Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 40
40 föstudagur 7. ágúst 2009 helgarblað hippamenning, fyrirhyggja og heilbrigður lífsstíll Þar sem kreppan er í algleymingi eru góð ráð dýr. Helgarblað DV leitaði til þrettán fjölbreyttra álits- gjafa eftir góðum kreppuráðum. Margt sniðugt kem- ur fram sem hægt er að tileinka sér til að létta lífið. Verðsamanburður og innkaupalisti „Mitt ráð er að hætta að nota kreditkort og fara með pening út í búð, vera búinn að skrifa lista og kaupa eingöngu það sem er á listanum,“ segir söngkonan Regína Ósk þegar hún er innt eftir góðu sparnaðarráði. „Það er um að gera að taka út pening áður en farið er í búðina því þá freistast maður ekki til að kaupa einhvern óþarfa. Svoleiðis er það í öllum aðhöldum, hvort sem það er í fjárhagn- um eða líkamanum, það þarfnast undirbúnings. Það kemur ekkert upp í hendurnar á manni og allt tekur tíma,“ segir Regína og bætir við að verðsamanburð- ur milli verslana sé líka mikilvægur. „Það er til dæm- is mikill verðmunur á hinum ýmsu barnavörum eins og bleium, blautklútum og þess háttar. Munurinn getur verið rosalegur.“ meira gaman saman „Ég er gamall hippi og blómstra því í þessu ástandi,“ segir Árni Pétur Guð- jónsson leikari og bætir við að honum líði best í fötum af vinum og ættingj- um. „Eða þeim sem ég ræni af mági mínum. Það er svo mikið til af flottum fottum á íslandi að við eigum nóg fyrir næstu 20 árin að maður tali ekki um barnaföt fyrir næstu tíu kynslóðir,“ segir hann og bætir við að fatabúðarfólk sé kannski ekki ánægt með þessi orð hans. „Það getur sjálfum sér kennt. Búið að vera í því að selja ungu fólki ómerkilega boli á 10.000 kall sem nauðsynja- vöru.“ Varðandi fleiri hollráð í kreppu segir Árni Pétur sniðugt að flytja saman, það sé meira gaman. „Mað- urinn er hrúgudýr og líður best í góðum félagsskap en kapítalisminn ól á einstaklingshyggju. Meiri gróði og velta, einn bíll á mann, sjónvarp í hvert herbergi og óham- ingju sem aðeins var hægt að slá á með neyslu. Ógeðin! Hvað höfum við látið plata okkur út í? Aldrei aftur. Þessu reyndum við litlu fallegu hippablómabörnin að breyta en vorum þögguð niður af eigingjörnu gróðapakki, CIA og fjölmiðlum sem lýstu okkur sem hallærislegum útúrdóp- uðum lúserum. Dagblaðið er þar ekki undanskilið. Nenni ekki að vera bara sniðugur. Það er svo 2007.“ fýla út í kreppu er peningasóun „Snyrtivörur eru eins og bílar, Við viljum öll BMW og Benz, Range Rover og lúxus en flestir hafa aðeins efni á lítilli japanskri tík,“ segir Heiðar Jónsson snyrtir þegar hann er inntur eftir góðum og hagstæðum ráðum varðandi snyrtingu. „Auðvitað er dýra varan góð og jafnvel best en að bera á sig dýrindiskremi en vera samt í fýlu út í kreppu, allt og alla, er peningasóun. Öll snyrtivara þarf að fara á húð hamingjusams fólks, sem lifir heilbrigðu lífi. Annars gerir hún ekkert gagn,“ segir Heiðar og bæt- ir við að hlutastarf hans sé að kynna dýrar snyrtivörur og að hann yrði rekinn með því sama ef hann færi að tala um rabba- bara og hundasúrur í þessu samhengi. „Hvað þá fíflamjólk,“ segir hann og hlær. heilsan ekki metin til fjár „Í kreppunni þarf fólk að forgangsraða betur hvernig það eyðir sínum peningum og líkamsræktarkort er klárlega ein besta fjárfesting sem til er,“ segir Ágústa Johnson fram- kvæmdarstjóri Hreyfingar. „Í líkamsræktarstöðinni ertu raunverulega að „græða“ eitthvað sem skiptir máli, það er betri heilsu og betri líðan en slíkt verður ekki metið til fjár. Kreppuráðið mitt er: sparaðu við þig í óþarfa og komdu í ræktina og „græddu“ á tá og fingri.“ Umsjón: InDíana Ása HreInsDóttIr dýrara að klippa sig heima „Gott ráð er að tvíþvo hárið í hvert skipti sem þú þværð það en nota þá minna sjampó í hvert skipti, ekki meira en ca krónu í lófa. Í fyrra skiptið er verið að leysa upp húð- fituna en í það seinna hreinsa hárið. Þá tryggir maður betri þvott sem endist lengur og því þarf að þvo sjaldn- ar og þú sparar,“ segir hárgreiðslumeistarinn Nonni Quest og bætir við að djúpnæring sé afar mikilvæg. „Ég get ekki hamrað nógu oft á þessu og það er ekki nóg að gera þetta einu sinni heldur þarf að djúpnæra hárið einu sinni í viku í að minnsta kosti fimm vikur, þri- svar á ári með alvöru næringu. Hárið bókstaflega endist betur, hvort sem það eru endarnir, liturinn, áferðin, glansinn og ég tala nú ekki um viðhaldið. Það er nefnilega ódýrara að vera með fallegt heilbrigt hár.“ Nonni segir að þegar upp sé staðið sé ekki ódýrara að láta klippa sig heima. „Af fenginni áratuga reynslu veit ég að á endanum kemur fólk á stofu til að láta laga og þá fyrst fara hlutirnir að kosta.“ Við erum ekki það sem Við eigum ,,Mikilvægt kreppuráð er að hætta að tala endalaust um kreppuna,“ segir fjöl- miðlakonan Sigríður Arnardóttir sem stendur fyrir vefnum www.sirry.is. „Vissulega léku gráðugir áhættusæknir peningamenn sér með fjármuni og nutu góðs af jákvæðu orðspori þjóðarinnar. Þeir drógu okk- ur niður og skildu okkur eftir í skuldasúpu en látum ekki líka taka frá okkur jákvæðni og hugmyndaauðgi. Hætt- um að tala allt niður og lærum af reynslunni. Skilgrein- um okkur núna út frá kostum okkar og styrkleikum og horfum á allt það góða sem við búum við. Það fleytir okkur áfram og skapar nýjar hugmyndir. Við getum nýtt okkur þessa tíma til að taka til hjá okkur í hugar- fari, gildismati og lífsstíl. Ferskt hugarfar er besta ráð- ið upp á við,“ segir Sirrý og bætir við það sé mikilvægt að fá útrásarvíkingana til að sækja auðinn í skattaskjól- in og taka þátt í uppbyggingunni með þjóðinni. Sirrý segir að við séum ekki það sem við eigum heldur það sem við gerum, hugsum og leggjum af mörkum. „Það sem er best fyrir okkur er líka oftast best fyrir fjárhag okkar og umhverfi,“ segir hún og kemur með dæmi: „Drekkum vatn frekar en kaupa ropvatn í plastflöskum, stundum ókeypis líkamsrækt eins og göngu. Sund er ódýrt á Íslandi en mun- aður í öðrum löndum en sund er gott fyrir líkama og sál. Flest það besta er ókeypis eins og að dansa, kyssa, hlæja og anda að sér ilmi trjánna. Hipparnir kunna þetta, lærum af þeim og verum hipp og kúl. Leggjum flottræfilshætt- inum og hættum að borða of mikið, eyða of miklu og skulda of mikið. Hóf- semi er flott. Hófsemi er framtíðin.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.