfræðilegt gildi að finna Fisher
Price-leikföng í endaþarminum,“
segir hann hlæjandi. „Aðalatriðið
er hvað maður setur ofan í sig ekki
það sem maður skolar úr ristlinum,“
segir Svanur.
Að sögn Jónínu þróuðu pólsku
læknarnir Lemienzky og Dabrow-
sku þá detox-meðferð sem hún
býður upp á. Jónína er í samstarfi
við pólska lækna, Lemienzky þar á
meðal, en enginn íslenskur lækn-
ir starfar við detox-miðstöðina. „Ef
eitthvað kemur upp á fer ég með
fólk til lækna í Keflavík og þeir með-
höndla þá eins og hvern annan sjúk-
ling. Það er hins vegar mjög sjaldan
sem það kemur til,“ segir hún.
Jónína neitar því að hún sjálf hafi
frumkvæði að því að láta fólk hætta
á lyfjum. „Ég er ekkert persónulega
að taka lyf af fólki án þess að ráð-
færa mig við lækna. En svo ræður
fólk því hvort það tekur lyfin sín.
Fullt af fólki er komið með upp í kok
að taka kannski tuttugu pillur dag-
lega og vill hætta,“ segir hún.
Bann við blóðprufum
Spurð um ástæðuna fyrir því að
enginn íslenskur læknir starfar með
Jónínu segir hún: „Það hefur eng-
inn íslenskur læknir þorað að koma
í samstarf vð okkur.“ Landlæknis-
embættið beindi nýverið þeim til-
mælum til lækna að neita beiðn-
um um blóðrannsóknir sem ekki
eru gerðar á læknisfræðilegum for-
sendum en tilefnið var að þátttak-
endur á námskeiðum Jónínu þyrftu
að skila blóðprufum áður en þeir
hefja meðferð.
Jónína segist telja læknana óttast
að fá landlækni og lyfjafyrirtækin á
móti sér og hafni því samstarfi. „Þeir
eru bara hræddir því þeir hafa marg-
ir hverjir atvinnu af því að skrifa
upp á lyfseðla. Við erum hins veg-
ar að spara íslenska ríkinu hundruð
milljóna á ári með því að losa fólk
frá lyfjapúkanum,“ segir hún.
Svanur segir þetta tóma vitleysu.
„Flestir læknar hafa yfirnóg að gera
og óttast ekki skort á sjúkdómum.
Við erum líka flestir á launum frá
ríkinu og því ekki í samkeppni við
einn eða neinn,“ segir hann.
Sérgrein Svans er almennar lyf-
lækningar. Hann rak um tíma einka-
stofu en starfar nú á bráðamót-
töku Landspítalans í Fossvogi og á
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis.
Hann segir gagnrýni sína fyrst og
síðast stafa af umhyggju fyrir fólki.
„Afskipti af lyfjum geta fallið und-
ir hegningarlög og ber að tilkynna
slíkt til landlæknis. Það er alltaf inni
í myndinni,“ segir Svanur og bend-
ir á að starfsemi Jónínu sé undir
ströngu eftirliti enda heilsufar fólks
það dýrmætasta sem það á.
Ristillinn komst í lag
Fjölmargir sem hafa farið í de-
tox hjá Jónínu hafa sett sig í sam-
band við hana og lofað meðferð-
ina. Jóna Magga Hreinsdóttir, 48
ára þjónustustjóri, er ein af þeim.
„Eftir tvær vikur í detox hef ég náð
að koma skrokknum í gott lag, kíló-
in fuku, brjóstsviðinn hvarf og rist-
illinn virkar sem aldrei fyrr,“ segir
Jóna sem fór til Póllands í detox í
marsmánuði. Í samtali við DV segir
hún vissulega auðvelt að falla aftur
í sama farið þegar meðferð lýkur en
henni hafi hins vegar tekist að halda
sig frá óhollustu og líður afar vel.
„Detox bjargaði lífi mínu,“ segir hún
og býst við að fara aftur síðar í detox
hjá Jónínu.
Jónína segir detox sannarlega
geta læknað lífsstílssjúkdóma en
undir þá falla meðal annars há-
þrýstingur, sykursýki 2, þunglyndi
og vöðvaverkir „Í öllum tilfellum
læknast fólk af vefjagift í minni með-
ferð og losnar við lyf,“ segir hún.
Svanur segir málflutning sem
þennan óábyrgan. Hann bendir á
að sá heilsusamlegi lífsstíll sem ráð-
lagður er eftir detox-meðferð hljóti
að gagnast flestum. „Það getur ver-
ið að fólki líði betur en um læknis-
fræðilega meðferð er ekki að ræða.
Detox er ekki langtímalausn og
læknar ráðleggja gegn svona föstum
eða nærsveltikúrum,“ segir hann.
ERlA HlynSdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Það hefur ekki
læknisfræðilegt
gildi að finna Fisher
price-leikföng í
endaþarminum.“
Umdeilt Skiptar skoðanir eru um ágæti
detox þar sem fólk neytir 500 hitaeininga
á dag og fer meðal annars í nudd.
Íslenskir læknar hafa miklar efasemdir
um meðferðina. Mynd PHotoS.coM
Allra meina bót Jónína
Benediktsdóttir fullyrðir
að detox lækni lífsstíls-
sjúkdóma á borð við
háþrýsting, þunglyndi og
vöðvaverki. Á vef hennar
segi síðan að ristilhreins-
un sé „allra meina bót“.
Mynd ARnold BJöRnSSon
Varðar við hegningarlög Svanur
Sigurbjörnsson segir grafalvarlegt að
fólki í detox sé ráðlagt að hætta að taka
lyfin sín og ef fagaðilar séu þar ekki að
verki geti það varðað við hegningarlög
að hafa afskipti af lyfjum fólks.
Mynd ÚR EinKASAfni